Vísir - 26.01.1967, Blaðsíða 5

Vísir - 26.01.1967, Blaðsíða 5
V í SIR. Fimmtudagur 26. janúar 1967. Porís 1967: Kjólfaldurinn 20 - cm. ofan við hné! Það er allt útlit fyrir að stutta tízkan aetli að halda velli, ef marka má fyrstu fréttir sem borizt hafa af vortízkusýningun um í París. Pilsin frá Louis Feraud, sem fyrstur sýndi á mánudag, voru hvorki meira mé minna en 20—25 cm fyrir ofan hné, enda var kiólunum frá hon um likt við nærskyrtur eða blússur, sem ofvöxtur hefði hlaupið í. Og hárgreiðslan var líkust hárgreiðslu barnastjönn- unnar Shirley Temple en hrokk- nkóHs hennar minnast víst flestir. I-íárgreiðslan sem sjálfur kohungur hárgreiðslumeistar- ainna ,Alexandre sýndi var aft- ur á móti stutt og slétt að framan, hvorki túnering eða bylgjur, en „bartar“ og hárið heldur sítt og tjásulegt í hnakk anum. Rendur settu mikinn svip á föt Ferauds bæöi á kjóla og sokka. Rendur á sokkum voru^ með tvennu móti: annað hvort langrendur innan- og utanfótar, eða 'þá margar þverrendur, bæði neðst á sokkunum þannig Tómatrauð kjóldragt frá Feraud og eru hvitar rendur á blússunnl Sokkarnir (sokkabuxur) eru með rauðum röndum innan- og útanfótar. Hárgreiðslan a la Shirley Temple. að þeir virkuðu sem leistar og fyrir ofan hné þannig að þeir virkuðu um leið eins og Ber- mudabuxur (þar var um að ræða sokkabuxur). Kjólamir vom eins og fyrr segir mjög stuttir og við þá sýndi Feraud alveg nýja gerð af kápum. Vom þær líkastar svuntusloppum, mjög stuttar og með klaufum á hliðunum, sem náðu nær því upp að handveg- inum. Efniö var segldúkur í skrautlegum litum og sniðið lík ast tjaldi, þ.e. pýramídasnið. Við kápumar bám sýninga- stúlkurnar hatta, sem mest svip aði til kúrekahatta eða nauta- banahatta. Úr sama efni og kápurnar vom stígvélin, sem vom hnéhá. Neðan á fald sumra kjólanná voru saumaðar litlar bjöllur, sem gullu þegar sýningastúlk- urnar gengu um salinn. Siðu kvöldkjólamir, sem vom úr mexíkönskum efnum vom skreyttir alla vega litinn plast- kúlum við hálsmálið og hand- veginn og teknir saman með skrautlegum beltum. Feraud sýndi einnig stutta kvöldkjóla, mjög stutta, með Alexander Ieggur til að hárið sé slétt en Feraud og fleiri vilja endurvekja hrokkinkollinn. pýramídasniöi og þakta þús- undum af pallíettum. Höfuðbúnaður brúðarinnar, sem gekk inn í lok sýningar- innar minnti helzt á skýluklút og ekki eitt einasta blóm var til að prýða brúðarskartið. Esterel sýndi næstur á eftir Feraud og eínna mesta athygli vöktu hattamir, sem hann ætlar viö sól- og sundföt, en þessir hattar era eftirlíkingar af höttunum hans Napóleons og þar sem ekki er ann- að að sjá en þeir séu hinir klæðilegustu má búast við að þeir eigi eftir að sjást víðar en á baðströndinni. Hann er „höfundur“ huxna- dragtanna og stuttu pilsanna Sýnir aftur eftir tveggja ára hlé — og spurning- in er: Gerir Courreges aftur tizkubyltingu? Franskl tízjkufrömuðurinn og „óþekktaranginn“ André Courr eges hefur ekki látið á sér kræla svo heitið geti síðani hann hélt tízkusýninguna frægu fyr ir tveimur árum, þar sem hann kom fram með stuttu geim- ferðatízkuna og buxnadragtim- ar. Þótti það bá mesti viðburð ur £ tízkuheiminum frá því Dior kom fyrst fram forðum, enda buxnadragtinnar og stutta tizk an farið sigurför um allan heim síðan og þykir sumum nóg um að því er viðvíkur stuttu pils- unum. Þegar verið var aö undirbúa vortízkuna í París í fyrra ríkti mikil eftirvænting í sambandi við Courreges — hvort hann myndi sýna. En hann sýndi ekki og kom ekki fram með neitt nýtt. Er haustsýningamar voru í júlí í sumar lét Courreges ekkert uppi um það hvort hann ætlaði að sýna eða ekki fyrr en á síðustu stundu að hann kvaðst ekki myndu sýna, held- ur fara upp í sveit, hvíla sig og leika tennis. Vortízkusýningamar hófust í París á mánudag og hafa fyrstu fréttir af þeim borizt og þeirra getið annars staðar á síðunni. En sú sýning sem beðið er með hvað mestri eftirvæntingu er sýning Courreges, en hann hef- ur ákveðið að sýna og lofað að koma með algerar nýjungar. Sjálfur hefur hann ekki látið hið minnsta uppi um hvernig þessi nýja tízka hans verður en frá starfsmönnum hans hef- ur það eitt lekið út að nýju fötin verði gerólík buxnadrögt- unum og stuttu „mini“pilsun- um. Þeir tízkufrömuðir Parísar, sem álíta sig „gamla óg reynda" kalla Courreges oft óþekktaranga, en trúlegt er aö þama ' sé um afbrýðissemi að ræða því að Courreges er í rauninni sá eini sem hefur haft hæfileika, kjark og kraft til að gera býltingu — og sigra. Courregesföt á viðráöanlegu verði. Geimferðatízka Courreges, sem segja má að hafi verið upphaf „op- og poptízku" var svo einföld að verksmiðjur gerðu þegar eftirlíkingar af föt- um hans og hófu fjöldafram- leiðslu á þeim. Nú aftur á móti hyggst Courreges taka fyrir að svo verði og hefur hann komizt að samkomulagi við klæðaverk- smiðjur um að koma upp litl- um saumastofum og verzlunum hér og þar, þar sem konur sem vilja klæðast alvöru Courr egesfötum en hafa ekki efni á að kaupa þau á „couture-verði“ geta fengið óskir sínar upp- fylltar. Courreges veit vel að hiijn þögli hringur kvenna sem geta glæðzt „haute-couture-föt- um“ er ekki lengur nógu stór til þess að fyrirtækið beri sig og því vill hann með litlu verzl ununum ná til kvennanna í hin um ört vaxandi millistéttum. Þótt Courreges hafi ekki hald ið stóra sýningu í tvö ár þá hefur hann ekki setið auöum höndum allan tímann. Á hverj- um þriðjudegi og fimmtudegi hefur hann litlar sýningar og þar er yfirleitt saman komiö fólk sem er „frægara og fínna“ en nokkur annar tízkukóngur getur státað af að hafa , sem gesti. Til þess að ná til þessa fólks er Courreges í stöðugu sambandi við flugfélögin og fínu hótelin í París til að fá upplýsingar um hvenær þeir „réttu“ eru í París og síðan býöur hann þeim á sýningam- ar. Courregesilmvatn. Á sýningu sinni mun Courregs kynna nýtt ilmvatn, sem hann kennir við sjálfan sig og má reikna með aö það verði óvenju- legt eins og annað það sem þessi „óþekktarangi” lætur frá sér fara.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.