Vísir - 26.01.1967, Blaðsíða 10

Vísir - 26.01.1967, Blaðsíða 10
10 VISIR. Fimmtudagur 26. janúar 1967. Frá Varöarfundinum í fyrrakvöld Jákvæð þróun launamála í tíð núverandi stjórnar Frá r'ókræöum á Varðarfundi í fyrradag Landsmálafélagiö Vörður hélt í íyrrakvöld fund um ný viðhorf í unamálum. Var fundurinn með i\ sniði að fjórir menia tóku þátt rökræðum um fundarefnið undir jóm umræðustjóra. Fundurinn '3r haldinn í Sjálfstæðishúsimu og .r hann miög fjölsóttur. Formað- ur Varðar Svavar Pálsson, endur- "koðandi, setti fundinn með nokkr- n orðum. Síðam fól hann Sveini 'örnssyni verkfræðlngi fram- 'æmdastjóra Iðnaðarmálastofn- unar Islands að taka við umræðu járn. Þátttakendur í umræðunum oru Björgvim Sigurðsson lögfræð- ’gur, framkvæmdastióri Vinnu- 'itendasambands Islands, Már ''sson, hagfræðingur, skrifstofu- 'jri Fiskifélags íslands, Pétur 'gurðsson, alblngismaður og Þór T''hjálmsscm, borgardómari. Fundarmönnum kom almennt !að saman um að margt stefndi i til jákvæðari áttar í meðferð ■’unamála og efnahagsm. Þó töldu ■imir þátttakenda auglj. að tíminn 'tti eftir að leiða í Ijós hversu var- '.lega þær umbætur hefðu oröið "'irgvin Sigurðsson taldi aö mynd Kjnrarannsóknarnefndar og ’lagráðs auðveldaði umræður og •thugun þessara mála, hvetjandi íakerfi væri einnig að komast í vaxandi mæli. Vinnulöggjöf- i yrði þó að endurskoða og trgt þyrfti að lagfæra betur en ert hefðj verið áður en hægt yrði ð tala um varanlegar breytingar. '■r Elísson ræddi þróun lgunþega samtakanna og taldi að ekki' heföi orðið vart ýkja mikilla breytinga á stefnumálum og aðferðum laun- þegasamtakanna á síðustu áratug- um. Þó væri nú svo komið að ekki yrði lengra gengið í1 endur- skiptingu tekna en gert hefur verið og því yrðu launþegasamtökin aö byrja að aðlaga sig breyttum tím- um og aöstæðum. Pétur Sigurðs- son taldi að ný viðhorf hefðu tví- mælalaust skapazt í samskiptum launþega, vinnuveitenda og rík- isvalds, einkum á dögum viðreisn arstjórnarinnar. Árið 1930 sagöi hann, yar Alþýðusambandsþipg í rauninni algjörlega andvígt ríkis- stjórninni og ráðstöfunum hennar. Andstæðingar stjómarinnar höfðu þá yfirburðafylgi á þinginu. Á síð- asta ASÍ-þingi 1966 hefði lítið sem ekkert verið rætt um stjórnmál og viðurkennt hefði verið að raun hæfari kjarabætur en áður hefðu fengizt í tíö núverandi ríkisstjórn ar. Aukinn skilningur milli rikis- valds og launþegasamtakanna hefði að sínum dómi skapazt ár- ið 1963 í þeim deilum sem þá leiddu til samkomulags skömmu fyrir jól. Stuðningsmenn stjómar- innar nytu nú sívaxandi styrks á Aíþýðusambandsþingum. Þór Vil- hjálmsson benti á að baráttan í launamálum væri ekki eins og ýms ir andstæðingar Sjálfstæðisflokks- ins vildu halda fram barátta hinna fátæku við hina auðugu Heldur væri þessi barátta miklu flóknari. Hún væri einnig barátta milli fjölda starfsstétta um bætt kjör, •hærri laun. Það væri hlutverk Sjálfstæöisflokksins, sem flokks er ekkj væri bundinn við eina stétt annarri fremur, að leiða þessa bar- áttu I nýjan farveg jákvæðari við- horfa og baráttuaðferða. Eftir að rökræðum lauk voru frjálsar umræður og tóku til máls prófessor Ólafur Björnsson, alþing ismaður, Pétur Sigurjónsson, for- stjóri Rannsóknardeildar iðnaðar- ins og Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafræðingur. Eggerf G. — Framh. af bls. 16 fjárhagslegri aðstoð í einu eða öðru formi. — Þó að það takist er rík ástæða til að ætla að um riauðsynlega endurnýjun þessar ar greinar flotans geti ekki orð- ið um að ræða á næstunni vegna rekstrarerfiðleika sem ég tel vera mjög alvarlegt mál, sagði ráðherrann aö lokum. Heifitavistarskóli — Framh. af bls. 1 prófastsdæmisins, auk þess sem hann er þjónandi prestur á Keflavíkurflugvelli. Auk hans er Stefán Júlíusson, rithöfundur fulltrúi sumarbúðanefndarinnar, en aðrir fulltrúar eru frá fræöslu ráðum viökomandi sveitar- og bæjarstjóma. Teikningar eru enn á byrjun- arstigi, en Jón Haraldsson arki- tekt annast þær. ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR úr harðplasti: Format innrcttingar bjóða upp á annað hundrað tcgundir skópa og litaúr- val. Allir skópar með bnki og borðplata sér- smíðuð. Eldhúsið fæst með hljóðeinangruð- um stólvaski og raftækjum af vönduðustu gerð. — Sendið eða komið með mól af eldhús- inu og við skipulcggjum eldhúsið samstundis og gcrum yður fast verðtilboð. Ótrúlega hag- stætt verð; Munið að söluskattur er innifalinn í tilboðum frú Hús & Skip hf. Njótið hag- stæðra greiðsluskilmóla og — lækkið byggingakostnaðinn. S^Jraftæ ki HÚS & SKIP .hf. LAU6AVCGI 11 • tiMI 21111 5 i ' Fasf verðlag — Framh. af bls. 1 þó að þeir séu aðilar að samtök unum, en dr. Þórður Þorbjam- arson, forstööumaður Rannsókn arstofnunar sjávarútvegsins sat fundinn fyrir þeirra hönd. Fram leiðendurnir íslenzku munu taka afstöðu ti! þessarar sam- þykktar á næstunni. Það hefur að sjálfsögðu ver- iö einn megintilgangur alþjóð- legu samtakanna að koma á sem hæstu föstu verðlagi, en samtök in hafa ekki náð tilgangi sínum hingað til, þar sem mörg lönd hafa ekki haft nein sölusamtök sín á milli. — Fram til þessa hafa framleiðendur í Pem og Chile ekki haft nein samtök sín á milli heldur hefur hver fram- leiðandi selt sjálfur og hver boð ið niður fyrir annan. — Nú hafa stiórnarvöld þessara landa beitt sér fyrir því að komið verði á sölusamlögum í,þeim tilgangi aö koma í veg fyrir ástæðulaus und irboð. Þorsteinn Gíslason Framh. af bls. 9 Þorsteinn Gíslason hafði haft sérstöðu í Sjálfstæðismálinu fyrr. Hafði hann þá stungið upp á algerum aðskilnaði íslendinga og Dana. Þegar Hannes Haf- stein gerðist fyrsti ráðherra ís- lands árið 1904 var ekki óeðli- legt að Þorsteinn Gíslason yrði ritstjóri Lögréttu, aðalmálgagns Heimastjómarflokksins. Skömmu eftir það gaf Þor- steinn út aðra ljóðabók eftir sig, Nokkur kvæði, og um svip- að leyti tók hann að gefa út blaðið Óöin og ritstýrði því. Um sama leyti vann hann að ýms- um þýðingum öndvegisbók- mennta erlendra á íslenzka tungu. Árið 1919 hafði ýmislegt gerzt það í þjóðmálum að Þor steinn gaf kost á sér að gérast ritstjóri Morgunblaðsins, sem þá haföi verið gefið út í Rvík um árabil. Var þá Lögrétta gerð að landsblaði Morgunblaðsins. Annaðist Þorsteinn ritstjómina allt til ársins 1924 en gaf út eftir sem áður Lögréttu, sem blað óháð öllum stjómmála- flokkum helgað fyrst og fremst bókmenntum og menningarmál um og erlendum og innlendum tíðindum. Nokkur seinustu árin kom hún út sem myndarlegt árs fjórðungsrit en hætti að koma út, þá er Þorsteinn var að verða sjötugur, og hafði hann þá stjórnað henni í rúm þrjátíu ár. Óðin gaf hann út ári leng- ur, og þegar útgáfu hans lauk, hafði Þorsteinn stundað blaðaút gáfu og ritstjóm á fimmta ára- tug og lengst allra Islendinga, að Jóni Ólafssyni undanskild- um. Tjorsteinn hafði margt annað með höndum en ritstjórn og blaðaútgáfu. Hann var um skeið í miðstjóm Heimastjórn- arflokksins og einnig var hann um hríð formaður stjórnmála- félagsins Fram. Hann var einn helzti hvatamaður að stofnun blaðamannafélags í Reykjavík og var í fyrstu stjórn þess með þeim Bimi Jónssvni og Jóni Ól- afssyni. Var Þorsteinn einnig um skeið formaður Bóksalafé- lags íslands og í mörg ár starf- andi í reglu Góðtemplara. Loks var hann einn af þeim mönn- um, sem stóðu að stofnun Nor ræna félagsins. Þorsteinn var framfaramaöur á sviði prentiðnaðarinnar. Hann fékk því til leiðar komið að prentsmiöja sú, sem hann var meðeigandi að varð fyrst til þess að kaupa setjaravél. Vakti þessi ráðstöfun mikla andúð til að byrja með meðal prentara. Þorsteinn var stórvirkur bóka útgefandi gaf bæði út sín eigin ritverk auk annarra innlendra ritsmíða og erlendra í þýðingu. Síðustu fjögur ár ævinnar vann Þorsteinn að útgáfustörf- um auk þess sem hann skrifaði margt í Lögréttu og Óöin og birti þar eftir sig kvæði. Stórvirki eru meðal þess sem Þorsteinn gaf út eftir sig en ekki verður þeirra getið hér nú. Ljóðaþýðandi var hann einnig með afbrigðum góður — einn hinna beztu, sem við íslending ar höfum átt. Fleira var Þor- steini til lista lagt, skar hann út í tré, einkum fyrr á árum. Lézt Þorsteinn þann 20. okt. 1938 og var þá harmur kveð- inn að eftirlifandi konu hans Þórunni Pálsdóttur, en þau höfðu gengið í hjónaband 1903. Áttu þau sex börn, en af þeim eru enn fimm á lífi. BELLA — Ég hef haft þrefalt linubil á milli í bréfinu, sem bér lásuð mér upp, svo að bér ættuð hægara með að bæta inn beim setning- um, sem ég náði ekki. VEDRIÐ í DAG Austan gola eöa kaldi. Skýjað með köflum. Hiti nálægt frost- marki. FUNDIR í ÐftrS Kvenfélag Kópavögs: Námskeið verður haldið í fund- arstjóm og fundarsköpum og hefst þaö í félagsheimilinu í dag kl. 8.30. Leiðbeinandi verður Bald vin Þ. Kristjánsson framkv.stj. * Enn geta nokkrar konur komizt að. Tilkynniö þátttöku: Helgu Þorsteinsd. síma: 41129, Eygló Jónsd. síma: 51382. Aðalfundur slysavarnadeildar- innar Ingólfs verður haldinn £ dag kl. 20 í húsi Slysavarnafélags Islands við Grandagarð. Á dag- skrá eru venjuleg aðalfundarstörf Stjórnin. Frá Guðspekifélaginu. Fundur verður i stúkunni Septímu í dag ki. 20.30 í Guðspekifélagshúsinu. Fundarefni: Páll Gröndal sýnir kvikmynd, sem nefnist: „Menn og guðir“, og sýnir hún trúarsiði í Indlandi og Pakistan, Síam og Tíbet. Hljómlist. Kaffi, Hjálpræðisherinn. Samkoma í dag kl. 20.30. Sr. Magnús Guðmundsson flytur fyr- irlestur um frú general Cather- ine Booth. Söngur og hljóðfæra- sláttur. Allir velkomnir. Fíladelfía, Reykjavík, Almenn samkoma í dag kl. 20.30. Jóhann Pálsson og fleiri gestir tala. Heimatrúboðið. Almenn sarpkoma í dag kl. 20.30. Verið velkomin. Æskulýðsfélag Garðakirkju. Fundur í dag kl. 20.00 £ efri deild, í Garðaholti. A.D. - K.F.U.M. Aðaldeildarfundur 1 kvöld kl. 8,30 í húsi félagsins við Amtmannsstíg. Bjarni Eyjólfsson annast fundinn. Inntaka nýrra meölima. Allir karl- menn velkomnir. _________________________________ m

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.