Vísir - 26.01.1967, Qupperneq 16
TWtaB
Fimmtudagur 26. janúar 1967.
y
innbrotið í peningaskáp-
inn 4. innbrotið á Seyðis-
firði síðan á föstudag
Umfangsmikiar yfirheyrslur
Æði umfangsmiklar yfirheyrslur
tanda nú yfir vegna innbrotsins á
Seyðisfirði og var ekki séð fyrir
'dann á beim, þegar Vísir hafði
"amband við Vilmund Björnsson
'iæjarfógeta •" morgun. Bæjarfógeti
■agði að gætur væru hafðar á ferð-
um manna frá Seyðisfirði frá því
að innbrotið var framið, sem er
ekki mikium erfiðleikum bundiö
■>ví að ekki er um nema eina leið
f ræða, bað er yfir Fjarðarheiði
sem er ófær öðrum farartækjum
en snjóbílum.
Þjófurinn er hins vegar ennþá í
felum með þýfi sitt, 115 þúsund
krónur i peningum og 6 þúsund í
narimerkjum.
Bæjarfógeti játti því að óvenju
nikið hefði verið um innbrot, eða
iraunir til innbrota á Seyðisfirði
að undanförnu. Síðastliðinn laugar
dag var brotizt inn í bensínskúr og
stolið þaðan sígarettum og lítils-
háttar peningaupphæð. Komizt var
mn í skúrinn með því að brjóta
bar rúðu Brotinn hnífur, sem
fannst á staðnum þótti benda til
bess að enskir sjómenn, sem voru
á skipi hefðu ef til vill verið þar á
ferð, en ekkert er uppvíst um það
mál.
Á föstudag voru brotnar upp
hurðir í tveimur bátum, sem lágu
á Seyðisfirði, ekki er vitað í hvaða
tilgangi, en þar mun lítið verð-
mætt hafa verið að finna í lausu fé.
56 tonna bátur frá Rifi aflaði
1400 I. af bolfiski á síðasta ári
Breiðafjarðarbátar búast til netaveiða
Vertíðarbátar í Ólafsvík og á
Hellissandi eru að búast til neta-
veiða. Frá Ólafsvík er búizt viö
að rói upp undir 20 bátar í vet-
ur, en 12 frá Sandi (Rifi) í vetur.
Þrfr bátar hafa aö undanförnu róið
frá Rifi með línu, tveir stórir bát-
ar og einn lítill dekkbátur, gæftir
hafa verið ákaflega stopular, en
reytingsafli, þetta frá 5 og upp í
8y2 lest i róðri. Heildaraflinn frá
áramótum er orðinn 80 Iestir.
Hamar 56 lesta bátur frá Rifi
stundaði eingöngu bolfiskveiðar
síðastliðið ár, línu og net í fyrra
vetur, handfæri stuttan tíma í sum
ar og línu í haust. Alls hefur
hann á þessum tíma aflaö 1400
tonn, þar af 375 tonn á haust-
vertíðinni. — Þetta er athyglis-
verður árangur eins báts einkum,
ef höfð er í huga hörmungarsaga
-h
undanfarinna vertíða og vandræði
smærri bátanna. — Skipstjóri á
Hamri er Sævar Friðþjófss. frá Rifi.
17,4% farþegafjölg
un hjá Loftleiðum
Árið sem leiö fluttu Loftleiöir
165.645 farþega. Er þaö 17.4%
aukning frá árinu 1965, en þá fluttu
Loftleiðir 141.051 farþega.
Farþegum, sem höfðu viðdvöl á
íslandi á vegum Loftleiða, fjölgaöi
um 104% frá árinu 1965. Vöru-
flutningar jukust um 11%.
Nýting Loftleiðahótelsins fyrstu
átta mánuöina sem það var starf-
rækt eöa frá 1. maí til áramóta
var 65.9%. Gestafjöldi var 17.378.
Starfsmannafjöldi hjá Loftleiðum
var á sl. ári 667. Af þessum hópi
störfuðu 142 á aðalskrifstofunni i
Reykjavík, 185 í Keflavík og 137 á
Hótel Loftleiðir. I áhöfnum félags-
ins’ starfa 203 karlar og konur.
Listi Sjálfstæðismanna
á Norðurlandi vestra
Framboðslisti Sjálfstæðismanna i
Norðurlandskjördæmi vestra hefur
nú veriö birtur í heíld. Frambjóð-
endur eru: 1. Séra Gunnar Gísia-
son, Glaumbæ, 2. Pálmi Jónsson,
bóndi, Akrl, 3. Eyjölfur K. Jónsson
ritstjóri, Reykjavík, 4. Óskar Leví,
bóndi, Ósum, 5. Þorfinnur Bjama-
son, sveitarstjóri, Skagaströnd, 6.
Bjöm Daníelsson, skólastjóri, Sauð
árkróki, 7. Jóhannes Guðmundsson
bóndi, Auðunarstöðum 8. Andrés
Hafliðason, forstjóri, Slglufirði, 9.
Valgarð Björnsson, læknir, Hofsósi
10. Bjarni Halldórsson, bóndi, Upp-
sölum.
K0L & SALTsagt upp viðhöfnina
Fyrirtækið hefur áfrýjað til Hæstaréttar
Fyrirtækinu Kol & Salt var nú
um áramótin sagt upp öllu
athafnasvæði því, sem það hef-
ur haft við höfnina, meö 6 mán
aða uppsagnarfresti. — 1 nóv-
ember síðastliðnum rann út upp-
sagnarfrestur á hluta svæðisins,
en bar sem fyrirtækið hafði það
aö engu, var hafnarstjóra falið
samkvæmt fógetarétti, að bera
fyrirtækið út af þessum hiuta
svæðisins. — Hefur Kol & Salt
nú áfrýjað úrskurði fógetaréttar
með tilliti til útburðarins en
einnig uppsögn á öllu athafna-
svæðinu.
Kol & Salt hefur um áratuga
skeið haft starfsemina við eystri
hluta hafnarinnar og var um-
svifamesti innflytjandi kola og
salts. — Nú hefur fyrirtækið
lagt niður allan kolainnflutning,
enda mun lítill markaður vera
fyrir hendi í Revkjavík a.m.k.
Einnig er nú skipað upp mun
minna magni af salti í Reykja-
vík, en áöur var gert, en salt-
skip send til þeirra staða á land-
inu, þar sem það er notað, án
þess að skipa því fyrst upp hér.
— Mun þetta vera ástæðan fyrir
uppsögninni, en mikil þörf er
nú almennt fyrir athafnasvæði
við höfnina. — Til greina kemur
að Kol & Salt verði boðið annað
svæði við höfnina.
Afmælássýai-
ingu L.R.
Eýkur í dug
Afmælissýningu Leikfélags Reykja
vikur í Unuhúsi lýkur í dag, en hún
hefur. staöið 10 daga og fjöldi
manns komiö að sjá hana. Á sýn-
ingunni eru helztu leikminjar, sem
varðveitzt hafa á 70 ára ferli leik
félagsins, myndir, líkön að leik-
myndum og ýmsir munir.
Sýningin verður opin í dag or
kvöld frá kl. 2 til 6 og frá 8—10
Sjávarútvegsmálaráðherra i viðtali við Visi:
Engar auknar togveiðihei
innan landhelginnar
— Ráðherrann telur sjálfur rétt að veita auknar heimildir, en ekki
fært vegna almennrar andstöðu á þingi og i verstöðvum — Mikill
hluti hraðfrystihúsaeigenda á móti auknum togveiðiheimildum
Eggert G. Þorsteins-
son, sjávarútvegsmála-
ráðherra, lýsti því yfir í
fréttatíma sjónvarpsins
í gær, að auknar togveið
ar yrðu ekki leyfðar inn
an 12 mílna markanna
að sinni.
Vegna þessara ummæla hafði
Vísir tal af ráðherranum í morg
un tii r inna hann nánar eftir
frét' .m varðandi þetta. — Ég
hefi talið siálfur að leyfa ætti
auknar togveiöar innan mark-
anna þó að ég hefði ekki viljað
ganga eins langt og Togara-
nefndin lagði til, sagði ráðherr-
ann. — Vegna þeirrar gagnrýni,
sem fram hefur komið á þessa
ráðstöfun um land allt og þar
sem sýnt er að meiri hluti al-
þingismanna er mótfailinn aukn
um veiðiheimildum innan mark-
anna, tel ég bæði óeðliiegt og
rangt að beita heimildum sem
ráðherra hefur samkvæmt lög-
um til að hlcvpa togurum og
togbátum í ríkara mæli inn fyr-
ir mörkin.
Það sem hefur komið mér
mest á óvart, sagði ráðherrann,
er andstaða margra fiskkaup-
enda (þ. e. frystihúsaeigenda)
gegn auknum togveiðiheimild-
um innan markanna. — Stór
liður í rekstrarerfiðleikum hrað
frystihúsanna er hráefnisskort-
ur, en maður skyldi ætla að
þessi afstaða hraðfrystihúsaeig-
enda yrðj sfzt til að minnka
þann skort.
Varðandi spurningu hvaða
ráðstafanir yrðu nú gerðar til að
tryggja áframhaldandi rekstur
þeirra togara, sem enn eru rekn
ir hér á landi, svaraði ráðherr-
ann að nú væri um tvo kosti að
velja: Auka fjárhagslega aöstoð
við togarana, beint og óbeint.
eða hitt að gera ekkert þeim
til bjargar sem eflaust ylli þvi
að þeim yrði öllum lagt innan
tíðar. — Síðarnefnda kostinn
taldi ráðherrann þó ekki vera
neina lausn. — Viö veröum að
nýta til fullnustu þá fjárfestingu
sem í togaraflotanum liggur,
meðan skipin endast og þá með
Framh. á bls 10
VISIR