Vísir - 02.02.1967, Side 1
Bæjarþingsmálum hefur
fjölgað m 3-500 árlega
Aukning mest i vixil- og skuldamálum — Yfirborgardómari telur nauð-
synlegt að sett verði l'óg um s'ólu lausafjár með afborgunum
|| og yfirgnæfir allar aðrar bygg-
|jingar borgarinnar.
j MYNDSJÁ í dag sýnir inn í
framtíðina, — vlð sjáum stór-
byggingamar á Skólavörðuholti
1974 og Hallgrímskirkja gerir
sannarlega ekki mikið úr um-
hverfinu eins og sjá má.
Á s.l. ári voru þingfest f bæj-
arþingi Reykjavíkur og sjó- og
verzlunardómi 5068 mál, en af-
greidd voru, dæmd, sætt eða haf
in 4865 mál. Mest af þessu eru
skriflega flutt mál, víxllmál og
skuldamál.
Vísir átti stutt samtal við yf-
irborgardómarann í Reykjavfk,
Hákon Guðmundsson, í morgun
og skýrði hann frá málafjölda
hjá embættinu á s.l. ári.
Sagði hann, að málafjöldi hjá
embættinu færi vaxandi með ári
hverju, ykist um 3—500 mál á
ári. Flest þessara mála eru víxil-
og skuldamál, en þau munu hafa
verið kringum 4500 talsins á s.I.
ári. Þess háttar mál eru flutt
skriflega, en öll viðameiri mál
t. d. skaðabótamál, eru flutt
munnlega. Algengustu mál þeirr
ar tegundar eru skaðabótamál
vegna slysa, galla á húsum,
málaflokkur, sem stækkar ört,
og mál út af verzlunarviðskipt-
um, einnig nokkuð af kaupkröfu
málum og meiðyrðamálum. —
Geta má þess, að árið 1961 voru
þingfest 2946 mál í bæjarþingi,
en afgreidd 2802 mál. Árið 1965
voru þingfest mál 4551, en af-
greidd 4591.
Tekin voru fyrir hjá borgar-
dómaráembættinu 324 hjóna-
skiinaðarmál og gefin út 117
leyfisbréf til skilnaðar að borði
og sæng. Hjónavígslur voru 66
á s.l. ári. Hjónavígslum hjá emb-
ættinu fer fjölgandi, sagði yfir-
borgardómarinn, en mér er ekki
ljóst, hvort um hlutfallslega
fjölgun er að ræða 1 samanburði
Framh. á bls 10
Tilraunir gerðar í
með froðuplast til beitu
Lögreglan skerst í leikinn, — fannst gauragangurin n ganga úr hófi fram og tók það ráð aö „skrúfa
fyrir“ hljómlistarmenn Tóna.
í Noregsfrétt frá NTB er sagt
frá athyglisverðum tilraunum til
Olæti unglinga eftir bítlatónleika
Nokkuð stór hópur unglinga
safnaðist saman niðr; í miöbæ
f gærkvöldi eftir aö bítlatón-
leikum í Austurbæiarbíói lauk.
Höfðu þeir í frammi nokkur ærsl
og ólæti. Reyndu meðal annars
að velta bílum, sem lelö áttu
fram hjá um þetta leyti, og
gcröu aðsúg að lögreglustöðinni.
Ástæðan var sú, að ungling-
arnir æstust svona upp, þegar
hætta varð tónleikunum vegna
óláta áhorfenda. JÞegar síga tók
á seinni hluta tónleikanna, ætl-
aði allt um koll aö kevra, ung-
lingar fleygðu fötum og öllu
lauslegu upp á sviðið og réðust
nokkrir upp á sviðið. Varð þá
lögreglan að grípa i taumana
og stöðva tónleikana. — Þurfti
síðan að ryðja húsið, sem gekk
treglega. Svo mikill var áhug-
inn að komast inn í bíóið aftur,
að nokkrir gerðu tilraun til að
brjóta hurð á húsinu og fara
inn.
Eftir þetta hélt hluti ungling-
anna niður í bæ, og hélt áfram
ólátum þar. Neyddist lögreglan
til að taka verstu ólátabelgina
og flytja í Stðumúla. Þegar svo
tók að rigna, nægði það til þess
að hópurinn dreifðist.
framleiðslu á gervibeitu. Fréttin
er frá Álasundi og segir i henni,
að fyrirtæki í Norðfirði (Nordfjord-
en) sé farið að framleiða froðu-
plast til beitu, ætlað til að beita
á línu. í froðuna er settur fluor-
kenndur vökvi og sérstök sjávar-
dýr soðin saman við hana,' svo
að beitan verður bæði bragðgóð
og góð lykt af henni. Fyrstu tilraun
ir hafa gefizt vel, en tekið er fram
að það þurfi að reyna hana á
fleiri fisktegundum- en gert hefir
verið. Til þessa hefir hún bara
verið reynd á einni, sem „gleypir
við öllu“. og því ekki að marka
hana eina.
Tilraununum verður haldið á-
fram í þeirri von, að það takist
að framleiða gervibeitu, sem spari
fiskimönnum mikil útgjöld.
1974
HVERNIG verður svipur höfuð-
borgarinnar 1974? Þá á Hall-
— það mndeilda
mannvirki, að vera fullbyggð
Unglingamir hímdu heldur ömurlegir og eins og án tilgangs andspænis Iögreglustöðinni. Þeir tóku til handargagns mjólkurhyrnur af
tröppum Iögreglustöðvarinnar og köstuöu þeim í gluggana. Nokkrir þeirra voru fluttir f Síðumúla, — og þangaö sóttu foreldrar böm sín.
1 gærkveldi efndi Stúdentafélag
Háskólans til almenns umræðu-
fundar í Sigtúni og var náttúru-
vernd tekin til meöferðar. Frum-
mælandi var Eyþór Einarsson,
mag. scient. Eyþór benti á ýmsar
lagasetningar um náttúruvernd og
skýrði sín sjónarmið þar að lút-
andi. Hann benti m. a. á nauðsyn
náttúruverndar í nútimaþjóðfélagi
og tækifæri það sem ísland hefði
á þessu sviði nú. Þegar hin
gömlu klassisku þjóðfélög hefðu
verið að þróa2t hefði hugtakið
náttúruvernd ekki verið til, en það
væri mjög víðtækt. Hérlendis væri
I nú gullið tækifæri til náttúruvernd
| ar, vegna þess hve náttúra lands-
ins væri tiltölulega ósnortin af
mannshöndinni. Sem dæmi um
hættur þær sem leynast vegna
mannanna verka má taka vatnsból-
in í nágrenni Reykjavíkur. Ekki
þarf annað en að olíugeymir springi
;á því svæði sem vatnsbólin eru
! Það getur haft alvarlegar afleið-
ingar í för með sér, þar sem jarð-
vegurinn í nágrenni borgarinnar er
mjög gisinn. Það gæti tekið mörg
ár að bæta slíkt tjón.
Jón Jónsson jarðfræöingur hefur
gert athuganir í þessu sambandi og
kom fram í þeim, að ekki þarf
meira til en að olíuflutningabifreið
velti út af veginum á þessu svæöi.
en slíkt óhapp getur haft varan-
1 leg áhrif á vatnsæðarnar.
Á fundinum var rætt um þá á-
, kvörðun Þingvallanefndar að Ieyfa
i byggirigar sumarbústaða í Gjá-'
' bakkalandi og samþykktar vítur á
nefndina þess vegna. Menn voru
vfirleitt sammála um að vanhugs-
að væri af nefndinni að leyfa slík-
ar bvggingar, enda spilltu þær frið-
helgi staðarins Þingvallanefnd
heföi einnig gerzt brotleg við þjóö-
1 garðslögin með byggingaleyfum ■
innan takmarka hans.
Eyþór vakti athygli á því að Is-
land væri aðili að alþjóðlegum;
samtökum um náttúruvernd og gat
þess að komið hefði til mála, að
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum yrði
strikaður út af lista hjá hinum al-
þjóölegu samtökum, vegna þess að
skilyrðum værj ekki fullnægt og
er þá aðallega átt við byggingu
sumarbústaða innan þjóðgarðsins.
Einnig var getið um það laga-
ákvæði, að veiðar eru algerlega
bannaðar innan garðsins, nema á
stöng, en hér hefur sá háttur ver-
ið á hafður, að veiða gegndarlaust
á svæðinu. Séra Eiríkur J. Eiríks-
son, þjóðgarðsvörður, gat þess, að
sl. sumar hefðu aðeins verið leyfð-
ar veiðar með stöng.
Samþykkt var ályktun ferðamála
ráðs að gagnrýna Þingvallanefnd
Framhald á bls. 10.
Náftúruvernd rædd á fundi Stúdentafélagsins i gærkvóldi:
Lítið þarf til að vatnsbólin séu í hættu