Vísir - 02.02.1967, Page 2
V f SIR . Fimmtudagur 2. febrúar 1967.
^ f - *
’ - Ní v
„Það kostar Ungverjana mikinn
svita ef þeir ætla að sigra okkur"
— segir Arni Agústsson, einn fararstjóra FH-libsins,
sem hélt 'jtan i morgun til kepp ni við Honved
FH er farið utan til keppni
við Honved i Búdapest. „Við
reiknum með erfiðum andstœð-
ingum þar sem þessir ung-
versku meistarar eru“, sagði
einn af fararstjórum FH í gær,
Ámi Ágústsson, þegar við
hittum hann þar sem hann var
að vinna að útgáfu leikskrár,
sem koma á út þegar FH og
Honved leika hér 12. febrúar.
„1 liði Honved er aö finna
m.a. 6 leikmenn, sem voru með
I HM í Svíþjóð á dögunum, þar
á meöal stjama þess liðs, Varga,
ungur og ákaflega efnilegur, en
hann hefur enn aðeins 4 lands-
leiki að baki, markvörðurinn
Széplaki (17 landsleikir), Ad-
joman (59 landsleikir), Fenyö
(54 landsl.), Kovacs (61 landsl.),
og Vitkay (24 landsl.). Liöiö
byggist að verulegu leyti upp á
þessum gamalreyndu leikmönn-
um, en ungir liðsmenn, sem leik
iö hafa með unglingalandsliði,
eru á mjög áberandi hátt
notaöir. Alls hafa Honved-leik-
menn 234 landsleiki að baki, —
okkar piltar hafa að vísu marga
landsleiki að baki márgir hverj-
ir, en samanlagt erum viö ekk-
ert í námunda við Ungverjana".
— Hvað um Honved. Er þetta
ekki mikið íþróttafélag?
„Jú, þetta félag er mjög stórt,
það var stofnað 1949, og eru 23
íþróttagreinar iðkaðar af félög-
unum, — virkir þátttakendur
munu vera yfir 2000 talsins, þar
á meðal eru heimsmeistarar,
Olympíumeistarar, margir Evr-
ópumeistarar og methafar alls
konar. Frá síðustu Olympíuleik-
um fengu Honved-menn þrjá
menn með gull fyrir knatt-
spyrnukeppnina. Félagið er aö
flestu leyti rekið sem ríkisfyrir-
tæki og mjög stórt í sniðum. í'*>
hitteöfyrra vann Honved 54
ungverska meistaratitla í ýmsum |
greinum, bæöi einstaklings og
flokkaíþróttum, en í fyrra urðu
meistaratitlamir 80 talsins.
Handknattleikur var eiginlega
ekki tekinn á dagskrá hjá Hon-
ved fyrr en 1957 og sama ár
komust þeir í 1. deild. Þar hafa
þeir fjórum sinnum orðið ung-
verskir meistarar síöan, en
tvisvar í 5. sæti. S.l. fjögur ár
hafa þeir verið í algjörum sér-
flokki í innanhússleik. Gegn er-
lendum liðum hafa þeir náð á-
gætum árangri, voru m.a. í
hörkuspennandi bikarúrslitum
gegn Leipzig í síðustu Evrópu-
bikarkeppni, en Leipzig vann
16:14 og fór leikurinn fram í
París. Nú, gegn Dukla Prag,
sem við þekkjum hafa þeir náö
ágætum árangri, töpuðu að vísu
með 10:17 1962, en naumlega
með 17:21 1964. Sama ár léku
þeir m.a. viö Árhus KFUM og
unnu Ungverjar það lið með
24:14“.
— Hvaö álítið þið um frammi
stöðu ykkar gegn þessu sterka
liði?
„Við ættum að eiga jafna
möguleika á við Ungverjana.
Þeir verða eflaust erfiðir, en við
munum verjast og standa í
þeim, — ungverskur sigur skal
þurfa að kosta talsverðan svita.
Nú hefur allt verið gert til aö
okkar lið verði betur fyrirkall-
að en í leiknum gegn Dukla í
síðustu Evrópubikarkeppni. Við
leggjum fyrr af stað nú en þá.
Þá lentum við í seinkun á
Kastrup-flugvelli og komumst
ekki í rúmið fyrr en milli 2 og
3 um nóttina fyrir leik okkar,
sem var kl. 10.30 fyrir hádegi.
ÞaÖ var því litla hvíld að fá,
en samt töpuöum við aöeins
Fyrir nokkrum dögum fór
fram fyrsta- keppnin í ísknatt-
leik hér á landi milli tveggja
félaga. Aö vísu voru liðin ekki
í einkennisbúningum að hætti
erlendra liða, en engu að síður
voru hér Skautafélög Akureyrar
og Reykjavíkur. Akureyrarliðið
sigraði eins og við mátt búast
. með miklum mun, enda hefur
það lið betri tækifæri til að
æfa en hið reykvíska, sem býr
við eilífa hláku og isleysi. —
Myndina tók fréttamaður Vísis
Herbert Guðmundsson af leikn-
um.
með 5 marka mun og unnum
áhorfendaskarann á okkar
band, enda þótt flestir væru
fylgjendur Dukla. Nú förum við
til London og þaðan á föstudags
morgun til Budapest með milli-
lendingu í Brússel og veröum
komnir á áfangastað um 5-leyt-
ið. Við ættum því að hafa á-
gætan tíma til að átta okkur,
skoða íþróttahöllina og aðlaga
okkur öllum aöstæðum“.
— Hvað með mataræðið. Nú
fara margir íþróttamenn og heil-
ir flokkar flatt á því að skipta
snögglega um mataræði?
„Já, við höfum hugsað um
það atriði og munum við sjá
svo um á hóteli okkar að strák-
amir fái aðeins fæðu, sem fer
vel í maga, en sleppi kryddÖð-
um mat og öðru, sem kann að
vera þeim skaðlegt. Birgir
Björnsson sér um þessa hlið
málanna. Nú, við höfum gert
allt til að reyna að gera þetta
sem þægilegast. Við höfum öft
verið óánægðir með hótel, sem
okkur hefur verið boðið upp á,
og því látum við ferðaskrifstofu
Framh. á bls 10
Innanhússkaattspyrna í
Laugardalshöll í kvöld
í kvöld verður í
sinn leikin innanhússknatt
spyrna ! Laugardalshöll-
inni. Hefur þessari grein
verið spáð miklum vinsæld
um hér í hinni stóru" höll
og er alls ekki fjarri lagi
að álíta að íslandsmót og
Reykjavíkurmót verði
haldin í þessari grein, þeg-
ar hægt verður að koma
fyrsta við pöllum meðfram gólf-
inu, eins og reglur gera ráð
fyrir. Verður þá eflaust oft
þröng á þingi í áhorfenda-
Ólafsson, Hermann Hermannsson,
Geir Guðmundsson, Ellert „Lolli“
Sölvason, Guðbrandur Jakobss. og
Snorri Jónsson. í liði íþróttafrétta-
manna eru að vísu engar kempur
en eflaust munu hinir ritvísu menn
stæðum. sýna engu minni snilli á knatt-
spyrnuvellinum en ritvellinum.
Það er í tilefni af 55 ára afmæli í kvöld fara fram eftirtaldir
Vals, sem þetta mót er haldið og leikir
er keppnin með hraðkeppnissniði 1. Þróttur A — Breiðablik
og lýkur annað kvöld. 2. K.R. A — Þróttur B
Annað kvöld mun leikur gamalla 3. Fram B — Haukar
Vals-„stjama“ gegn liði íþrótta- 4. Í.B.K. B — Valur B
fréttamanna eflaust vekja mesta 5. Vlkingur B — Í.A. B
athyglina. í liði Vals nægir að 6. Í.A. A — I.B.K. A
benda á nöfn eins og Albert Guð- 7. K.R. B — Valur A
mundsson, sem er fyrirliði, Sig. 8. Víkingur A — Fram A.
WNANHUSSMÓT í KNA TTSPYR,
verður haldið í nýju íþróttahöllinni og hefst í kvöld kl. 8.15. Beztu knattspyrnumenn landsins keppa. KomÍ J
og sjáið knattspyrnu leikna í nýju íþróttahöllinni.
Knattspyrnufélagið Valur