Vísir - 18.02.1967, Blaðsíða 3
VÍSIR . Laugardagur 18. febrúar 1967.
Listafélagsfólk, ráðgjafar og listamenn : Margrét Reykdal og Kristín Hannesdóttir í stjórn Listafélags-
ins, Sverrir Haraldsson listmálari og ráðgjafi, Ó1 öf Pálsdóttir myndhöggvari, Stefán Stefánsson for-
seti Listafélagsins, Ásmundur Sveinsson myndhöggvari, Jón Gunnar Árnason myndhöggvari og
Kristinn ijósameistari.
AÐ NÁ FRAM LlNU-
SPILI OG FORMUM
Menntaskólanemar eru farnir
að láta mikið að sér kveða f
myndlistarlífinu hér í' borg og
hafa þeir staðið fyrir sýningum
og kynningum á verkum þekktra
Iistamanna, auk þess sem þeir
hafa sýnt eigin listaverk. Hafa
þeir hingað til haldið sig við
málverk og teikningar en í dag
opna þeir sýningu á höggmynd-
um 6 þekktra íslenzkra mynd-
höggvara og mun það vera
fyrsta samsýningin sem haldin
er á höggmyndum hér.
„Við fengum á sýninguna verk
eftir þá myndhöggvara, sem
mest hafa komið við sögu hér
og viljum þannig reyna að gefa
gott yfirlit yfir höggmyndalist
á ísiandi“, sagði Stefán Öm
Stefánsson forseti Listafélags
Menntaskólans er Myndsjána
bar að garði í sýningasal
Menntaskólans í fyrradag, en
þar voru skólanemendur, ráð-
gjafar þeirra og aðstoðarmenn
önnum kafnir við aö koma
höggmyndunum fyrir. Veröa
þær allar lýstar upp með ljós-
kösturum og verður ljósi í
ýmsum litum varpað á sum
listaverkanna og gefur það
þeim mjög sérkenniiegan og
skemmtilegan blæ.
„Mér finnst athyglisvert og
ánægjulegt aö það skuli vera
unga fólkið í Menntaskólan-
um, sem tekur sér fram um
að kynna íslenzkar höggmynd-
ir“. sagði einn listamannanna,
Ólöf Pálsdóttir, „Það er gaman
að lýsingunni, sem er nýstár-
leg og hefur slíkt ekki sést hér
fyrr — en lýsing sem þessi
getur haft það í för með sér
aö listaverk, sem eru ekkert
sérstök virðast mikil listaverk
upplýst, og það er i sjálfu sér
blekking".
Á höggmyndasýningunni eru
rúmlega 20 listaverk eftir Ás-
mund Sveinsson, Guðmund
Elíasson, Jón Gunnar Árnason,
Nínu Sæmundsson, Ólöfu Páls-
dóttur og Sigurjón Ólafsson.
„Undirbúningur að þessari
sýningu hefur staðið nokkuð
lengi yfir,“ sagði Stefán. —
„Okkur fannst höggmyndir hafa
verið hronrekur á listsýningum
og því full ástæða til að reyna
að stuðla að því aö meira verði
gert af þvf að kynna þær. Högg-
myndir fá t.d. ekki inni í Lista-
safni íslands. Sverrir Haralds-
son listmálari hefur verið ráðu-
nautur okkar og þegar við vor-
um búin að fá listaverkin fór-
um við út í bæ aði smala ljós-
kösturum og fengum svo Krist-
in ljósameistara í Þjóöleikhús-
inu til að hjálpa okkur aö koma
þeim fyrir. Það er gaman að
leika sér með ljósið og reyna
aö ná fram línuspili og formum
f myndunum meö þvf. Það er
hægt að lýsa listaverkin upp á
óteljandi marga vegu og það get
ur verið að hægt sé að gera það
betur en okkur tekst — það
er smekksatriði".
' „Ætlið þið að halda fleiri
sýningar?“
- „Við höfum mikil og stór
plön, það er ailt sem við segj-
um f bili“, sagði önnur kvenn-
anna f stjóm Listafélagsins,
Kristín Hannesdóttir. Auk
Kristfnar og Stefáns eru Mar-
grét Reykdal og Guöbjörn
Bjömsson >' stjórninni.
Sýningin verður opnuð kl. 3
f dag og verður opin kl. 3—10
alla daga til 4. marz. Sýninga-
salurinn er : nýbyggingu
Menntaskólans við Lækjargötu.
Listaverk Asmundar „í tröllahöndum“ fær nokkuð ógnþrunginn
blæ, þegar kveikt er á ljóskastaranum.
„Rallerína" Olafar Pálsdóttur er ein minnsta myndin á sýning-
unni, þótt I.ún sé ein stærsta mynddn í Myndsjánni f dag.
„Óskírð“ Jóns Gunnars Árnasonar er til sölu, en hún er gerð úr
elr, stáli, krossviö og næloni.