Vísir - 18.02.1967, Blaðsíða 12
12
V1SIR . Laugardagur 18. feDröar xww.
Kvikmyncíasaga
eftir Eric Ambler
Ég sá það. Hins vegar sá ég
ekki neina færa leið út úr þeim ó-
göngrnn.
Hann kveikti sér í annarri sigar
ettu.
„Áfram nú, Simpson. Þér voruð
einmitt komnir svo vel á veg áð-
an. Því ekki að halda þá leiö á
enda? Annaðhvort er öll þessi saga
yöar helber uppspuni, eða þér þeg
ið um eitthvert mikilvægt atriði.
Hvað er það? Ég er staðráöinn í þvi
að komast að því, en það yrði mun
auðveldara fyrir okkur báða að þér
létuð það uppskátt strax.“
Ég veit hvenær spil er tapaö. Ég
fékk mér enn vænan teyg af raki.
„Þá það. Hann hafði mig í greip
sinni eins og þér nú.“
„Hvernig þá?“
„Hafa grískir og tyrkneskir
gert með sér framsalssamning?“
„Hafið ekki neinar áhyggjur af
því. Ég er ekki lögreglumaður."
Og þá sagði ég honum loks upp
alla söguna varðandi ferðaávísan-
irnar.
Þegar ég hafði lokið henni, kink
aði hann kolli. „Ég skil,“ sagði
hann. Ekkert annað. Svo reis hann
á fætur, gekk fram að dyrunum og
drap högg á hurðina, sem var sam-
stundis hrundiö frá stöfum. Ég
heyrði að hann mælti eitthvað í
skipunarróm.
Ég þóttist því viss um, aö hann
ætti ekki frekar erindi við mig og
heföi skipað vörðunum að leiöa mig
á brott og loka mig inni í klefa. Ég
tæmdi því glasið til vonar o’g vara
og stakk eldspýtunum á mig í von
um, að mér tækist að halda þeim.
Þetta var einhver misskilningur
með klefann. Þegar hann hafði lok-
ið fyrirskipunum sínum, lokaði
hann dyrunum og kom inn að borð-
inu.
„Ég bauð þeim að koma með
einhvern ætan mat,“ sagði hann.
Hann settist ekki við borðið, en
gekk yfir að símanum og hringdi.
Ég kveikti mér í sígarettu og lét
eldspýtustokkinn aftur á sinn stað
á borðinu og ég held aö hann hafi
ekkert tekið eftir þvi. Ég heyrði að
hann bað um símtal við númer í
Istanbul og mátti heyra það á rödd
hans að það var áríðandi. Svo lagöi
hann á og kom aftur að borðinu
til mín.
„Nú skýrið þér mér frá öllu, sem
þér vitið um þerman Harper,“
sagði hann.
Ég ætlaði þá að hefja söguna
aftur frá upphafi, en þá kom á dag
inn, aö það voru einkum einstök
atriði, sem hann vildi vita nánar.
„Þér söigðuð að hann hefði talað
með málhreim, sem benti til þess
að hann væri Þjóöverji, sem lengi
hefði dvalizt í Bandarikjunum. Hve
nær komuzt þér að þeirri niður-
stöðu? Eftir að þér höfðuö heyrt
hann tala þýzku við bílasalann?"
„Nei, það staðfesti einungis grun
minn.“
„Ef þér heyróuö mig tala þýzku
viðstöðulaust — munduð þér þá
geta sagt um hvort hún væri móð-
urmál mitt eða ekki?“
„Nei.“
„Nú er illt að gera greinarmun
á framburði þýzkra á enskunni og
þegar tyrkneskir menn tala ensku.
Ef yður væri sagt, að Harper væri
tyrkneskur að uppruna, munduð
þér þá rengja það?“
„Kannski ekki ef það væri full-
yrt með sennilegum rökum. En
ekki er Harper tyrknes-kt nafn?“
„Ekki er það þýzkt?“
„Gæti verið enskusnúningur á
þýzka nafnmu Hipper,“ varð mér
að orði.
„Það gæti líka verið enskusnún-
ingur á tyrkneska nafninu Har-
bak.“ Hann yppti öxlum. „Gæti
lika veriö dulnefni, og er þaö senni
lega. En mér er það mjög í mun að
komast að raun um hvort maöurinn
gæti verið tyrkneskur."
„í sambandi við þessa pólitísku
hreyfingu, sem þér voruð að minn
ast á?“
„Auðvitað. Allar þessar sprengj
ur og öll þessi skotfæri. Sex harð-
snúnir menn, búnir þessum vopn-
um, gætu látið verulega til sín
taka, ef þeir gerðu óvænta árás
á einhvern mikilsverðan mann eða
menn. Stjómin, sem steypt var af
stóli, á sér enn marga áhangendur.
Þeir sætta sig illa við hina ströngu
stjóm hersins."
Ég lét ógert að geta þess við
hann, að ég væri ekkert hrifinn af
henni heldur þessa stundina.
„En við höfum að sjálfsögðu
strangar gætur á þeim,“ mælti
hann enn. „Ef þeir hyggjast láta
eitthvað til sín taka, verða þeir því
aö fá utanaðkomandi aðstoð. Þér
segið að maður þessi hafi veriö með
svissneska franka, vestur-þýzk
mörk og bandaríska dollara í fórum
-sínum?“
„Já.“
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR
úr harSplasti: Format innréttingar bjóða upp
á annað hundraS tegundir skópa og litaúr-
val. Allir skópar með baki.og borðplata sór-
smíðuð. Eldhúsið faost með hljóðeinangruð-
um stúlvaski og raftækjum af vönduðusfu
gerð. - Sendið eða komið með mól af eldhút-
inu og við skipuleggjum eldhúsið samstundis
og gerum yður fast verðtilboð. Ótrúlega hag-
stætt verð. Munið að söluskattur er innifalinn
í tilboðum fró Hús & Skip hf. Njótið hog-
stæðra greiðsluskilmóla og A___
lækkið byggingakostnaðinn. jKíjKrriici
HÚS & SKIP .hf .• LAUOAVIOI II • 8 IM1 1181»
„Það er að sjálfsögöu ekki ó-
hugsandi, að það sem hér er um
að ræða, sé aöeins lítið atriði í víð
tækri áætlun. Ef svo væri, hlyti
að vera allmikið fjármagn á bak
við það. Þessi Harper sparaði
hvorki fé né fyrirhöfn til að koma
þessum vopnum yfir landamærin.
Hver veit nema ...“
Síminn hringdi í þessu. Hann
þagnaöi í miðri setningu og spratt
á fætur til að svara. Það var auð-
heyrt að náðst hafði samband við
númerið, sem hann baö um í Istan-
bul. Ég skildi vart eitt orð af
hverjum tíu í því samtali, sem síð-
an fór fram. Hann var að skýra ein
hverjum yfirboðara sínum frá gangi
málsins, svo mikið skildi ég. Ég
heyrði n§fn mitt nefnt nokkrum
sinnum, hvað mér fannst ekki und-
arlegt, en síðan var það hann, sem
hlustaði á þann, sem var við hinn
enda línunnar, kom aðeins setningu
og setningu að endrum og eins. Ég
heyrði daufan óm af sterkri rödd
hins. Loksins þagnaði ómurinn,
Tufan spurði einhvers og fékk gagn
ort svar. Þar með var símtalinu
lokið, Tufan kvaddi með mikilli
virðingu og lagði á og varð litið til
mín um leið.
„Slæmar fréttir hvað yður snert-
ir, Simpson," mælti hann. „Deild-
arstjórinn finnur ekki hjá sér
neina löngun til að hjálpa yður á
einn eða annan hátt. Hann telur
brot yðar hið alvarlegasta.“
„Það þykir mér leitt að heyra.“
Annað gat ég varla sagt, að mér
fannst. Ég kyngdi vonbrigðunum
með vænum teyg af raki.
„Hann telur einnig, að þér hafið
ekki sýnt okkur nægan samstarfs-
vilja,“ mælti Tufan enn. „Mér var
engin leið að sannfæra hann um
hið gagnstæða."
„Ég hef sagt yður alít það, sem
ég veit.“
„Það er hins vegar ekki nóg. Við
þurfum að fá meiri vitneskju um
þennan Harper — hverjir eru í vit
orði með honum, hver þessi ungfrú
Lipp er og hverjir eigi að taka á
móti þessari vopnasendingu, trl
hvers á að nota þessi vopn. Ef þér
gætuð útvegað okkur þessa vitn-
eskju, eða veitt okkur aðstoð til
þess, þá mundi málið horfa öðru
vísi við.“
„Ein leiðin, sem hugsanleg er til
þess að afla þeirrar vitneskju er sú
að ég haldi áfram ferðinni til Istan
bul á morgun eins og ekkert hafi í
skorizt og setjist að í Park Hotel
og bíði þess að einhver hafi sam-
band við mig. Er það kannski það,
sem þér höfðuð í huga að fá mig
ti!?“
Hann settist gegnt mér og horfði á
mig. „Það er það, sem ég mundi ef
til vill segja yður að gera, ef ég
treysti yður. Deildarstjóri minn ef
ast hins vegar mjög um, að yður sé
treystandi. Það er að sjálfsögðu
fyrst og fremst fortíð yðar, sem því
veldur.“
„Hvernig kemur hún þessu við?“
„Er það ekki augljóst mál? Setj-
um sem svo, að þér gerið þessum
mönnum viðvart um, að leitað hafi
verið í bílnum? Setjum sem svo, að
þeir launi yður fyrir það?“
„Launi mér ... ?“
Ég gat ekki varizt hlátri. Senni-
lega hef ég verið orðinn talsvert
kenndur.
„Launi mér fyrir að segja sér að
þeir séu undir eftirliti? Er yður al-
vara. Þér minntuzt á harðsnúna
menn, sem væru reiðubúnir að
fórna Iffi sinu. Eins og er, veit ég
ekki neitt um neinn þeirra nema
Harper. Hann getur verið kominn
til Istanbul, en það er eins liklegt
að svo sé ekki. En einhver veröur
samt að hafa samband við mig þar
og taka við bílnum. Hvað geri ég
þá? Hvísla í eyra hans — þið verð-
ið að flýja eins og fætur toga? í
þeirri von, að hann stingi að mér
i vænum skildingi áður en hann
IF THEV DOWT
COME OOT SOOH,
VLL GO MAD
FROM THE
SUSPBNSE...
LA MUST CONVINŒ KRONA TD
TAKE CHIEFMUVIRO AND HIS VWZIRIS
TO HELP HAUL THE GOLD - AND
LEAVE JANE AS A 'SIAVS'.
I PONT DABE THINK. OFA.
GONSEQUENCES 1F KRONATA7LS
TO COOPERATE /
Tarzan hugsar: „Mér er nú farið að leiðast La verður að telja Krona á að láta Muviro Ég þori ekki að hugsa þá hugsun til enda,
biðin. Þau hljóta að koma út bráðum. höfðingja og menn hans bera gulliö með sér, að ráðagerðin mistakist".
og einnig að skilja Jane eftir sem ambátt.
tekur sprettinn. — Eða að
ég bíði þangaö til ég hef kom-
izt í samband við fleiri af samsær
ismönnunum og segi þeim fréttim-
ar, svo þeir géti látið þær berast?
Þér gerið yður ekki sjálfur slíka
FKjót hreinsun
Nýjar vélar
Nýr hreinsilögur
sem reynist frábærlega vel.
Hreinsum og nressum
allan fatnað á 45 mínútum.
Efnalaugin LINDIN,
Skúlagötu 51.
BALLET
LEI
JAZZBALL
FRLJARLEIKFIMI
Búningar og skór 1 úrvali.
ALLAR STÆRÐIR
STILLINGAR
Fél. ísl. bifreiðaeigenda.
starfrækir að Suðurlandsbraut
10 ljósastillingarstöð og er hún
opin frá kl. 8—19 daglega nema
laugardaga og sunnudaga. -
Sími 31100.
Fél. ísl. bifreiðaeigenda.
ARÞJÓN.
USTA
Fél. ísl. bifreiðaeigenda.
starfrækir vetrarþjónustu með
kranabifreiðum og jeppabifreið-
um fyrir félagsmenn sína. — |
Þjónustusímar eru 31100 og
33614. — Gufunesradíó simi
22384, mun jafnframt aðstoöa
við að koma skilaboðum til
þjónustunnar.
Fél. ísl. bifreiðaeigenda. j
! VETR
SNYRTISTOFA
Sími 13645
HLI