Vísir - 11.04.1967, Síða 1

Vísir - 11.04.1967, Síða 1
• » V«.- • «*• • • *> ' <$t • VISIR 57. árg. — Þriðjudagur 11. apríl 1967. - 82. tbl. Samhljóða grunntilboð hjá 4 tryggingafélögum Innkaupastofnun rikisins aug- starfsmanna o« bárust tilboð frá lýsti í haust eftir tilboðum í 8 tryggingarfélögum. Það hefur ferða- og slysatryggingar ríkis- vakið athyglj að fjögur þcssara Þjófamir höfðu lagt undir sig memlamt hús við Ártúnshöfða tilboða hljóða upp á nákvæm- lega sama grunnverð, en hins vegar dálítinn afsláttarmismun. Fjögur tilboðanna virðast ekk- ert eiga sameiginlegt. Útboðið var i tveimur liðum, annars vegar var auglýst eftir tilboðum í ferðatryggingu 100 ótiltekinna manna. Tryggingin sem sagt ekki miðuð við neina sérstaka, heldur nær hún tii þeirra manna, sem ferðast á veg um ríkisins hverju sinni, 100 eða færri. Hér er um nýlundu Framh. á bls. 10 i Fleygðu öðrum peningaskápnum í fjöru í Hvalfirði en fluttu hinn í mannlausa húsið — Fatataska merkf öðrum innbrotsÞjófnum kom up p um þá Eins og lesendur muna, var brotizt inn í bækistöðvar Lands- simans við Sölvhólsgötu, að- faranótt föstudagsins 31. marz s.l. og stolið þaðan peninga- skáp sem m. a. voru í um 90 þúsundir króna. Aðfaranótt sunnudagsins 2. apríl var brot- izt inn á skrifstofur Alliance h.f. og þar var einnig stolið peningaskáp sem í voru skjöl fyrirtækisins en lítið eða ekkert af peningum. Þjófamir náðust að kvöldi sunnudagsins á veit- ingahúsi í borginni og hafði þeim tekizt að eyða peningun- um að mestu. Samkvæmt upplýsingum Egg erts Bjarnasonar hjá rannsókn- arlögreglunni, óku þjófarnir öðrum skápnum upp í Hvalfjörð og hentu honum þar niður í fjöru, en hinum skápnum komu þeir fyrir í mannlausu húsi inn viö Ártúnshöfða. Þetta hús hef- ur staðið autt í vetur og munu þjófarnir hafa haft einhverja nasasjón af því, og lagt það undir sig. Þeir voru svo óheppn- ir, að eigandi hússins, Hilmar Mýrkjartansson bifreiðarstjóri, kom í hús sitt á laugardeginum og sá hann þá að útihurðin var brotin. Þegar inn kom, sá hann peningaskápinn og fleiri að- skotahluti, meðal annars verk- færatösku og tösku með fötum í og var hún merkt. Þjófarnir höfðu lagt undir sig eitt her- bergið í húsinu, en ekkert hreyft í öðrum herbergjum og ekkert höföu ,þeir skemmt, nema úti- dyrahurðina. Þjófarnir hafa báðir gerzt brotlegir við lögin áður og voru nýlega komnir austan af Litla- Hrauni, og nú mega þeir búast við að flytjast þangað austur aö nýju. Stjórnarfrumvarp um kjarasamninga opinbera starfsmanna Ríkisstjórnin lacöi fram á AI- þingi í gær frumvarp til laga um breytingu til bráðabirgða á lögum kjarasamninga opinberra starfs- manna. í frumvarpi þessu er gert ráð fyrir framlengingu uppsagnar- frests kjarasamninga og að frestur aöilja til að senda Kjaradómi grein- argerðir framlengist. Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja er einhuga samþykk frumvarpinu og þessari málsmeð- ferð. Þetta hús notuðu innbrotsþjófarnir við iðju sína. Dcstf úr stiga á leií um borð í skip sitt Það slys vildi til um miðnætti í nótt, að skipverji á brezka skipinu Robert Hewett, sem liggur hér við Ægisgarð, datt 3—4 metra niður úr stiga, þegar hann var á leið um borð. Hann og skipsfélagi hans | gengu sem leið lá til lögreglustöðv- arinnar og skýrðu frá atvikinu. — Kvartaði sá er datt undan verk í baki og var hann fluttur á Slysa- varðstofuna, þar sem hann lá i nótt. Moður finnst lútinn j í höfninni Rétt fyrir klukkan 3 í nótt komu fjórir menn á Lögreglustöðina og kváöust hafa séð mann á floti í höfninni, rétt við Grandagarð. Fór lögreglan strax á vettvang og tókst fljótlega aö ná manninum upp úr sjónum. Var hann þá lát- inn. Armbandsúr á handlegg mannsins hafði stöðvazt, þegar klukkuna vantaði 15 mínútur í eitt og eru því líkur fyrir því, að maðurinn hafi legið 1 höfninni í nokkurn tíma. Maðurinn látni, tæplega sextugur að aldri, var skip- verji á mótorbátnum Hafnarberg, sem er hér 1 höfn. 474 milljón kr. greiðslu- afgangur ú árinu 1966 Úr ræðu fjármálaráöherra um afkomu ríkisins Magnús Jónsson, fjármálaráð- herra, flutti í sameinuðu þingi á laugardaginn s. 1. ræðu, bar sem í'.ann gerði grein fyrir fjárhags- afkomu ríkissjóðs árið 19GG. Greiðsluafgangur ríkissióðs á árinu 1966 varð, skv. bráðabirgðayfir- iiti, 474 milliónir kr. og heildar- staða ríkissjóðs hjá Seðlabankan- um hafði batnað um 331,2 millj- ónir kr. Tekjur á rekstrarreikningi urðu 4.642,2' milljónir kr., en þaö var 847,8 milljónum meira en áætlað hafði verið. Gjöld á rekstrarreikningi uröu I 3.928.7 milljónir kr., sem var 320,5 milljónum meira en áætlað hafði verið. Árið 1962 varð greiðsluafgangur hjá ríkissjóöi 101 millj., 1963 varð hann 124 millj., en árið 1964 varð hins vegar greiðsluhalli að upp- hæö 257,8 millj. og 1965 varð gnn greiðs!uhalli,90.7 millj. Sá halli hefur nú verið jafnaöur. Það vakti athygli þeirra þúsunda, sem horfðu á handknattleiks- keppni islendinga og Svía, að með Lúðrasveitinn! Svan lék lítil stúlka á konsertflautu. Þessi stúlka er aðeins 11 ára gömul skóla- stúlka i Barnaskóla Garðahrepps og heitír Guðríður Valva Gísla- dóttir, en faðir hennar, Gísli Ferdinandsson, leikur einnig í hljóm- sveitinni á sama hljóðfæri og hefur gert í 15 ár. Guðríöur byrjaði 10 ára gömul að læra á blokkflautu, en fékk síðan meira verkfæri upp í hendumar sem jólagjöf frá foreldrum sínum. Myndin er af Guðríöi Völvu á sínum fyrstu tónleikum með lúðrasveitinni i Laugardalshölllnni á landsieiknum. l\

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.