Vísir - 11.04.1967, Síða 3

Vísir - 11.04.1967, Síða 3
VÍSIR ~ ~innim— Þriðjudagur 11. apríl 1967. Kvenfélög sókn- anna í Reykjavík — Spjallaö við formennina um starfsemina Eftir því sem Kvennasíðan hefur komizt næst er tala kven- félaga, sem starfandi eru í landinu, farin að nálgast 200. Sum þeirra eiga langan starfsferil að baki, en önnur eru ný- stofnuð og eru rétt að byrja að vinna að þeim verkefnum, sem þau ætla að taka að sér. Málin, sem kvenfélögin hafa á stefnuskrá sinni, eru mörg og ólík, - einn félagahópurinn vinnur fyrir kirkjuna, annar fyrir stjórnmálafélög, þriðji fyrir líknarfélög og þannig mætti lengi telja. Flest munu þau kven- félög vera, sem kenna sig við prestaköllin og er aðalverkefni þeirra að búa kirkjurnar að innan, en auk þess beita þau sér fyrir margþættu starfi í sinni sveit eða sókn. Til þess að gefa nokkra hugmynd um störf þessa hóps átti Kvennasíðan tal við formenn sóknakvenfélagánna í Reykjavík, en þau eru átta að tölu. Birtast fjögur þeirra í dag, en hin fjögur á Kvennasíðunni á fimmtudag. Einhver kann að sakna Dóm- kirkjusafnaðarins, en þar er ekki starfandi kvenfélag, heldur aðeins kirkjunefnd kvenna, sem starfar á líkum grundvelli og kvenfélögin. Vivan Svavarsson, formaður Kvenfélags Laugarnessóknar. — Kvenfélag Laugamessókn- ar var stofnað 6. apríl 1941, þannig að þaö átti aldarfjórö- ungsafmæli fyrir einu ári. Þeg- ar félagiö var stofnað var sókn- in miklu stærri en hún er nú, henni hefur oft verið skipt og voru Langholtsprestakall, Há- teigssókn, Ásprestakall og Bústaöasókn áður í Laug- arnessókn. Hefur félögum því fækkað og eru konurnar nú um 100. Margar af þeim kon- um, sem vom forystukonur í kvenfélagi Laugarnesssóknar hafa síðan orðið kiami í öömm yngri kvenfélögum. Það hefur lítið verið gert að því að reyna að fjölga konunum aftur því aö félagsheimilið undir kór kirkj- unnar er ekki stórt. — Á fyrstu árum kvenfélags- ins beindist starfsemin að því að safna fé til kirkjubyggingar- innar og var farið ýmsar leið- ir til fjáröflunar. Lögðu félags- konur mikiö á sig og gengu m. Vlvan Svavarsson a. i hvert hús í sókninni söfn- uðu fé og skráðu allir í sókn- inni nöfn sín inn í bók, sem nú liggur frammi í anddyri kirkj- unnar. — Markmið félagsins er að sjálfsögöu aö styðja kristilegt safnaðarlíf og vinna að málefn- um kirkju og safnaðar. Eru haldnir fundir fyrsta mánudag hvers mánaðar yfir vetrarmán- uðina. Eru þeir með kristilegu sniði en jafnan til fróðleiks og skemmtunar. Félagið hefur hald iö föndumámskeiö, t. d. var námskeið í ryahnýtingu í vetur og einnig vora nokkrar konur í postulínsmálun. Á sumrin liggja fundir niöri, en einu sinni á sumri förum viö i ferða- lag. Félagið hefur reit í Heiðmörk og höfum við fariö þangaö í gróöursetningarferð á hverju vori allt frá því að gróðursetn- ing hófst þar. Yfir sumarmánuöina eru þó haldnir saumafundir hálfsmán- aöarlegn þar sem unnir em mun ir á basarinn sem félagiö held- ur árlega til fjáröflunar. Aðrar fjáröflunarleiðir nú eru kaffi- sala sem höfö er á uppstigning ardag og merkjasala annan sunnudag í febrúar. Ágóðinn af merkjasölunni fer _alltaf í að styöja eitthvað ákveölð, t. d. rann hann til Hnífsdalssöfnun- arinnar í vetur. __ Kvenfélagið hóf árið 1964 í samráði viö Elliheimiliö að sjá um íótaaðgeröir fyrir aldrað fólk. Er þaö vikulega og hefur aðsóknin veriö mjög mikil. í vetur var svo byrjað á að veita öldruðum konum hárgreiðslu við lágu verði. — S. 1. tíu ár hefur skemmtun fyrir aldraö fólk veriö fastur liður hjá kven félaginu og eru skemmtanirn- ar haldnar í Laugarnessskóla Höfum við mætt mikilli velvild skólastjóra og húsráöenda skól- ans og hafa skemmtanirnar ver ið sérlega ánægjulegar. — Næsta mál á dagskrá í sam bandi við aldraða fólkið í söfn- uðinum er að við ætlum aö reyna að koma á eins konar þjónustu við þaö — heimsækja fólk sem býr eitt út af fyrir sig, hafa samband við það og að- stoða það ef það þarf á aðstoð að halda. Erum við að bíöa eft- ir að fá íbúaskrá hjá ellimála- fulltrúa borgarinnar, en þegar við höfum fengið hana vonumst við til að þessi starfsemi hefjist sem fyrst. Ingibjörg Thorarensen. Ingibjörg Thorarensen, for- maöur Kvenfélags Neskirkju. — Kvenfélag Neskirkju, sem í lögum félagsins heitir Kven- félag Nesprestakalls var stofn- aö af sóknarprestinum, séra Jóni Thorarensen 23. nóvember 1941, nokkru eftir að sóknin var stofnuð. Hefur starf félags- ins vaxiö mikið. Fyrstu árin var aðaláherzlan lögð á fjáröflun en upp á síðkastið eftir að kirkjan var fullbúin hefur heldur veri'ö slakað á henni og félagskonur snúið sér meira aö menningar- og mannúöarmálum. — Félagsstarfsemin hefst í október á haustin og stendur fram í maí og eru félagsfundir haldnir einu sinni í mánuði. Hér áður fyrr, meðan kirkjan var ennþáT byggingu þurfti oft að boða til funda yfir sumartím- ann þegar taka þurfti ákvaröan ir um mikilvæg mál sem ekki gátu beðið. Starfsemin liggur þó ekki alveg niðri á sumrin því að við förum í eitt feröalag á sumri og stundum förum við í berjaferðir á haustin. — Á félagsfundum ræöum við aö sjálfsögðu þau mál, sem liggja fyrir í hvert skipti en auk þess er haft eitthvaö sem er konunum til skemmtunar og fróðleiks. Hafa þar margir veitt okkur lið og góðir listamenn komið og skemmt okkur með söng og annarri skemmtun. í nóvember höldum við upp á af- mæli félagsins með sérstakri hátíð. í nóvember höfum viö basar, hlutaveltu og seljum kaffi. Aðrar helztu fjáröflunar- leiðir eru útgáfa korta og merkjasala. Um jólin færum viö öldruðu fólki jólagjafir og einn ig efnalitlu fólki, og þegar slys eða sérstaka erfiðleika hefur borið að höndum hefur félagið oft lagt fram fé og veitt sam- skotum styrk. — Kvenfélagið heldur skemmtun fyrir aldrað fólk í sókninni í janúar og síðari hluta vetrar er haldinn spila- fundur. Á vorin höfum við svo kaffidag, seljum kaffi og kökur til fjáröflunar. Allan apríl leggja félagskonur fram mikla vinnu í sambandi við fermingar kyrtlana og hefur kvenfélagið séð alveg um þá eins og kirkju- kvenfélögin yfirleitt. Starfsemi kvenfélagsins fer öll fram í félagsheimilinu í Nes kirkju en það var tekið í notk- un fyrir rúmum áratug. Fram til þess var félagið sífellt á hrakhólum meö fundi og aðra starfsemi og má segja aö þeir séu fáir samkomusalirnir í Reykjavík sem félagið hefur ekki einhvern tíma fengið afnot ar. Aðstaðan í félagsheimilinu er öll hin bezta og hefur kven- félagið séö um aö búa þaö ööru en húsgögnum — sett upp gardínur, gefið teppin, píanóið o. fl. Eldhús er í félagsheimil- inu og er hægt að framreiða kaffi fyrir 300 manns. Standa félagskonur þar fyrir veitingum og gefa félaginu þá það, sem inn kemur fyrir kaffi og kökur. - Kvenfélagið hefur ekki að- eins gefiö hljóðfæri í félags- heimiliö heldur og pípuorgeliö í kirkjuna sjálfa. Einnig hefur það gefiö hökla, og rikkilín og mest allt silfur kirkjunnar svo að eitthvað sé nefnt. Ferming- arkyrtlana gaf það eins og/ég sagði áðan og einnig kyrtlana sem söngfólkið klæöist. — Fjórar konur hafa gegnt formannsstöðu frá stofnun: Ég var fyrsti formaöurinn og hef veriö það í 19 ár í þrem áföng- nm, Áslaug Sveinsdóttir var í eitt ár, Ólafía Marteinsson í 2 ár og Halldóra Eyjólfsdóttir í 4 ár. — Við teljum það forrétt- indi að hafa starfað fyrir gott málefni, og með þakklæti get ég minnzt á ágætt samstarf: Þóra Einarsdóttir, formaður Kvenfélags Hallgrímskirkju. - Kvenfélag Hallgrímskirkju var stofnað 8. marz 1942, ári eftir að sóknin var stofnuð Verð ur afmælisins minnst 12. apríl. Fél. varð strax mjög fjölmennt og voru konur flestar um 300, en nú eru margar látnar og em félagskonur nú um 200. — Þegar félagið var stofnaö komu í það konur úr allri Reykjavík því að kirkjan er landskirkja og konur mega því vera í kirkjukvenfélögum utan sinna sókna. Sigurgeir heitinn biskup var okkar aðalráðgjafi við stofnun félagsins. — Guðrún Jöhannsdóttir skáldkona frá Brautarholti var fyrsti formaöur félagsins en er 'hún varö að hverfa frá sök- um veikinda tókum við frú Magnea núverandi biskupsfrú við í sameiningu í eitt ár. Séra Sigurbjörn var þá annar sókn- arpresturinn. Gegndi Magnea síðan formennsku í eitt ár, þá ég i 7 ár, Guörún Ryden í 10 ár og 1962 tók ég við aftur. — Kvenfélagið var, eins og önnur kirkjukvenfélög fyrst og fremst stofnað til þess að sjá um innri búnaö kirkjunnar, en áður en hægt var að fullnægja því verkefni varð kirkjan aö 3 rísa af grunni. Hefur kvenfé- lagið því oft lagt fé beint í byggingu kirkjunnar og samtals nemur það 5% af byggingar- kostnaðinum til þessa. Kvenfé- lagið hefur gefið bæði orgel og messuskrúða í litlu kirkjuna sem notuð er, en hinn gullfall- ega svarta hökul, sem aðeins er notaður á föstudaginn langa saumaði og gaf frú Unnur Ól- afsdóttir. — Kirkjunni hafa bor izt margir aðrir fallegir munir að gjöf. — Á fyrstu árum kvenfélags- ins héldum við tvö sumur úti- skemmtun í Hljómskálagarðin- um í fjáröflunarskyni og var mjög skemmtilegt að vinna við þær. í síðara skiptið höfðum við skemmtunina tvo daga í röð og höfðum við 37 þúsund upp úr og þaö var góður pen- ingur í þá daga. Þetta var á stríðsárunum og lánaði herinn okkur tjöld — fluttar voru ræö Framh. á bls. 13. Laufey Eirí'ksdóttir. Laufey Eiríksdóttir, formaöur kvenfélags Háteigssóknar. — Kvenfélag Háteigssóknar var stofnað fyrir 14 árum, 17. febrúar 1953 nokkrum mánuð- um eftir aö sóknin var stofn- uð. Tilgangurinn var, eins og stendur I lögum félagsins að efla kirkjulegt safnaðarstarf og vinna að nauðsynjamálum safn aðarins eins og hentugast er á hverjum tíma. - Félagsfundir eru haldnir mánaðarlega yfir veturinn, i fyrstu fyrsta þriðjudag hvers mánaðar, nú fyrsta fimmtudag. Hafa þeir ávallt verið haldnir i Framh. á bls. 13.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.