Vísir - 11.04.1967, Side 16
VISIR
ÞriSjudagur 11. apríl 1967.
m r • r
Sýmr i
Bogcssnlnunt
S.l. laugardag opnaði Gunnar
Friðriksson sýningu á vatnslita
myndum í Bogasal Þjóðminja-
safnsins. Á sýningunni eru um
þrjátíu og fimm myndir.
Gunnar Friðriksson er ætt-
aður frá Sauðárkróki, sonur
hjónanna Frlðriks Jiilíussonar
og Fiólu Jónsdóttur. Þetta er
fyrsta sýning Gunnars, en hann
hefur stundað nám í Myndlista-
og handíðaskólanum og Mynd-
listaskólanum í Reykjavik.
Sýningin verður onin næstu
viku kl. 2—10 eftir hádegi.
ÞEIR TALA
í KVÖLD
□ Eldhúsdagsumræður verða í út-
varpinu í kvöld og byrja kl. 8.
Umræðumar halda svo áfram á
fimmtudagskvöld. Röð flokk-
anna í kvöld er þessi: Alþýðu-
bandalag, Sjálfstæðisflokkur,
Framsóknarflokkur, Alþýðu-
flokkur.
□ Ræðumenn Alþýðubandalagsius
verða þessir: I fyrri umferð
Lúðvík Jósepsson og í seinni um
ferð Geir Gunnarsson og Björn
Jónsson. Ræðumenn Sjálfstæð-
isflokksíns verða þessir: í fyrri
umferð Bjami Benediktsson og
£ seinni umferð Ingólfur Jóns-
Framhald á bls. 10.
Elisabeth Taylor og Paul Scoffield
fengu Oscarsverðlaunin í ár
Oscarsverðlaunum hef-
ur verið úthlutað og
fékk Elisabeth Taylor
þau sem bezta leikkon-
an fyrir hlutverk sitt í
„Hver er hræddur við
Virginiu Woolf?“, en
Paul Scoffield hlaut verð
launin sem bezti karl-
leikarinn.
Þau em bæði brezk. Hún hef-
ur fengið Oscars-verölaun áður,
en hann aldrei fyrr. Hlaut hann
nú verðlaunin fyrir leik sinn í
kvikmyndinni „A man for all
seasons“, sem var valin bezta
mynd ársins. Kvikmyndaleik-
Paul Scoffield.
konan Wendy Miller tók viö
verðlaununum fyrir hans hönd
og lýsti hún honum sem einum
„vingjamlegasta og vinsælasta
leikara lands míns“.
Liz Taylor er sjötta konan,
sem hlýtur Oscarsverölaun. I
fyrra skiptið hlaut hún þau fyr-
ir hlutverk sitt í kvikmyndinni
„Butterfie1d“.
Tugmilljónir manna fylgdust
með athöfninni, sem fór fram
í Santa Monica i Hollywood, en
athöfnin hófst 2 klst. eftir að
aflétt var verkfalli sjónvarps-
manna, sem háö var vegna dei'lu
um kaup og kjör og stóð 13
daga. Anna Banccroft tók viö
verðlaununum fyrir hönd Elisa-
beth Taylor. „Ég er sannfærð
um, að hún er stolt af þessum
sigri“, sagöi Anna. Kvikmyndin
„Hver er hræddur við Virginiu
Woolf?" hlaut alls 13 verðlaun.
Patricia Neal tók við verðlaun
um fyrir beztu erlendu myndina
— hina frönsku kvikmynd
Claude Lelouch’s „Maður og
kona“ en handritið að kvik-
myndasögunni var líka efst á
lista sem handrit skrifaö sér-
staklega fyrir kvikmynd.
Endurskoðun vegaáætlunar fyrir
árin 1967 og '68 lögð fyrir Alþingi
Lögð var fram á Alþingi í gær
þingsályktunartillaga um endur-
skoðun vegaáætlunar fyrir árin
1967 og 1968. Þingsályktun þessi
er flutt samkvæmt því, se fyrir
er mælt í 17. gr. vegalagu -:n þar
er kveðið svo á, að vegaáætlun
skuli endurskoðuð, þegar hún hef-
ur gilt í tvö ár.
Frá því vegaáætlun fyrir árin
1965—1968 var samþykkt, hefur
ráðstöfunarfé vegasjóös verið auk-
ið með breytingum á vegalögum.
Af þessu, svo og af verðlagsbreyt
ingum, leiðir, að bæöi tekna- og
gjaldamegin í áætlur. fyrir árin
1967 og 1968 þarf að gera leið-1
1 réttingar. i
Stórtjón hefur orðið á þessum j
vetri á ýmsum vegamannvirkjum j
af völdum veðra og náttúruham-'
fara. Má þar t. d. nefna brýrnari
á Jökulsá á Sólheimasandi og Eld-
vatni. Verður því ekki hjá því kom
izt að taka viö endurskoðun vega-1
áætlunar nú, upp í gjaldaáætlun
verk, aðallega brúargerðir, sem
ekki eru í gildandi vegaáætlun.
Kommúnistar sigruðu
í Alþýðubandaiaginu
Kommúnistar báru algeran sii;-
ur af hólmi á stormasömum funuj
í Alþýðubandalagi Reykjavíkur
um helgina og komu mönnum sín-
um í öll mikilvægustu sæti fram-
boðslistans í Reykjavik. Fékk listi
þeirra 254 atkvæði en listi Hanni-
balista 81 atkvæði. Varð mikið upp-
nám á fundinum, margir sögðu sig
Surtur og Surtla
ií
! !
í I
Senn fer að líöa að sauðburði
og þá hefst skemmtilegur tími
fyrir börnin í sveitinni. Flestöll
kaupstaðaböm fara á mis við
þennan skemmtilega tíma, en þó
eru nokkrir fjárbændur stað-
settir Snnan bæjarmarkanna sem
gaman er að heimsækja og fá
að Iíta u iömbht smá „með bláa
grön og klaufalega fætur“. —
Hjá einum fjárbóndanum f
Kópavogi fæddist lamb þann
fyrsta apríl síðastliðinn og var
það svört gimbur, sem átti svo
snemma frumburð sinn. VSð sjá-
um hina stoltu móður með af-
kvæmi sitt á meðfylgjandl
mynd. Lambið heitir Surtur,
móðirin Surtla.
úr bandaiaginu og er nú heitara í
kolunum en nokkru sinni fyrr.
Efstir á fellda listanum voru:
1. Magnús Kjartansson. 2. Einar
Hannesson, 3. Eðvarð Sigurðsson.
4. Jón Baldvin Hannibalsson.
Á samþykkta listanum voru þess-
ir aðalmenn : 1. Magnús Kjartans-
son. 2. EÖvarð Sigurðsson. 3. Jón
Snorri Þorleifsson. 4. Ingi R. Helga-
son. 5. Sigurjón Þorbergsson. 6.
Adda Bára Sigfúsdóttir. 7. Þórar-
inn Guðnason. 8. Jón Tímóteusson
9. Snorri Jónsson. 10. Sigurjón Pét-
ursson, 11. Inga Huld Hákonardótt-
ir. 12. Sverrir Kristjánsson.
Elizabeth Taylor —
Hver er hræddur .. ?
Geta fengiS öll
lyf erlendis frá
Einn af stjórnarmönnum Apó-
tekarafélags íslands sagði við blaöa
mann Vísis í morgun að engin
hætta væri á að hörgull vrði á lyf j-
um þó að lyfjafræðingar væru í
verkfalli.
Sagði hann að apótekin hefðu
fullan rétt á að kaupa hvaða lyf
sem væri erlendis frá og mundi það
gert meðan þörf þætti.
Varðandi ummæli í einu morgun-
blaðanna í morgun þar sem haft
er eftir Iyfjafræðingum að lyfja-
fræðingar hefðu eftirlit með þeim
sendingum, sem koma erlendis frá,
kvað hann það rangt. Pharmaco,
innkaupasamband apótekara,
mundi notfæra sér þann rétt sem
það hefur til innflutnings lyfja.
Þorvaldur Ari í
úframhaldandi
gæzluvarðhald
Gæzluvaröhaldstími Þorvalds
Ara Arasonar lögfræðings var orð-
inn útrunninn og hefur hann veriö
úrskurðaður í áframhaldandi gæzlu
varðhald í allt að 60 daga.
Undanfarið hefur farið fram á
honum geðrannsókn, sem senn fer
nú að ljúka. Er búizt við að henni
verði lokið £ næstu viku.
BINGð
Hvatarkonur halda Bingó-kvöld
I kvöld í Sjálfstæðishúsinu í Reykja
vik og hefst það kl. 20.30 og er
aðgangur ókeypis og friáls öllum
meðan húsrúm ieyfir Vinningar
eru allir mjög eigulegir, flugferð
til Kaupmannahafnar og til baka
er stærsti vinnipgurinn, en aðrir
vinningar eru húsgögn, málverk,
hárþurrka og karlmannsúr að ó-
gleymdum súrhvalnun. góða, sem
hefur verið mjög vinsæll vinningur.