Vísir - 13.04.1967, Page 7
V1SIR . Fimmtudagur 13. april 1967.
7
morgun
útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd0 í morgún útlönd
/ietcongliðar sprengja 250 metra
brú skammt frá Ða Nang
Vietcong-liðar sprengdu í nótt í
loft upp brú á einni mikilvægustu
flutningaleið Bandarikjahers og her
sveita Suður-Vietnam í norðurhluta
eða á aðalflutningaleiðum til Da
Nang herstöðvarinnar bandarísku.
Brú þessi er mikið mannvirki,
um 250 metra löng, skammt fyrir
norðan Da Nang, og var farið um
hana milli Da Nang og herstöðv-
anna við Hue, Cong Ha og Gio
Linh.
Þegar brúin var sprengd skömmu
fyrir birtingu í morgun hrundu
stöplar og yfirbygging miðhtuta
brúarinnar.
Bandarískir landgönguliðar voru
á verði þarna aö vanda og þar var
brynvarin bifreið með leitarljósi,
en varðmennirnir urðu eirtskis var-
ir.
Fundizt hafa lík þriggja Vietnam-
manna, og er talið, að þeir hafi
beðið bana af völdum prengingar-
innar, — ef til vill verið í flokkn-
um, sem vann skemmdarverkið.
Iöna og Sovétríkin gera
sáttmála um vopnaflutning
til N.-V. og afhendingu.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild
um hafa Sovétríkin og Kína gert
með sér sáttmála um flutning á
hergögnum um Kína og afhendingu
á þeim I hendur Norður-Vietnam-
manna. Samkvæmt sáttmálanum
taka Norður-Vietnammenn nú við
hergögnum á landamærum Sovét-
ríkjanna í stað þess að þeir áður
tóku viö þeim á landamærum N.-V.
og Kína.
KRA TAR Á UNDANHALDI
Spáð ósigri krata i kosningunum i London
i dag eftir 30 ár
1 dag beinist áhugi allra Breta
að kosningunum í London, en þar
verður kosin ný borgarstjórn, en
don í 33 ár, en nú er talið tvfsýnt,
að ekki sé meira sagt, að þeir haldl
yfirráðum og fari áfram með mál
kratar hafa farið með völd í Lon- 8 milljóna manna, sem þarna búa,
Er heim kom fékk
Humphrey klapp
á kinnina...
Skoðanakannanir hafa leitt í ljót,
að íhaldsmenn og frjálslyndir virð-
ast geta gert sér miklar vonir um
fylgisaukningu, og menn búast jafn
vel við á grundvelli skoðanakann-
ananna, að kratar tapi.
Bæjar- og sveitarstjórnarkosning-
arnar hófust í byrjun vikunnar og
í dag er mesti kosningadagurinn,
vegna þess aö kosið er í London.
Þar sem úrslit eru kunn frá fyrstu
tveimur kosningadögunum, kemur
sama fram og í nýlegum auka-
kosningum til þings, aö kratar eru
á undanhaldi. Og mikla athygli vek-
ur, að eins og í Skotlandi, eru þjóð-
ernissinnar í uppgangi miklum í
Wales.
^ Heilsu dr. Adenauers fyrrver-
andi kanslara Vestur-Þýzkalands
fer mjög hnignandi. Hann þjáist af
bronkitis.
► Indland hefur heiðrað U Thant
meö Nehru-verðlaununum, en þau
nema um 55.000 rúpíum, eða um
það bil 330.000 ísl. krónum. Þau
eru veitt U Thant í viðurkenningar
skyni fyrir framlag hans til friðar-
mála.
► Sterlingspund hækkaði í gær á
peningamarkaðinum í London og
kennir hér áhrifa fjárlagafrum-
varpsins.
Bandarísk blöð gera sér fyllilega,
grein fyrir, að Vletnamstefna:
Bandaríkjastjómar á stöðugt vax- í
andi óvinsældum að fagna í Evrópu i
löndum, og að Evrópuheimsókn
Humphreys varaforseta varð tilefni |
þess nær alls staðar, bar sem hann
kom, að æsingamenn meðal þeirra,
sem stefnunni eru andvígir, létu
andúðina í ljós með ýmiss konar
aðgerðum, sem eru skaðlegar áliti
Bandaríkjanna. Skemmtilegt er það
ekki, að bar sem sjálfur forseti
r.T-daríkianna kemur, eins og nú
i Uruguay, og Humphrey í höfuð-
bcrgum Vestur-Evrópu séu kallaðir
norð’ingjar og öðrum slíkum nöfn-
um af æsingamönnum. Washington
Daily News birtir skopteikninguna
af Humphréy, þar sem hann mætir
leiðtogum V.-Evrópu og segi.r
kampakátur: Huggulegt að hJtta
gamla vini... en þeir jafnsúrlr á
svip og áður. En er heim kom var
Johnson mættur til að fagna Hump-
hrey og móttökunefnd var bar og
forsetafrúin klappað! Humphrey á
kinnina...
► í frétt frá Saigqn í gær var sagt,
að skemmdarverkamenn hefðu
reynt að sökkva brezku olíuskipi
í hafnarbænum Nha Trang, en.til-
raunin misheppnaðist vegna þess
að búið var aö losa mestan hluta
farmsins. Olíuskipið —- AMASTRA
— er eign Shell.
► Yfir 50 stúdentar voru hand-
teknir í gær í Madrid. Um 100
stúdentar kveiktu í dagblööum fyr-
ir framan læknadeildina og gerðu
árás með grjótkasti á lögreglu-
bíla er þeir komu á vettvang. Lög-
reglan umkringdi hás'kólann og
framkvæmdi svo handtökumar.
► Spánarstjóm bannaði í gær allt
flug yfir Algeziras-svæðið —\ sem
nær að brezku nýlendunni Gíbraltar
og var tekið fram, að bannið væri
til komið af öryggisástæðum. —
I Madrid eru menn þeirrar skoðun-
ar, að hér sé um að ræða nýjan
þátt f baráttunni til þess að fá
yfirráö í Gíbraltar.
► 16 svissneskir skemmtiferða-
menn voru meðal þeirra, sem fór-
ust í flugslysi í Alsfr í fyrradag.
Franskur maður, tveir Svisslending
ar og einn Alsírmaður komust lífs
af.
► Lögreglustjórinn í Aþenu og 12
menn aðrir meiddust í götuóeirð-
um í fyrrad. Hafði lögreglunni og
verkfallsmönnum í byggingaiðnað-
inum lent saman.
Tveir fyrrverandi ráðunautar
Nkrumah fyrrv. forseta Ghana
hafa verið dæmdir í 7 ára betmn-
arhússvinnu fyrir að hafa stolið
um 170.000 sterlingspundum. Báðir
neituðu að vera sekir og áfrýjuðu.
^ Yfirmaður skrifstofu sovézka
flugfélagsins Aeroflot f Hollandi
var handtekinn í gær grunaöur um
njósnir. Hann var handtekinn f
Amsterdam. Sovézka sendiráðiö hef
ur mótmælt handtökunni harðlega.
Maöurinn, Glukhov, var stöðvaöur
af þremur mönnum á götu úti, og
reyndu þeir að draga hann með sér
inn í bíl. Fólk þusti að og ætlaði
að hiálpa manninum, þar sem það
hugði vera um mannrán að ræöa,
en mennirnir þrír sýndu þá skil-
ríki fyrir, að þeir væru leynilög-
reglumenn. Lögregla kom þeim svo
til aðstoðar og var ekið burt með
Rússann í aftursætinu og sátu tveir
menn á honum, segir í NTB-frétt.
Glukhov er um þrítugt.
► Löigreglan í Kaupmannahöfn
handtók í gær 23 ára gamlan Holl-
ending, sem reynt hafði að smygla
2Y2 kg af eiturlyfinu hashish inn
í landið.
► Lögreglan í Osló staðfesti, að
handteknir hafi verið þrír menn,
grunaöir um njósnir í þágu erlends
ríkis. Tveir hafa játað að nokkru
Sá þriðji var handtekinn f Stokk-
hólmi og hefur fallizt á að vera
afhentur norskum yfirvöldum. —
Málið á rætur aö rekja allt til tíma
síðari heimsstyrjaldar.
► í Stokkhólmi fannst f gær lík 18
ára stúlku í íbúð, þar sem eitur-
lyfjaneytendur vöndu komu sínar.
► Enn var skipzt á skotum í gær
á landamærum Sýrlands og ísraeis,
í þriðja skipti á viku. Sýrlending-
ar segja aö 3 ísraelskir hermenn
hafi beðið bana.
► Kínversk sendinefnd kom til
Moskvu í gær til þess aö ræða við-
skipti á vöruskiptagrundvelli.