Vísir - 15.04.1967, Síða 3

Vísir - 15.04.1967, Síða 3
VÍSIR. Laugardagur 15. apríl 1967. 'V ' V> ' ■»: Þeir virðast kunna vel við sig í baðskápunum, sem gefa tvenns konar baö, þurrhita og gufubað. NY AFSLOPPUN Á þessum tímum hraðans og spennunnar eru menn sífcllt að leita afslöppunar. Öld framfar- anna leiðir menn lengra en get- an nær. Úrvinda leita þeir svo afturbata á heilsunni 1 leirböð- um, ljósböðum og margs kyns öðrum uppfinningum, sem skjóta upp kollinum við hlið tæknilegra nýjunga atvinnulífs- ins. . Hér á landi hafa veriö starf- ræktar nokkrar gufubaðs- og nuddstofur, sem notið hafa mik- illa vinsælda. Og í gær tók til starfa i Reykjavík ný hress- ingarstofa af nýju tagi, sem ekki hefur þekkzt hér áður, Heilsulindin að HverfisgötU 50, þriðju hæð. Þar geta bæði menn og konur slappað af eftir nýjustu tækni. Viðskiptavinurinn getur valið á mllli gufubaðs og þurrhita- baðs, en að því búnu getur hann fengið nuddmeðhöndlun af ýmsu tagi, handnudd, með venjuleg- um hætti eða með nuddtækj- um. Einnig getur hann lagt síg á afslöppunarbekk („Relax-a- tron“), sem er allnýstárlegt tæki. í bekk bessum eru 10 nuddpúðar, sem ná til hinna ýmsu hluta líkamans, þegar legið er á honum. Þannig er hægt aö fá hægri öxlina nudd- aða eða vinstra lærið, sérstak- lega eða þá allan líkamann. Þá geta karlar engu síður en konur fengið andlitssnyrtingu í Heilsulindinni og andlitsnudd, hvað svo sem íslenzkum karl- mönnum kann að finnast um slíkt ágæti. Stofnunin hefúr sérstök rafmagnstæki til þess að hreinsa húðina og auk þess tæki til Iagfæringar á æðaslitl í andliti. Ljósböð standa þarna einnig til boða og er þar aö geta geysl- mikils ljóslampa, sem gefur helta og kalda geisla, innrauöa og útfjólubláa. Á stofunni starfa sex stúlkur auk forstöðukonunnar Sigríðar Gunnarsdóttur, sem starfrækt hefur tízkuskóla hér um árabil. Stúlkumar kunna allar sitthvað fyrir sér í nuddi og meðferð þeirra tækja, sem þama eru. Ráðunautur við skipulagningu Heilsulindarinnar hefur verið ensk kona, Mrs. Peta Hancock, sem unnið hefur við uppsetn- ingar á slíkum stofum víða, að- allega í Englandi. Eigendur þessarar nýju hress- ingar og fegrunarstofu eru Sig- ríður Gunnarsdóttir og Jóhann M. Jónasson. Slikum kyrtll íklæðast karlar sem konur, sem koma inn í stof una. Þetta er raunar ein starfs- stúlknanna, Guðrún Axelsdóttlr. Forstöðukonan Sigriður Gunnarsdóttir (t.h.) og hinn enski ráðu nautur Mrs. Pete Hancock. Ein stúlknanna sinnir viðskiptavini á nuddbekknum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.