Vísir - 03.05.1967, Blaðsíða 1
VISIR
57. árg. — Miðvikudagur 3. maí 1967. — 99. tbl.
Þessi hjón, sem ætluðu í seinni ferðina með Fritz Heckert, komu held-
ur snemma til skips, og urðu því að bíða góða stund á hafnarbakkanum.
Frítz Heckert
kom í gærkvöldi
Margt manna var saman komið
á hafnarbakkanum í gærkvöldi til
að taka á móti vinafólkl sínu, sem
var að koma með skemmtiferða-
skipinu Fritz Heckert úr hringferð
um Norður-Evrópu. Kalt var í veðri
og var fólki orðið hrollkalt, þegar
skipið loksins lagðist upp að
bryggju kl. 23.
Þegar landganginum hafði verið
komið fyrir, myndaðist fljótt
straumur af fólki á leið í land með
pinkla sína og pjönkur. Skipzt var
á kveðjum í flýti og farþegar hröö-
uðu sér að tollskýlinu með farang-
ur sinn. Allir reyndu að hraða sér
og komast sem fyrst heim í hlýj-
una.
Viö hö'fðum mjög góða farar-
stjóra og kynnisferðimar í landi
voru mjög skemmtilegar. Þetta var
£ alla staöi mjög skemmtilegt ferða
lag“.
Farþegar, sem ætluðu með skip-
inu út, voru þarna mættir og hafði
skipið stutta viðkomu hér. Það fór
strax út aftur, eða kl. 1 eftir mið-
nætti.
MJOG ANÆGÐUROG ÞAÐ
ER GÓÐ TILFINNING
— Talað v/ð Eyvind Brems Islandi að loknum
„debut" tónleikum hans
Fagnaðarlæti kváðu við, þeg-
ar Eyvind Brems islandi hafði
lokið að syngja aríuna, sem var
síðast á efnisskránni á tónleik-
um Tónlistarfélagsins í Austur-
bæjarbíói í gærkvöld. Eftir á
voru söngvarinn og píanóleikar
inn Elien Gilberg margsinnis
köiluð fram og söngvarinn söng
nokkur aukalög eftir ákveðnum
óskum hins fjölmenna áheyr-
endaskara. Þaö lék enginn vafi
á því að öðru sinni hafði ís-
landi sungiö sig inn í hjörtu á-
heyrenda. Þetta var glæsilegt
„debut“.
Vísir talaði nokkur orð viö
söngvarann að loknum tónleik-
unum, að baki sviðsins, þangað
sem vinir og ættingjar höföu
yrpzt til að óska honum til
hamingju. Þaö var innilegt
handtak föður og sonar.
„Það má kalla þetta mitt
,,debut“,“ sagði Eyvind Brems
íslandi, en þetta er í fyrsta
sinn, sem ég held einkahljóm-
leika, áður hef ég komið fram í
nokkrum litlum óperuhlutverk-
um“.
Þetta er einnig fyrsta heim-
sókn Brems Islandi til Islands,
en hingað kom hann fyrir þrem
dögum beint frá Kaupmanna-
höfn. Heimsóknin verður stutt
aö þessu sinni því aö söngvar-
inn heldur aftur utan á laugar-
dag, eftir að hafa sungið á
tvennum tónleikum til viðbótar.
Öðru sinni á vegum Tónlistar-
félagsins í kvöld og í Háskóla-
bíói á föstudag á söngskemmt-
un, sem Rauöi krossinn hefur
fengið hann tii að koma fram á.
Söngvarinn kvaöst hafa
kennt taugaóstyrks fyrir hljóm-
leikana, skiljanlega hefur Stefán
Framhald á bls. 10.
r
Agætt skíðafæri
í Jósefsdal
Þó alautt sé nú í Reykjavík
er ekki iangt að fara í bezta
skíðasnjó. I morgun fréttum viö
ofan úr Jósefsdal að þar væri
hið bezta skíðafæri og verða ef-
laust margir til að notfæra sér
skíðafærið á morgun, ekki sízt
ef sólskin verður.
Keppni fer fram í Jósefsdal
á morgun, það er 6 manna
sveitakeppni ÍR, KR og Ár-
manns.
I Hveradölum mun einnig
hægt að komast í ágætan skíða-
snjó.
Það var innilegt handtak sonar og fööur eftir tónleikana.
Yffir 30 tilboð bórust í byggingarefni til Fossvogshusanna
Meira en helmings munur á tilboðum
Fréttamaður Vísis hafði tal af ein
um farþeganna, Kristjáni Steindórs
syni, flugmanni, og spurði hann
hvernig honum hefði líkað ferðin.
„Mér likaði þetta allt ágætlega.
Ferðin var í alla staði hin ánægju-
legasta. Fólkiö mjög gott. Aðbúnur
allur góður. Fæðið gott. Mjög
skemmtilegt ferðalag. Að vísu feng-
um við afleitt veður á leiðinni út.
Urðum að láta fyrirberast viö
Færeyjar og andæfa upp í veðrið í
eina 12 tíma, en eftir það gekk allt
ágætlega.
Félag rétthafa til ein-
býlishúsalóða í Fossvogi
hélt fund í gær og ræddi
þar meðal annars tilboð
þau, sem borizt höfðu,
varðandi efniskaup, en
milli sextíu og sjötíu hús
byggjendur komu sér
saman um að gera sam-
eiginleg innkaup á bygg-
ingarefni og jafnvel að
bjóða út sameiginlega
ýmsar undirbúnings-
framkvæmdir.
Gert var tilraunaútboð, þar
sem óskað var eftir tilboðum
um timbursölu, þakjárn, glugga,
steypustyrktarjárn, vatnslagnir,
gler, ofna, innihurðir og fleira
— og miðað við 30 hús, en
eins víst er að þátttaka verði
miklu meiri í hinum sameigin
legu innkaupum að jafnaði.
Alls bárust um þrjátíu tilboð í
þessi viðskipti og var mikill
munur á lægstu tilboðunum og
markaðsverði á byggingarvör-
unum, sem boönar voru út.
Þannig var til dæmis um 300
þúsund króna munur á lægstu
tilboöunum um timbursölu og
markaðsverði á timbri. Á tilboð
unum um miðstöðvarofna hús-
anna var mjög mikill munur. —
Hæsta tilboðið hljóðaði upp á
um 6 milljónir, en hið lægsta á
1300 þúsund og er þar miðað
við ofna í 30,200 m2 hús.
Á fundinum var einnig rætt
um það hvernig hagkvæmast
væri að byggja grunnana að
húsunum, en eins og kunnugt
er er Fossvogsdalurinn mjög
erfitt byggingarland, vegna
blautlendis og dýja.
Kom í ljós við áætlanir, sem
félagið hafði látið gera að með
því að grafa grunnana niður á
fast og fylla síöan upp færi
kostnaðurinn allt upp í um 830
þúsund við 200 nr grunn (mið-
að við 6 metra dýpi). Hins veg-
ar mundi sami grunnur ekki
kosta nema rösk 200 þúsund, ef
staurar yröu reknir niður í
jörðina og grunnurinn byggður
á þeim.
Formaður Félags rétthafa til
Framhald á bls. 10.
/