Vísir - 03.05.1967, Síða 1

Vísir - 03.05.1967, Síða 1
VISIR 57. árg. — Miðvikudagur 3. maí 1967. — 99. tbl. Þessi hjón, sem ætluðu í seinni ferðina með Fritz Heckert, komu held- ur snemma til skips, og urðu því að bíða góða stund á hafnarbakkanum. Frítz Heckert kom í gærkvöldi Margt manna var saman komið á hafnarbakkanum í gærkvöldi til að taka á móti vinafólkl sínu, sem var að koma með skemmtiferða- skipinu Fritz Heckert úr hringferð um Norður-Evrópu. Kalt var í veðri og var fólki orðið hrollkalt, þegar skipið loksins lagðist upp að bryggju kl. 23. Þegar landganginum hafði verið komið fyrir, myndaðist fljótt straumur af fólki á leið í land með pinkla sína og pjönkur. Skipzt var á kveðjum í flýti og farþegar hröö- uðu sér að tollskýlinu með farang- ur sinn. Allir reyndu að hraða sér og komast sem fyrst heim í hlýj- una. Viö hö'fðum mjög góða farar- stjóra og kynnisferðimar í landi voru mjög skemmtilegar. Þetta var £ alla staöi mjög skemmtilegt ferða lag“. Farþegar, sem ætluðu með skip- inu út, voru þarna mættir og hafði skipið stutta viðkomu hér. Það fór strax út aftur, eða kl. 1 eftir mið- nætti. MJOG ANÆGÐUROG ÞAÐ ER GÓÐ TILFINNING — Talað v/ð Eyvind Brems Islandi að loknum „debut" tónleikum hans Fagnaðarlæti kváðu við, þeg- ar Eyvind Brems islandi hafði lokið að syngja aríuna, sem var síðast á efnisskránni á tónleik- um Tónlistarfélagsins í Austur- bæjarbíói í gærkvöld. Eftir á voru söngvarinn og píanóleikar inn Elien Gilberg margsinnis köiluð fram og söngvarinn söng nokkur aukalög eftir ákveðnum óskum hins fjölmenna áheyr- endaskara. Þaö lék enginn vafi á því að öðru sinni hafði ís- landi sungiö sig inn í hjörtu á- heyrenda. Þetta var glæsilegt „debut“. Vísir talaði nokkur orð viö söngvarann að loknum tónleik- unum, að baki sviðsins, þangað sem vinir og ættingjar höföu yrpzt til að óska honum til hamingju. Þaö var innilegt handtak föður og sonar. „Það má kalla þetta mitt ,,debut“,“ sagði Eyvind Brems íslandi, en þetta er í fyrsta sinn, sem ég held einkahljóm- leika, áður hef ég komið fram í nokkrum litlum óperuhlutverk- um“. Þetta er einnig fyrsta heim- sókn Brems Islandi til Islands, en hingað kom hann fyrir þrem dögum beint frá Kaupmanna- höfn. Heimsóknin verður stutt aö þessu sinni því aö söngvar- inn heldur aftur utan á laugar- dag, eftir að hafa sungið á tvennum tónleikum til viðbótar. Öðru sinni á vegum Tónlistar- félagsins í kvöld og í Háskóla- bíói á föstudag á söngskemmt- un, sem Rauöi krossinn hefur fengið hann tii að koma fram á. Söngvarinn kvaöst hafa kennt taugaóstyrks fyrir hljóm- leikana, skiljanlega hefur Stefán Framhald á bls. 10. r Agætt skíðafæri í Jósefsdal Þó alautt sé nú í Reykjavík er ekki iangt að fara í bezta skíðasnjó. I morgun fréttum viö ofan úr Jósefsdal að þar væri hið bezta skíðafæri og verða ef- laust margir til að notfæra sér skíðafærið á morgun, ekki sízt ef sólskin verður. Keppni fer fram í Jósefsdal á morgun, það er 6 manna sveitakeppni ÍR, KR og Ár- manns. I Hveradölum mun einnig hægt að komast í ágætan skíða- snjó. Það var innilegt handtak sonar og fööur eftir tónleikana. Yffir 30 tilboð bórust í byggingarefni til Fossvogshusanna Meira en helmings munur á tilboðum Fréttamaður Vísis hafði tal af ein um farþeganna, Kristjáni Steindórs syni, flugmanni, og spurði hann hvernig honum hefði líkað ferðin. „Mér likaði þetta allt ágætlega. Ferðin var í alla staði hin ánægju- legasta. Fólkiö mjög gott. Aðbúnur allur góður. Fæðið gott. Mjög skemmtilegt ferðalag. Að vísu feng- um við afleitt veður á leiðinni út. Urðum að láta fyrirberast viö Færeyjar og andæfa upp í veðrið í eina 12 tíma, en eftir það gekk allt ágætlega. Félag rétthafa til ein- býlishúsalóða í Fossvogi hélt fund í gær og ræddi þar meðal annars tilboð þau, sem borizt höfðu, varðandi efniskaup, en milli sextíu og sjötíu hús byggjendur komu sér saman um að gera sam- eiginleg innkaup á bygg- ingarefni og jafnvel að bjóða út sameiginlega ýmsar undirbúnings- framkvæmdir. Gert var tilraunaútboð, þar sem óskað var eftir tilboðum um timbursölu, þakjárn, glugga, steypustyrktarjárn, vatnslagnir, gler, ofna, innihurðir og fleira — og miðað við 30 hús, en eins víst er að þátttaka verði miklu meiri í hinum sameigin legu innkaupum að jafnaði. Alls bárust um þrjátíu tilboð í þessi viðskipti og var mikill munur á lægstu tilboðunum og markaðsverði á byggingarvör- unum, sem boönar voru út. Þannig var til dæmis um 300 þúsund króna munur á lægstu tilboöunum um timbursölu og markaðsverði á timbri. Á tilboð unum um miðstöðvarofna hús- anna var mjög mikill munur. — Hæsta tilboðið hljóðaði upp á um 6 milljónir, en hið lægsta á 1300 þúsund og er þar miðað við ofna í 30,200 m2 hús. Á fundinum var einnig rætt um það hvernig hagkvæmast væri að byggja grunnana að húsunum, en eins og kunnugt er er Fossvogsdalurinn mjög erfitt byggingarland, vegna blautlendis og dýja. Kom í ljós við áætlanir, sem félagið hafði látið gera að með því að grafa grunnana niður á fast og fylla síöan upp færi kostnaðurinn allt upp í um 830 þúsund við 200 nr grunn (mið- að við 6 metra dýpi). Hins veg- ar mundi sami grunnur ekki kosta nema rösk 200 þúsund, ef staurar yröu reknir niður í jörðina og grunnurinn byggður á þeim. Formaður Félags rétthafa til Framhald á bls. 10. /

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.