Vísir - 13.05.1967, Side 1
Mölbrutu þrjár hurðir og notuðu
logsuðutæki á peningaskápinn
57. árg. — Laugardagur 13. maí 1967. — 107. tbl.
Brotizt var inn á skrifstofur
Stálumbúða hf. við Kleppsveg
í fyrrinótt og þar brotnar 3 hurð
ir og skorið gat á peninga-
skáp fyrirtækisins með logsuðu
tækjum. Ekkert höfðu þjófarnir
upp úr krafsinu annað en einn
sjónauka.
Þegar starfsfólkið mætti til
vinnu sinnar í gærmorgun,
blöstu við verksummerki eft-
ir innbrotið. Þriár hurðir höfðu
verið mölbrotnar um nóttina og
peningaskápurinn hafði verið
eyðilagður. Þjófunum eða þjófn
um hafði með einhverjum
FÁGÆTAR BÆKUR FUNDUST Á
DÓMKIRKJUL OFTINU
við flutninga Hins islenzka bibliufélags
— Elzta prentaða Biblia Bibliufélagsins
— Viðeyjarprent frá 1825
Þessa dagana er Hið íslenzka biblíufélag að flytja inn í nýtt
húsnæði á neðstu hæö í norðurálmu turns Hallgrímskirkju og fær
þar allrúmgott húsnæði fyrir skrifstofu. í flutningunum komu í
leitimar meðal ýmissa hluta Biblíufélagsins, sem geymdir voru
á Dómkirkjuloftinu, leifar af fyrstu bókinni, sem Biblíufélagið
lét prenta. Er það endurskoðuð útgáfa Nýja testamentisins, sem
prentuð var í Viðey 1825 og er nú mjög fágæt.
Ólafur Ölafsson á skrifstofu Biblíúfélagsins í Hallgrimskirkju. ■
) Urskurður yfirkjörstjórnar
Ólafur Ólafsson kristniboði
skýrði blaðinu frá því, að þessi
útgáfa Nýja testamentisins væri
mjög vönduð endurskoðuö út-
gáfa gerð af Geir biskup Vída-
lín og Sveinbirni Egilssyni á-
samt fleiri ágætum mönnum.
Bókin væri í tveim bindum.
Hefði bókin legiö í örkum á
Dómkirkjuloftinu í svo langan
tíma, aö nú væru þessar arkir
ákaflega illa farnar og væri ver-
ið að vinna úr þeim það sem
hægt væri aö hreinsa og láta
binda inn. Mundu fást með því
nokkur eintök bókarinnar, sem
myndu koma sér ákaflega vel
fyrir Biblíufélagið. Bókin væri
fróðleg fyrir sakir þeirra manna,
sem hefðu lagt hönd á gerö
hennar og ákaflega fágæt.
Skýrði Ólafur einnig frá1
starfsemi Biblíufélagsins, sem
nú er 150 ára og hefur haft
bækistöð á biskupsskrifstofu til
þessa. Eins og kunnugt er mið-
ast starfsemi Biblíufélagsins að
méstu við útgáfu Bibliunnar, en
aö sögn Ólafs er sú útgáfustarf-
semi mjög dýr, þar sem ávallt
er leitazt við að hafa Biblíuna
eins ódýra í útsölu og mögulegt
væri. Meðal annars þess vegna
heföi veriö gripið til þess ráðs
að hafa letrið smátt til að
minnka kostnaðinn við útgáfu.
Núna hefur Biblíufélagið sölu
Biblíunnar á eigin vegum í stað
Framhald á bls. 10
rt
r -í '" Sitelíiní 'ttti v ' :
$ý$1 i f r i. ■
' - . a iúfsiiiss
mt&tiu^ 8?)tisu-ftsUe».
hætti tekizt að komast inn í
verksmiðju fyrirtækisins og það
an brotizt inn á skrifstofumar.
Auk hurðanna þriggja, sem
þjófarnir brutu áður en þeir
fundu peningaskápinn, höfðu
þeir gert tilraun til þess að
rjúfa gat á vegg, sem skildi
að tvö skrifstofuherbergin.
Logsuðutækin, sem þjófarnir
notuðú til þess að opna skápinn
með, voru tekin hjá fyrirtækinu
sjálfu, en ekki virðast þjófamir
hafa verið mjög kunnugir með-
ferð slíkra áhalda, þar eð þeir
notuðu logsuðuspíss, en ekki
skurðarspíss, við að skera gat
á skápinn.
Engir peningar voru i skápn-
um og var einskis saknað af
skrifstofunum, nema sjónauka
eins, sem þar var geymdur.
Þetta er í þriðja skipti á
stuttum tíma, sem innbrots-
þjófar nota logsuðutæki til þess
að opna peningaskápa. Hið
fvrsta innbrotið var fram-
ið á Seyðisfirði, sem flestir
minnast, og hið annað nú ekki
alls fyrir löngu hjá Tryggingu
hf. í Borgartúni.
11 i .................
Titilblað biblíunnar
Hannibalistar sér á báti
Yfirkjörstjórnin í Reykjavík
Úrskurðaði í dag, að listi Hanni-
ballsta í Reykjavik gæti ekki
talizt til Alþýðubandalagsins,
heldur bæri að líta á hann sem
óháðan lista. Var honum úthlut
að listabókstafnum I. — Áður
hafði orðið samkomulag um, að
fiomlu flokkamir héldu sínum
listabókstöfum og Óháði lýðræð
isflokkurinn fengi listabókstaf-
inn H.
í úrskurðinum er vísað til
þess, að einungis geti 24 menn
verið í framboði fyrir einn flokk
í Reykjavík. Þau ákvæði væru
marklaus, ef tveir listar, sam-
tals 48 menn, gætu verið í fram-
boði fyrir einn flokk.
Fljótlega eftir þennan úr-
skurð var haldinn fundur í Land
kjörstjórn samkvæmt kæru
Hannibalista. Voru þar mættir
fulltrúar flokkanna. Eftir stutt-
an fund var Hannibalistum gef-
inn frestur til kl. 8.30 f. h. í
dag til aö skila greinargerð
um sjónarmið sín.
Hannibal Valdimarsson sagði
í gærkvöldi við blaðamann Vfs-
„Ég tel þetta pólitískan úr-
skurð, sem brýtur í bága við
kosningalög. Við höfum áfrýjaö
til Landkjörstjórnar, sem mun
taka málið fyrir í fyrramálið.
Úrskurður yfirkjörstjómar mun
ekki hafa minnstu áhrif á kosn-
ingabaráttu okkar".
Lyfjafræðingar
mótmæla
Stjórn Lyfjafræðingafélags ís-
lands hefur mótmælt bréflega
bráðabirgðalögunum . sem sett
voru fyrr í vikunni til þess að
binda enda á verkfall félagsmanna
þess. í mótmælunum segir, aö
iyfjafræðingar séu knúnir „til að
hefja vinnu við algerlega óviðun-
andi kjör, eftir fjögurra vikna verk
fall". Þá er sagt, að með lögunum
hafi algerlega verið tekinn málstað-
ur apótekarafélagsins, þótt könnun
dóms- og kirkjumálaráðuneytisins
hafi sýnt réttmæti launakrafna
lyfjafræðinga.
Nýr yfirlæknir
á Vífilsstöðum
Hrafnkell Heigason hefur verið
skipaður yfirlæknir við Vífilsstaða
hæiið frá 15 maí nk. Hann er
sonur hjónanna Helga Jónassonar
héraðslæknis á Hvolsvelli og Odd-
nýjar Guðmundsdóttur. Hann lauk
læknapröfi frá Háskóla íslands
1956 og var viðurkenndur sérfræð-
ingur í lyflækningum 1962. Hann
hefur verið deildarlæknir við fjórð
ungssjúkrahúsið á Akureyri, en
hefur undanfarið starfað í Svíþjóð.
Hann er 39 ára að aldri.
Landburöur af
þorski á Húsavik
Landkjorstjóm a lundi í gær meö umbjóðendum listanna.
Línubátar frá Húsavík hafa und-
I anfama daga aflað óvenju vel og
; má kalla að þar hafi verið land-
! burður af fiski i hálfan mánuð,
! svo aö frystihúsið hefur varla haft
! undan að vinna aflann. — Síðustu
árin hefur varla fengizt bein úr
sjó við Norðurland, nema þá helzt
ufsi yfir sumartimann og þykir
mönnum nú undarlega við bregða.
Sjö litlir þilfarsbátar róa frá
Húsavík, tólf til tuttugu og tveggja
lesta og eru þrír á hverjum bát, en
fjórir, sem beita í landi. Aflinn hef-
ur komizt upp i 18 tonn i róðri og
var mestur í síðustu viku, en þessa
viku hafa þeir fengiö þetta 6 til 9
tonn.
Verðmæti 18 tosma af þorski er
milli 60 og 70 þúsund krónur og
má reikna með að hásetahlutur úr
slíkum róðri sé á þessum bátum
eitthvað um 5 þúsund krónur.
Tíðarfar hefur verið óvenju gott
þennan hálfa mánuð, enda hafa
bátar sótt langt norður fyrir Sléttu
og á Rauðunúpagrunn.