Vísir - 13.05.1967, Qupperneq 16
r r
VISIR
Hjónabandsmálið i Hæstarétti:
Lal
Vinnttveítendur
á aðalfundi
Fram var haldið aðalfundi Vinnu
veitendasambands fslands í gær-
dag og hófst hann kl. 3.15. Fund-
arstjóri var kjörinn Tómas Vig-
fússon, húsasmiðameistari, en
fundarritari Jósafat Líndal. Nefndir
báru fram, að loknum störfum sín-
um, 6 ályktunartillögur og voru
5 þeirra afgreiddar í gær. Fundin-
um verður haldið áfram á morgun
og hefst hann kl. 9.30. Á fundinum
mun Jónas Haralz flytja erindi.
UMFANGSMIKIL GAGNASOFNUN
VERÐUR GERÐ ÍSUMAR
Um þetta leyti fer fram athug-
un á möguleikum til að gengið
veröi úr skugga um fjölda hjóna
vígslna, sem framkvæmdar hafa
verið af prestvígðum mönnum,
öðrum en þjónandi sóknarprest-
um. Hæstiréttur hefur óskað
eftir því að upplýsinga um þetta
atriði verði aflaö svo langt aft-
ur í timann og svo nákvæmlega
sem auöið er. Dómsmálaráðu-
neytið hefur tekið að sér að
kanna málið’og hefur ráðuneytið
samstarf við biskupsskrifstof-
una. Verða kirkjubækur sem
flestar eru komnar til Þjóð-
skjalasafnsins látnar liggja til
grundvallar athugun þessari.
Hæstiréttur óskaði eftir gögn-
um um þetta atriði í sambandi
við hjónabandsmálið svonefnda
sem skýrt hefur verið frá
hér í blaðinu. Málavextir eru í
fáum orðum þeir, að maður
nokkur austur á landi hefur ósk-
að eftir að hjónaband hans verði
ógilt þar sem vígsluna fram-
kvæmdi maður, sem að vísu var
prestvígður en ekki þjónandi
prestur. Telur hann ákvæði laga
taka af allan vafa um að hjóna-
vígslur megi þeir einir fram-
kvæma, sem eru þjónandi sókn-
arprestar. Hins vegar hefur þaö
löngum viðgengizt, að prest-
vígðir menn t.d. uppgjafaprest-
ar og prestvígðir háskólakenn-
arar framkvæmdu hjónavígslur.
Þetta er talið allalgengt í
Reykjavík en talið hlutfallslega
fátíðara úti á landi. Héraðs-
dömur taldi hjónabandið löglegt
og gilt.
Hæstiréttur frestaði flutningi
málsins um mánaðartíma í
april þegar lögmenn málsaðilja
voru tilbúnir til munnlegs mál-
flutnings og gerði rétturinn
þetta upp á sitt eindæmi, sem
er mjög sjaldgæft, ef ekki eins-
dæmi. Að þessum tíma liðnum
varð samkomulag milli Hæsta-
réttar og viðkomandi lögmanna
um öflun frekari gagna og yrði
Framh. á bls 10
Vinnuveitendur á aðalfundinum.
Vestfjarðabátur fer á línu-
veiðar til Grænlands
Þrymur BA, sem fór í aprilbyrj-j
un með net á Grænlandsmið ásamt!
Jörundi m er nú lagður af stað í |
aðra Grænlandsreisu og að þessu
sinni með linu.
Eins og skipstjórinn á Jörundi
III skýrði frá í viðtali við Vfsi ný-
lega urðu þeir varir við tals-
vert fiskmagn út af Kulusuk og Dor-banka við Grænland eru ekki
togararnir hafa fengið sæmilegan
afla þar við A.-Grænland að und-
anförnu, en fiskurinn náðist ekki
í net og ísinn geröi skipunum líka
erfitt fyrir. Verður fróðlegt að vita,
hvernig Þrymi tekst til með línuna.
— Þess ber að gæta að til dæmis á
nema um 140 mílur frá Bjargtöng-
um og því vel hugsanlegt að stærri
bátarnir gætu farið á útilegu þang-
að með línu eða net og ísað í sig
Byggja á austurbakka
fyrir 60 milljónir
Bygging vöruskemmu er nú mest aðkallandi
mál Eimskipafélags Islands — Vonir standa
til crð fyrsti áfangi þess verks geti hafizt senn
Eitt mest aökallandi mál Eim-
skipafélags íslands þessa stundina
er að koma upp vönduðu vöru-
geymsluhúsi með nýtízkulegum út-
búnaði. Segir í ársskýrslu félagsins,
sem samþykkt var í gærdag á aöal
fundi félagsins að nú séu góöar
vonlr til aö heimild Hafnarsjóös til
að fá fyrirgreiðslu í þessu efni fá-
ist. Er hér um að ræöa byggingu
á vörugeymsluhúsi á austurbakka
Reykjavíkurhafnar, mjög ákjósan-
legu svæði fyrir skip félagsins, og
er reiknað með aö fyrsti áfangl
þessa mannvirkis kosti um 60
millj. króna.
Á fundinum í gærdag fékk stór-
mál fullnaðarafgreiðslu, en það er
um útgáfu jöfnunarhlutabréfa,
Framhald á bls. 10.
' <w\v
Eggert Guðmundsson Hátúni 11:
Fjörutíu ár frá
fyrstu sýningunni
Eggert Guðmundsson opnar í
dag málverkasýningu í vinnu-
stofu sinni að Hátúni 11, og
mun sýningin standa í 10 daga.
Um þessar mundir eru 40 ár
liðin sfðan Eggert hélt sína
fyrstu sýningu, en hann sagði á
fundi með blaðamönnum í dag
að hann liti ekki á þessa sýn-
ingu sem neina minningar- eða
afmælissýningu, enda væri hún
ekki til þess ætluð að sýna þró-
unarferil sinn. Hins vegar gæf-
ist fólki kostur á að sjá elztu og
yngstu myndir sínar, en á sýn-
ingunni eru m. a. myndir sem
hann sýndi á fyrstu sýningunni.
Guðni Hermansen i Listamannaskála:
Draumsjónir og
endurminningar
1 dag opnar Guðni Herman-
sen frá Vestmannaeyjum mál-
verkasýningu í Listamannaskál-
anuni. Þetta er fyrsta sýning
Guðna hér í Reykjavík og sýnir
hann 44 málverk, smá og stör.
„Þú getur kallað þetta „frá
Eyjum“, sagði Guðni, þegar viö
litum inn til hans í gær, en þá
hafði hann nýlega lokið viö að
hengja upp myndirnar með að-
stoð Sverris Haraldssonar, list-
málara. „Annars má segja að
þetta séu endurminningar,
fantasíur og draumsjónir"
bætti hann við.
Myndir Guðna nálgast það
að vera „súrrealískar", þó
Guöni segir sjálfur aö hann
reyni ekki að fylgja neinum sér-
stökum stíl. En myndirnar eru
persónulegar og sér'- óegar
og eiga án efa eftir a at-
hygli sýningargesta.
Frá aðalfundi Eimskipafélagsins í gær.
Fjöldi fólks úr bæmm um
hvitasunnuhelgina
Lógreglan gerir ráðstafanir til að fylgjast
með ferðum unga fólksins
Nú gengur hvítasunnuhelgin í
garð ot. skulum við vona að veður-
guöimir verði ferðamönnum vin-
samlegir.
Ekki er búizt við betra veðri.
Þeir hjá Veðurstofunni fræddu
okkur á því, að sennilega myndi
verða heldur verra veður um hvíta-
sunnuna en verið hefur undanfarna
daga, rninni sól, suðvestan átt og
sennilega væta af og til.
Feröaskrifstofurnar svara.
F.t'tir reynslu l'yrri ára að drema
mun veðrið ekki draga mjög út
ferðalögum fóll.s um helgina, en
blaðið hafði samband við allar
ferðaskrifstofurnar i bænum og leit
aði upplýsinga um væntanlegar
ferðir hjá þeim. Hér á eftir fara
svör þeirra sem hafa ferðir í undir-
búningi:
LÖND OG LEIÐIR: — Ferðir á
Snæfellsnes og í Þórsmörk. Lagt
verður af stað í báöar ferðirnar eft-
ir hádegi á laugardag og komið
til baka á mánudagskvöld.
SAGA: — Nú þegar er upppantað
i ferðir á sjóstangaveiðimótið í
Vestmannaeyjum, en það eru einu
innanlandsferðimar sem við skipu-
leggjum um hvítasunnuna. Nfu út-
lendingar komu hingað vegna móts
ins og höfum við einnig séð um alla
fyrirgreiðslu fyrir þá. Ennfremur
sjáum við þeim þátttakendum, sem
þess óska, fyrir hóteli í Vestmanna
eyjum.
LANDSÝN : — Viö höfum daglegar
feröir frá Reykjavík. Ein ferðin er
um Hveragerði, Skálholt, Gullfoss.
Geysi og Þingvelli, og er lagt af
stað í hana klukkan níu á morgn-
ana. Einnig förum við daglega til
Þingvalla klukkan 1.30 og enn
fremui daglega um Krýsu-
vík, Grindavík og Reykjanesvita og
komum við á Bessastöðum í baka
leiðinni, en í þessa ferö er ein: •
lagt af stað kl. 1.30.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS : — Tvær
214 dags feröir verða farnar á okk-
Framh. á bls. 10