Vísir - 23.05.1967, Page 2
r.
V í SIR . Þriðjudagur 23. maí 1967.
4 MÖRK „HJARTANÍ’JNNAR"
URÐU VALSMÖNNUM AÐ FALU
® jam Fleming, „hjartanían“ í liöi Edinborgarknatt-
spymuliðsins varð þess valdandi í gær að íslands-
neistarar Vals töpuðu stórt eða 4:0 í gærkvöldi í góð-
viðri frammi fyrir 1800 manns í Laugardal. Fleming
skoraði öll fjögur mörkin og sýndi sérlega góðan leik
sem miðherji.
Leikurinn í heild var lítil
skemmtun fyrir áhorfendurna,
leikur sem var ekki til þess fall-
inn að laða menn að þessari annars
skemmtilegu íþróttagrein. I raun-
inni komst Valsliðiö aldrei í neitt
verulegt markatækifæri, skozka
vörnin sá fyrir öllu og kæföi flest-
ar sóknir í fæðingunni.
Saga markanna er í stuttu máli:
■jf 2. mín.: Skallað í stöng Vals-
marksins og Fleming fær boltann
í góöu færi fyrir miðju af stuttu
færi og skorar örugglega.
■yr 34. mín.: Fleming skorar eft-
ir mistök Gunnlaugs Hjálmarsson-
ar í marki Vals. Gunnlaugur kast-
aöi sér að óþörfu á boltann og
missti, en Fleming var sem fyrr
til staöar og setti boltann í netið,
en nokkru áður hafði hann tvíveg-
is misnotað herfilega tækifæri,
fyrst skallað yfir opið mark og síö-
an skotið yfir, — enn opiö mark.
★ 63. mín.: Aukaspyrna á Val
af 35 metra færi. Gunnlaugur átti
að ná boltanum með Uthlaupi, en
Fleming komst á milli og skallaði,
svo gott sem, úr höndum Gunn-
laugs og í netið.
★ 85. mín.: Fimm mín. eftir til
leiksloka og Ford h. úthejji brun-
ar upp að endamörkum nærri
marki, og gefur út til Fleming,
sem skorar örugglega af stuttu
færi, enda enginn nálægur honum
til að trufla hann.
Þannig lauk þessum leik, heldur
ójöfnum leik allavega séð. Skozka
liðið er greinilega mjög gott. Við
höfum oft séð þessi vel leikandi
ensku lið, séð réttu knattspyrnu-
skrefin, séð réttu hreyfingarnar,
réttu spyrnurnar, — en hvaö höf-
um við lært á þessu öllu? Ég læt
áhorfendurna í Laugardal um að
svara því.
— jbp —
Víkingar unnu
óvænfun sigur
gegn VuE í 1. fl.
Fyrstu leikirnir í Reykjavikur-
móti 1. flokks fóru fram um síðustu
helgi. Fram vann Þrótt með 5
mörkum gegn einu, en mest kom
á óvart sigur Víkings yfir Val 3:1.
en Valsmenn áttu bezta liðinu á að
skipa f fyrra í þessum flokki. Vals-
menn skoruðu snemma I þessum
leik sitt eina mark, — en siðan
ekki söguna meir, Vikingarnir
skoruöu 3 mörk og unnu öruggan
sigur, sem undirstrikar að meiri
breidd er nú að verða í knatt-
spyrnunni hjá Víkingum og er það
ánægjuleg þróun.
Úrslit í drengjakeppn-
inni í knattspyrnu
Iþróttanámskeið í út-
hverfum að hefjast
Eins og undanfarin ár munu
bamaheimila og lelkvallanefnd,
Í.B.R., íþróttaráð Reykjavíkur og
Æskulýðsráð halda námskeið í
íþróttum og leikium fyrir börn á
aldrinum 7—12 ára.
Þetta er 10. árið, sem þessi
námskeið eru haldin og hefur að-
sókn stöðugt aukizt. S.l. vor sóttu 1
14—15 hundruð börn nánlskeiðin.
Námskeiðin munu hefjast föstu-
daginn 26. maí ■ og standa yfir, í
fjórar vikur. Kennt verður á 8
stöðum í borginni, annan hvern dag
á hverjum stað. Börn á aldrinum
7—10 ára mæti fyrir hádegi en 11
EÓP-mótið á fimmtudag
Á fimmtudaginn fer fram hið ár
lega.E.Ó.P.-mót K.R. á Melavellin-
um í Reykjavlk og hefst kl. 20.
Keppt verður í eftirtöldum grein-
um:
Karlar:
100 m hl., 400 m hl„ 800 m hl„
5000 m hl„ 110 gr.hl. og 4x100 m
boðhl., kúluvarp, spjótkast, sleggju-
kast, stangarstökk og þrístökk.
Drengir 17—18 ára:
100 m hl„ 400 m hl„ 4x100 m
boðhl., spjótkast.
Sveinar 14—16 ára:
100 m hl„ 300 m hl„ 4x100 m
boðhl. og spjótkast.
Stúlkur:
100 m hl„ 80 m gr.hl., og 4x 100
m boðhlaup.
Þátttökutilkynningar þurfa aö
berast í síðasta lagi í kvöld á i
Melavöllinn.
og 12 ára eftir hádegi.
Kennslustaðir eru þessir:
íþróttasvæði K.R. við Kaplaskjóls-
veg.
iþróttasv. Víkings við Hæðargarð.
íþróttasvæði Þróttar við Skipasund.
Álftamýri (austan Álftamýrar-
skóla).
(Kennt á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum kl. 9.30—
11.30 og 2—4).
Gamli golfvöllurinn.
Leiksvæðiö við Rofabæ.
Álfheimar (innst í Laugardal).
íþróttasvæöi Ármanns við Sigtún.
(Kennt á þriöjudögum, fimmtu-
dögum og laugardögum kl. 9.30
11.30 og 2—4).
Innritun fer fram á kennslustöð-
unum um leið og námskeiðin hefj-
ast á hverjum stað.
Námskeiðsgjald kr. 25.00 greið-
ist viö innritun.
Knattspyrnumót drengja í Reykja-
nesumdæmi hófst á 3 stöðum sam-
timis sl. laugard.: Hafnarf., Kefla-
vík og Kópavogi, og voru leiknir
þrír leikir á hverjum stað. Keppn-
in hófst kl. 14 meö leikjum i 5.
aldursflokki, sem leikur í bikar-
formi ásamt 4. aldursflokki (út-
sláttarkeppni, heima og heiman).
Orslit einstakra leikja urðu sem
hér segir:
5. flokkur:
Hafnarfjöröur:
Haukar—Stjarnan 4—0.
Keflavík:
UMFK—Grótta 2—0.
Kópavogur:
Breiðablik—F.H. 1—2.
KiF.K. sat yfir f 1. umferð.
4. flokkur:
Hafnarfjöröur:
F.H.—Breiðablik 1—1.
Keflavík:
K.F.K.—Haukar 1—2.
Kópavogur:
Grótta—UMFK 5—2.
Stjaman sat yfir í 1. umferð.
3. flokkur:
Hafnarfjörður:
Haukar—UMFK 0—2.
Keflavík:
K.F.K.—Breiðablik 1—2.
Kópavogur:
Stjarnan—F.H. 0—1.
1 þriðja flokki er stigakeppni og
hafa UMFK, F.H. og Breiðablik 2
stig, en K.F.K., Stjarnan og Hauk-
ar ekkert.
HVERT STEFNIR?
Af hverju stafar léleg aðsókn
að knattspyrnunni?
Þessi mynd er úr þýzku knattspyrnunni úr leik milli liða sem heita Bayem og Borussia
Mönchengladbach en Bayem vann þann leik með 2:1.
Leikur Hearts og Vals, Is-
landsmeistaranna, i gærkvöldi
vekur víst flesta forystumenn
knattspymunnar til umhugsun-
ar. Það er ekki það að neitt
hneyksli sé þótt íslandsmeist-
arar tapi með 4:0 fyrir þaulæfð-
um skozkum atvinnumönnum í
knattspymu. Það út af fyrir sig
er skiljanlegt. En hitt þykir
mönnum súrara : broti aö al-
menningur virðist eftir öllu að
dæma búinn að fá sig fullsadd-
an á knattspymu, — eöa
hvemig stendur á þvi að aö-
eins 1250 manns borga sig inn
til að sjá þessa ágætu knatt-
spymugesti?
Hér er greinilega um mjög al-
varlega meinsemd að ræöa,
meinsemd, sem verður því að-
eins upprætt, að viðunandi lækn
ing verði viðhöfð. Sjálfur held
ég persónulega aö undanfarin
6—7 ár hafi , knattspyrnunni
hrakaö stórlega. í gær fannst
mér Valsmenn varla geta sýnt
áhorfendunum „stafróf knatt-
spymunnar“ en þar á ég við
frumskilyrðin til að geta titlað
sig sem knattspyrnumann.
Það ætti að vera öllum Ijóst,
að til aö geta leikið knattspymu
þarf maður að kunna að taka
við bolta, og skila honum af sér
þannig, að samherji fái knött-
inn á réttan stað. Þetta eru að-
eins frumatriði, sem við fáum
að sjá íslenzk lið mistakast leik
eftir leik. Það er engin furða þó
menn hvekkist á knattspyrnu
og færri komi og borgi aögang
að stórum knattspyrnuleik en
handknattleik í Laugardalshöll-
inni.
Þetta tel ég meinsemdina og
ég þykist vith að margir verði
mér sárgrarnir fyrir framhleypn-
ina, en það verður þá að hafa
það. Ég held að okkar menn
séu alls ekki búnir að læra þau
frumatriði, sem hver knatt-
spyrnumaðui á að kunna. Það
verður ekki ‘yjr en þessi atriði
og allt framhald „stafrófsins“
eru nokkurn veginn kunn knatt-
spymumönnum að gaman verð-
ur að horfa á knattspyrnuna.
Einhver kann að segja sem
svo: „Þetta ér nú fullmiki!
svartsýni. Piltarnir komu út á
völlinn fyrir 2—3 vikum og eru
langt frá bv að vera komnir i
æfingu“ Það er rétt, en í þvf
felst ekki afsökun því þó aö
„æfingin" verði meiri. þegar
líður fram á sumarið fær maður
sýknt og heilagr að sjá þessi
sömu mistök
En nú held ég aö knattspyrnu
mennirnir sjálfir eigi næsta orð,
— það er beirra að gera betur.
æfa betur, læra meira.
— jbp —