Vísir - 29.05.1967, Page 7
V í SIR . Mánudagur 29. maí 1967.
Aukið mikilvægi jarð-
hitans til raforkuvinnslu
Rætt við Guðmund Pálmason, sem er
nýkominn trá Salvador á vegum SÞ, en hann
hefur verið fenginn til að veita þróunar-
l’óndunum tækniaðstoð varðandi hagnýtingu
jarðhitans
Mikill áhugi hefur nú vaknað víða um heim á
hagnýtingu jarðhita, en komið hefur í ljós að jarð-
hiti er miklu algengari en menn höfðu áður gert
sér grein fyrir.
1 Ijós hefur komlð, að hugsanlegt er að hagnýta jarðhita í 30—40
löndum a.m. k., til raforkuvinnslu ða tii iðnaðar milliliðalaust.
Fjögur lönd í heimi hafa hingað til notfært sér þessi náttúruauð-
æfi í einhverjum mæli, ísland, Italia, Nýja Sjáiand og Bandaríkin.
öll löndin að undanskildu Islandi hafa notfært sér jarðhitann
eingöngu til raforkuvinnslu eða beint til iðnaðar, en það er einmitt
I þeim tilgangi, sem áhugi hefur vaknað á jarðhitanum. — Sam-
einuðu þjóðimar hafa mjög beitt sér fyrir því, að þróunarlöndin
hagnýti sér jarðhitann til rtjorkuvinnslu, þar sem því verður við
komið. Hefur áhuginn farið vaxandi meðal þjóðanna sjálfra og
þá sérstaklega eftir ráöstefnu um nýjar orkulindir, sem haldin
var á vegum SÞ í Róm árið 1961. Sú ráðstefna markaði tíma-
mót, en þar skýrðu vísindamenn frá jarðhitalöndunum fjórum frá
árangri af hagnýtingu jaröhitans. — Nokkrir íslenzkir vísindamenn
sóttu ráðstefnuna, en færri komust þó en vildu.
\ ðstoð Sameinuðu þjóðanna
til vanþróuöu þjóðanna
varöandi hagnýtingu jarðhitans,
hefur fyrst og fremst verið í
formi ráðgjafastarfsemi og hafa
samtökin leitað eftir ráðgjöfum
í þeim löndum sem reynslu hafa
á þessu stigi. — Guðmundur
Pálmason, forstöðumaður jarð-
hitadeildar Raforkumálastjómar
er sá íslenzkur vlsindamaður,
sem mest hefur fengizt við þessi
ráðgjafastörf á seinni árum, en
vænta má þess að fleiri bætist
við hópinn innan skamms. —
T. d. er fyrirhugað að dr. Gunn-
ar Böðvarsson, prófessor fari til
E1 Salvador í sumar og ef til
vill fleiri, en Guðmundur Pálma-
son var einmitt nýkominn það-
an, þegar tíðindamaður Vísis
hitti hann að máli fyrir
skemmstu.
— T>etta er fjórða ferðin sem
ég fer á vegum Sþ.
vegna þessarar ráðgjafastarf-
semi, en núna var ég að koma
úr annarri ferð minni frá E1
Salvador. — Fyrstu feröina fór
ég til Filippseyja fyrir um tveim
ur árum. — Fyrir rúmu ári til
Mali, en þar reyndist jarðhiti
ekki vera fyrir hendi í nýtan-
legu magni. — Skömmu eftir
ferðina til Mali fór ég i fyrstu
ferðina til Salvador, smárlkis í
Mið-Ameríku, en ákveðið hefur
verið að Salvador ásamt
Tyrklandi og Chile veröi fyrstu
löndin þrjú, sem njóta tækni-
aðstoöar Sþ. við hagnýtingu
jarðhitans. Ef tækniaðstoðin
gefur góða raun og löndin reyn-
ast fær til að halda aukinni hag-
nýtingu áfram eftir að tækni-
aðstoðinni lýkur, er áætlað að
fleiri lönd fylgi í kjölfarið.
Tækniaðstoðin felst í því, að
löndin eru aðstoðuð við byrjun
og undirbúning að nýtingu jarð-
hitans. Innlendir starfskraftar
eru þjálfaðir upp samhliða
þessari starfsemi, þannig að þeir
geti tekið við framhaldsfram-
kvæmdum og haldið áfram frek-
ari hagnýtingu jarðhitans f
hverju landi.
— Leggur Sþ. áherzlu á
hagnýtingu jarðhitans, vegna
þess að raforka þaðan fengin
er ódýrarien frá öðrum orku-
gjöfum?
— Gamkvæmt reynslu Itala,
^ Bandaríkjamanna og
Nýsjálendinga hafa jarðhita-
stöðvar reynzt fullkomlega
samkeppnisfærar við aðrar raf-
orkustöðvar, þar með taldarmeð
alstórar vatnsaflsvirkjanir, eins
og þær hafa gerzt hériendis. —
Annað kemur elnnig til, sem er,
að aðrar orkul. eru oft fágætar
eða óhagkvæmar af ýmsum á-
stæðum. Salvador er t d. lítið
land með um fimmta hluta yfir-
borðs íslands, og eins og Island
með tiltölulega lítið undirlendi.
— íbúamir em aftur á móti um
3 milljónir og lifa aðallega á
jarðrækt. — Ef virkja ætti einu
á landsins, sem til þess er hæf,
yrðu þeir að leggja mikið af
ræktanlegu landi undir uppi-
stöðuvatn, sem verður að vera
þeim mun meir þar en annars
staðar, þar sem mikill munur er
á úrkomu eftir árstímum.
— En er jaröhitinn þá jafn
ömggur orkugjafi og t. d.
vatnsaflið?
— Cú reynsla, sem fengizt
’ hefur bæði hér og er-
lendis bendir tvfmælalaust til
þess, að jarðhitinn sé mjög
stöðugur orkugjafi að öllu jöfnu.
Á Reykjum hafa komið upp 300
sekúndulftrar í nær 30 ár, án
þess að vemlegrar breytingar
hafi oröið vart á svæöinu.
— Hefur verið áætlað hversu
mikill varmi er fyrir hendi f
Salvador?
— l\ei> en éS myndi ætla f
^ fljótu bragði að hann
væri álíka mikill og hér á suð-
vestanverðu Islandi en þetta
hefur ekki verið mælt upp enn.
— Tilgangurinn með starfsem-
inni í Salvador er f fyrsta lagi
að undirbúa rannsókn á hita-
svæðunum. I öðm lagi að bora
ákveðinn fjölda borhola. I
þriðja lagi mæla og prófa hol-
umar og í fjórða lagi að gera
áætlun um hagnýtingu jarðhit-
ans til raforkuvinnslu.
— Hvenær er áætlaö að þess-
Guðmundur Pálmason.
um undirbúningi verði lokið?
— Eftir 1—2 ár, ef allt geng-
ur eftir áætlun. Ég býst við að
ráðgjafastarfseminni verði fyrst
lokið í Salvador af löndunum
þremur.
— Og þú ert vongóður meö
árangur?
— Ég sé ekki ástæðu til neins
annars.
— Hlutverk þitt með ferðum
til þessara þjóða er fyrst og
fremst f ráðgjafaskyni. — Er þó
ekki hægt að segja að þú vfkkir
út þitt eigið sjónarsvið í ferðun-
um með því að hitta sérfræð-
inga í þessum málum frá hinum
jarðhitalöndunum fjómm?
— Tú, að sjálfsögðu er alltaf
" fróðlegt að kynnast jarð-
hitasvæðum annarra landa. —
1 seinustu ferðinni til Salvador
fórum við þrír saman, ég, Ný-
sjálendingur og Itali. Við vor-
um sendir til að kanna hvemig
allur undirbúningur gengi og
eigum að gefa skýrslu til Sþ.
um það. Einnig eigum við að
skila áliti til Sþ. um bón
ríkisstjómar Salvador um að
undirbúningurinn verði gerð-
ur á víðari grundvelli. — Með
samstarfi við þessa menn kynn-
ist maður óhjákvæmilega, hvað
er að gerast í þessum löndum
í því er varðar hagnýtingu
jarðhitans, sem er að mðrgu
leyti fróölegt fyrir okkur.
— V.J.
Tveir aðstoðarmenn Guðmundar á jarðhitasvæði 1 Salvador.
Skátafélag stofn-
að í Garðahreppi
Á sumardaginn fyrsta, hinn
20. aprfl s.l. var stofnað skáta-
félag í Garðahreppi. Stofn-
fundurinn var haldinn í skóla-
sal bamaskólans. Mættir vom
150 skátar úr Garðahreppi, auk
gesta, foreldra og skátaforingja
úr, Hraunbúum, Hafnarfirði.
Skátahöfðingi, Jónas B. Jóns-
son og varaskátahöfðingi, frú^
Hrefna Tynes sátu fundinn.
Fundurinn hófst með helgi-
stund. Prestur var séra Bragi
Friðriksson en skátar aðstoðuöu.
Félagsforingi, Ágúst Þorsteins-
son lýsti yfir stofnun félagsins,
vígði ljósálfa, ylfinga og nokkra
nýliða. Vígöur var nýr félags-
fáni.
Skátahöfðingi ávarpaöi skát-
ana og ámaði félaginu heilla.
Ennfremur flutti félagsforingi
Hraunbúa, Hörður Zóphaníasson
ávarp og flutti kveðjur og árn-
aðaróskir frá Hraunbúum.
1 lok fundarins þáðu allir
stofnendur og gestir veitingar f
boði stjórnarinnar. Stofnfund-
inum lauk með varðeldi.
Félagið hlaut nafnið Vífill, og
er nafnið tekiö úr Landnámu.
Skátar í Garöahreppi hafa til
þessa starfað í Hraunbúum í
Hafnarfirði. Mikill áhugi er ríkj-
andi fyrir skátastarfi í Garða-
hreppi, og hefur hreppsnefndin
látið skátunum í té ágætt hús-
næði í æskulýðsheimili hrepps-
ins og styrkt þá meö fjárfram-
lögum.
Stjóm skátafélagsins Vífils
skipa: Ágúst Þorsteinsson félags
foringi, Sigurgeir Óskarsson að-
stoðarfél.for. Vilbergur Júlíus-
son ritari, Helgi Már Eggertsson
gjaldkeri, Þórdís Hulda Ólafs-
dóttir, Guðrún Unnur Sigurðar-
dóttir, Alda Helgadóttir og
Helgi Bernharðsson.
Jöklor seljo
fvö frystiskip
H.f. Jöklar hafa ákveðið að selja
tvö af frystisklpum sfnum, m.s.
Langjökul og m.s. Drangajökul.
Kaupandi skipanna er Korea
Equipment Import Corporatlon,
Pyongyang, Norður-Kóreu. Sölu-
verð skipanna má telja að sé hag-
stætt.
Ástæðan til sölu skipanna er
fjárhagserfiðleikar við rekstur
þeirra. Eins og kunnugt er tók
Eimskipafélag Islands h.f. að sér
flutninga á frystum fiski fyrir
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna frá
1. aprfl 1965. Þá vom eigi lengur
verkefni fyrir skipin hér og hafa
þau siöan verið f flutningum er-
Iendis.
íslenzkum aðilum var gefinn
kostur á að kaupa skipin með svip-
uðum kjömrn, en þeir höfðu eigi
áhuga á kaupum á þessum grund-
velli.
Skipið verða afhent kaupendum
í Póllandi í næsta mánuði.
Félagið á önnur tvö skip og hef-
ur eigi komið til tals að selja þau.