Vísir - 03.06.1967, Side 1
Krefjast ranasóknar á
árásum og atvinnurógi
57. árg. — Laugardagur 3. júní 1967 — 124. tbl.
Vísi barst í gœr áskorun frá 69
starfsmönnum og konum Hampiöj-
unnar h.f. þar sem segir, að starfs-
fólkið fari þess á leit við stjórnir
stéttarfélaga þeirra, sem við fyrir-
tækið starfa, að þessar stjórnir
krefjist fyrir hönd félaganna rann-
sóknar á því. „hverjir standi raun-
Aflabrædurnir frá Sandgerði koma enn við sögu:
Fyrsta sumarsíldin á leið til lands
— Árni Gislason á Hórpu RE með 260 lestir
— Tv'ó ónnur skip hófðu fengið 100 lestir
hvort, en biðu átekta
Fyrsta síld sumarsins er á angursstjóra á síldarleilarskip
leið til landsins. í gær var síld-
arskipið Harpa RE, hið nýja og
glæsilega skip þelrra félaga hjá
Miðnesi í Sandgerði á fullri ferð
til Seyðisfjarðar með um 260
lestir. Skipstjóri á Hörpu e'r"
Ámi Gíslason, bróðir hinna
kunnu aflamanna, Þorsteins og
Eggerts, svo að segia má, að
þeir bræður ætli ekki að gera
það endasleppt. Síldin fékkst
langt norð-austur f hafl, um
400 mílur nokkum veginn rétt
vísandi norðaustur frá Langa-
nesi. í gær höfðu Seley SU 10
og Reykjaborg RE 25 einnig
fengið nokkurn afia, um 100
lestir hvor, en höfðu ekki lagt
af stað til lands, er síðast frétt-
Ist til í gærkvöldi, ætluðu að
bíða átekta fram eftir kvöldi
og sjá, hvort ekki veiddist
meira.
Vísir átti í gær tal við Jón
Einarsson, skipstjóra og leið-
inu Hafþóri, þar sem skipið var
statt um 370 sjómilur réttvís-
andi noröaustur frá Langanesi.
Var þar þá gott veður, örlítið
kul af noröaustri. Sagði Jón, að
þeir á Hafþóri hefðu lóðað á
margar ágætar torfur, en síldin
væri mjög stygg Þeir væru
alltaf að rekast á góðar torfur,
en ekki væri um að ræða góða
bletti til þessa. Hann kvað sild-
veiðibátana vera austar en Haf-
þór, þeir væru á 67 gráðum og
50 mín. norður breiddar og 1
gráðu og 30 mín. vesturlengdar,
en Hafþór væri nú á 68 gráðum
og 12 mín. norðurbreiddar og 2
gráðum 45 mín. vesturlengdar.
Hann kvaðst vita, að síldarbát-
arnir hefðu verið að kasta í dag,
en síldin hefði verið stygg, og
hann vissi ekki um árangurinn
af köstunum. Hann sagðist ætla
að leita eitthvað á þessum slóð-
um, en síðan færi hann líklega
vestar og sunnar.
verulega íyrir þeim stöðugu árásum
og atvinnurógi sem viðhafður er
um starfsemi Hampiðjunnar, og
þær vörur, sem við vinnum við að
framleiða" eins og segir bréfinu,
sem er undirritaö af 69 stafsmönn-
um og konum Hampiðjunnar. í bréf-
inu er tekið fram, að þessi krafa
um rannsóknina sé sett fram vegna
ummæla í áskorun togaraskip-
stjóra, sem birtist í dagblöðunum
18. og 19. mai s.l.
Umferðar-
talning
Margir borgarbúar hafa efalaust
tekið eftir því, að óvenjumikið hef-
ur verið um umferðartalningu á
götum borgarinnar undanfarið.
Hafa verið settir upp sjálfvirkir
teljarar víða um borgina, svo og
Frarah. á bls 10
Engar útiskemmtanir að kvöldi 17. júní
— Nær allar útiskemmtanir flytjast
inn i Laugardal
Hátíðahöldin í Reykjavík á
þjóðhátíðardaginn, 17. júni,
hafa nú að mestu leyti verið
ákveðin, en töluverðar breyt-
ingar verða nú á fyrirkomu-
lagi útihátíðahaldanna frá því
sem áður hefur tíðkazt. Úti-
skemmtanir verða nú nær all
ar fiuttar inn í Laugardal, en
að þessu sinni er ekki ráð-
gert að haida neina úti-
skemmtun um kvöldið. Úti-
dansleikir munu Ieggjast nið
ur, en í þess stað er ætlazt
til að hver skemmti sjálfum
sér í heimahúsum eða á dans
stöðum.
Valgarð Briem, formaður
þjóðhátíðarnefndar, sagði i við-
tali við Vísi, að dagskrá dagsins
hefði nú að mestu leyti verið
ákveðin, en þó gætu orðið smá-
breytingar á henni. Fyrir hádegi
þjóðhátíðardaginn verður haidin
hátíðarmessa og lagðir blóm-
sveigar að fótstalli styttunnar af
Jóni Sigurðssyni á Austurvelli
og á leiði hans í gamla kirkju-
garðinum.
Eftir hádegi mun forsætisráð-
herra flytja ræðu í Laugardal-
og fjallkonan flytur ávarp. —
Barnaskemmtun verður við I-
þróttahöllina og íþróttakeppni
verður á íþróttavellinum. Keppt
verður f sundi í nýju sundlaug-
inni og þjóðfatasýning verður
haldin á sundlaugarbakkanum.
Fáksfélagar halda hestasýn-
ingu og almenn húsdýrasýning
verður haldin fyrir yngstu borg-
arana. Tvær Mðrasveitir munu
skemmta hjá elliheimilunum og
lúðratónleikar verða haldnir í
skrúðgarðinum hjá Gróðrastöð-
inni í Laugardal.
'Um kvöldið verða engin opin-
ber skemmtiatriði, samkvæmt
þvi sem ráðgert er, en veitinga-
staöir borgarinnar verða opnir.
TÖLUR UM IÐNAÐINN
Um þessar mundir er nokkuð
deilt um, hvort vöxtur eða sam-
dráttur sé í iðnaði. Hagstofa ís
lands hefur birt um þetta töl-
ur, sem taka af allan vafa. Vís-
ir vill vekja athvgli á þessum
tölum, sem komu í Hagtíðindum
í vetur, og birtir á bls. 7 í dag
úrdrátt úr þeim upplýsingum.
Dagblaðið Tíminn hefur und
anfarið haft stór orð um „hrun“
iönaðarins. Listinn yfir hrunið
birtist þar í blaðinu í gær og
var ákaflega magur miðað við
stóryrðin. Að mestu saman-
stendur listinn af fyrirtækjum
Magnúsar Víglundssonar og að
auki eru þar fyrirtæki, sem
voru orðin gjaldþrota fyrir við-
reisnartíma. Fyrir hvert hinna
fyrirtækjanna á listanum hafa
fjölmörg ný komið í staðinn
eða hafa stóraukið framleiðslu
sína eins og tölur sanna.
Þjóðviljinn segir mannafla í
iðnaði hafa minnkað um 30%
á viðreisnartíma og vitnar í fé-
lagatal eins verkalýðsfélags!
Raunar hefur mannafli í iðnaði
aukizt á þessum tíma úr 16.900
manns í 20.000 manns.
Hlutlausar tölur eru betri
mælikvarði á iðnaðinn en stór-
yrði taugaveiklaðra stjómmála-
manna. En þróunina er einnig
hægt að sjá með þvi að líta
í kringum sig í Múlahverfinu,
Iðngarðahverfinu og viðar.
Þannig var byrjunin, — Wacho sjóflugvél...
F.Í. 30 ÁRA
□ Sennilega hefðu íáir trúaö
því fyrir 30 árum, að íslendingar
mundu eiga eftir að fljúga með
yfir 300 þús. farþega milli landa
1967 — að islendingar mundu eiga
farkost þá, sem gæti flogiö milli
Kaupmannahafnar og Reykjavíkur
á röskum tveim tímum og 15 mínút
um og aðeins 15 mínútum miili
Reykjavíkur og Akureyrar, — enda
flaug fyrsta fiugvél F.Í., Örninn,
á rúmum 2 tímum og 15 mínútum
þessa síðarnefndu flugleið.
□ Upphaf þessa ævintýris er
einmitt stofnun Flugfélags Islands,
fyrir réttum 30 árum, sem átti sér
stað á Akureyri og í dag er flugið
álitiö sjálfsagður og eðlilegur þátt-
ur f lífi fólks, en var þá álitið
meira við hæfi ofurhuga og ævin-
týramanna.
□ Fyrsta farþegaflugið var
þann 4. júní 1937, daginn eftlr
stofnunina, flugmaður var Agnar
Kofoed-Hansen, flugmálastjóri,
en farþegi hans var Ingólfur Krist-
jánsson, bóndi á Jódísarstöðum í
Eyjafiröi, en flugvélin var Wacho-
sjóflugvélin TF-ÖRN.
. og þannig verður það innan skamms, — Boeing 727 þota.(