Vísir - 03.06.1967, Blaðsíða 3
V?f*S-IR. Laugardagur 3. júní 1967.
Þessi mynd er tekin úr lofti af
framkvæmdunum í Straumsvík.
Neðarlega til hægri má sjá
grunna að þrem bráðabirgða-
svcfnskálum, nálægt miðju sést
vöruskemma (braggi), sem þeg-
ar hefur verið tekin í notkun.
Rétt neðan við vöruskemmuna
sést grunnur að skrifstofubygg-
ingum ÍSALs. Lengst til vinstri
á nesinu sést byrjunin á hafn-
argarðinum, en þær framkvæmd
ir eru á vegum Hafnarfjarðar-
kaupstaðar.
Frá framkvæmd-
um í Straumsvík
r- • • f ................
) i.... '
, i íJA |
Unnið hefur verið að því að jafna landið og slétta fyrir verksmiðjubyggingamar. Þama var hraun
og klappir. Ýtt hefur verið úr hæðum ofan í lautir, en öllum afgangsjarðvegi verið ekið í hafnar-
garðinn á þessum stóm flutningabílum, sem sjást þama í baksýn. Áhaldið, sem mennimir tveir em
að vinna við t. v., er til þess að kanna hvort no kkurs staðar sé holt undir. Engin hætta má vera
á því, að jarðvegurinn sígi undir þeim þunga, sem þarna á að koma ofan á.
Mest öll vinnan hefur verið unnin af þungavinnuvélum, stórum
krönum, jarðýtum og stómm flutningabílum.
...... |................I...|............1...............I............Jf.........
Hér em tveir menn hjá ÍSAL að slá upp fyrir undirstöðum undir
svefnskála. Ráðgert er að ljúka við einn svefnskála, siðan að
byggja mötuneytiö og svo skrifstofurnar. Þegar hægt verður að
flytja í skrifstofurnar, verður tekið til við fleiri svefnskála.
Hér er verið að reisa einn svefnskálann. Þessir skálar eru fluttir inn tilbúnir frá Kanada, og þarf
ekkert viö þá að gera annað en reisa þá upp og raða saman hinum einstöku hlutum. Undirstöðum-
ar fyrir skálana þrjá og eldhús og matskála er þegar búið aö steypa. Kanadiskt fyrirtæki (ATCO)
hefur rramleitt þessa skála, sem verða aðeins til bráðabirgða, og einnig eldhús og matskála. Gert
er ráð fyrir aö unnt verði að flytja inn í skálana í júní og þá verði mötuneytið tilbúið um leið.