Vísir - 06.06.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 06.06.1967, Blaðsíða 1
Nokkrir leigubílstjórar króuðu bílþjófinn af 57. árg. - Þriðjudagur 6. júttí 1907. - 126. 4bl. Lögreglunni var tilkynnt, rétt fyrir klukkan þrjú í nótt, að maður vaeri að gera tiiraun til þess að stela bifreið, skammt frá gatnamótum Þverholts og Stakkholts. Þegar lögreglan kom hafði maðurinn stolið bíln- um, en nokkrir leigubílstjórar höfðu króað hann af á bílum sínum í Mjölnisholti. Samdóma ólit formanna þingflokkanna i sjónvarpinu i gærkvóldi Kosningarnar snúast um efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar m Formenn þingflokk- anna leiddu saman hesta sína í sjónvarpinu í gær- kvöídi. Voru þeir yfír- leitt sammála um, að kosningamar snerust fyrst og fremst um efna hagsstefnuna, sem fylgt hefur verið á undanföm um áruni, og hvort veita eigi henni brautargengi áfram. Formenn stjórnarandstöðunn- ar, Eysteinn Jónsson og Lúðvik Jósefsson, sögðu rfkisstjómina vera neikvæða i garð fslenzkra atvinnuvega, bera vantrú til þeirra, og vilja erlendan atvinnu rekstur ( stað þeirra. Lúðvik sagði, að atvinnuvegirnir væru ,,að falla út“, en Eysteinn sagði, að rfkisstjómin legði „herfjöt- ur á atvinnuvegina“, lamaði þá „af ásettu ráði“ til þess að þjóna erlendu fjármagni. Formenn stjómarliðsins, Bjarni Benediktsson og Emil Jónsson, sögðu, að atvinnuvegirnir hefðu verið endumýjaðir að tækjum og búnaði á stjómartíma ríkis- stjórnarinnar. Þjóðareignin hefði aukizt um 13.000 milljónir króna á tímabilinu og væri mest af þeirri eign hjá atvinnuvegun- um. Bjarni Benediktsson forsætis ráðherra sagði, að frjálsræðis-* stefnan, sem tekin var upp 1960 í stað gömlu haftastefnunnar, hefði sýnt gildi sitt. Nú væri kosið um áframhald þeirrar stefnu eða hvort tekin skvldi upp undir forustu stjórnarand- stöðuflokkanna ný stefna, sem væri meira eða minna óviss, en örugglega fæli í sér ný höft. Frelsisstefnan heföi leyst at- hafnaþrá þjóðarinnar úr læð- ingi á viðreisnartímanum og af því stöfuðu framfarirnar og hin stórbættu kjör almennings. Hún hefði skapað styrkt efnahags- kerfi, sem hefði getað mætt á- föllum eins og verðfallinu á út- flutningsafurðunum og aflabrest inum á vetrarvertíðinni, án þess að til hafta hefði þurft að grípa. Hann benti á, að tillögur stjórn- arandstæðinga um stóraukin rík isafskipti af atvinnulífi og stór-! aukna ríkisforsjá fælu í sér aft- urhvarf til haftastefnunnar. Stjómmálamenn verða að kunna sér hóf og reyna ekki að segja alls staðar fyrir verkum, sagði Bjami. Loks sagði Bjarni Skoðanir formanna stjórnarandstöðunnar vera svartsýni manna, sem héldu, að allir væm eins ráða- lausir og þeir sjálfir eru nú, og voru 1958, þegar þeir hlupust á brott úr rikisstjóm frá glund- roðanum, sem þeir höfðu skap- að. Varaði hann við þvf, að þeir fengju aftur tækifæri til að stofna til glundroða á nýjan leik. Var það leigubílstjóri sem hafði orðið var við athæfi mannsins Með aðstoð flein leigubílstjóra tókst að króa hann af, þegar hann aetlaði að aka á brott. Héldu leigubíl stjórarnir honum þannig föst- um, unz lögreglan kom og hirt' hann. í Ijós kom aö maðurinn vai undir áhrifum áfengis og vissi hann ekkert, hver eigandi bíls- ins væri. Játaði hann að hafa ætlað að næla sér þama í far- artæki, til þess að komast á heim til sín. Lögreglan flutti hann siðan inn í Síðumúla, eftir að gerð hafði verið á honum blóðrannsókn. Sat hann inni í Síðumúla í nótt. Leigubilstjórarnir sýndu þarna mikið snarræði, en þetta er ekki i fyrsta sinn, sem menn úr þeirri atvinnustétt eru lög- reglunni til ómetanlegrar að- stoðar. Hafa þeir oft verið lög- reglunni hjálpsamir við að finna stolna bila og jafnvel ekki talið eftir sér að elta bílþjófa eða drukkna stórhættulega öku- þóra langtímum saman. A sauðskinnsskóm ogupp- hkit ú burdagasvæðinu Ég sé enga sérstaka ástæðu til þess að vera hræddur um ferðamannahópinn, sem er á mínum vegum í Jórdaniu nú, sagði Guöni Þórðarson, forstjóri um morguninn haft samband ferðaskrifstofunnar Sunnu, þeg við skrifstofur flugfélagsins ar Vísir hafði tal af honum f MEA í London, en samkvæmt morgun. — Guðni hafði þá fyrr Framhald á bls. 10 Lítil sem engin síUveiíi / nótt Litil sem engin sildveiöi var í nótt. Visir átti í morgun tal við Sigurð Ámason, skipherra á Ægi, sem er á leið á síidarmiðin. Kvaðst Sigurður aðeins vita um eitt skip, sem fengiö hefði einhvem afla í nótt, Jón Kjartansson, sem hefði fengið einhvern slatta. Hann hefði fengið afla í fyrrinótt, en ekki nægilegt magn til aö tæki því að fara með hann til hafnar. Sildar- skipin eru á 68 gráðum og 30 min norður breiddar og 4 gráðum vestur lengdar. Þar var í morgun ágætis veður. Vísi er kunnugt um að eftirtalin skip lönduðu á Austfjarðahöfnum Síðustu fréttir Israelsmenn segjast hafa skot ið niður 15 óvinaflugvélar í morgun, sex sovétbyggðar sprengjuflugvélar af gerðinni Sohoy—7 og tvær af MIG-gerð yfir Sinai-auðninni. Sex íraksk- ar flugvélar af franskri gerð vom eyðilagðar á flugvelli í írak og íröksk sprengjuflugvél var skotin niður yfir israel. um helgina, þ.e. á laugardag og á sunnudag: Til Seyðisfjarðar komu: Harpa RE 260 lestir, Ólafur Magnússon EA 200 og Reykjaborg RE með 260 lestir. Til Neskaup- Framhald á bls. 10 Á mörkum borgarhlutanna í Jerúsalem eru skot-turnar — mannaðir nótt sem dag jafnvel á friðartímum. ISRAELSMCNN f SÓKN Hafa sótt 70 km. inn i Egyptaland og tekid nafngreinda bæi />ar og i Jórdaniu — Hafa lamað egypzka flugherinn með /w oð granda nær 400 flugvélum ísraelsmönnum virðist hafa veitt betur í bardög- um í gær, en þeir segjast hafa hertekið nokkra nafn greinda staði og hafa sótt fram 70 kílómetra inn í Egyptaland. Segjast þeir hafa eyðilagt hátt upp í 400 flugvélar fyrir Egypt- um, flestar á jörðu, og muni það taka 10 ár að byggja upp egypzka flug- flotann að nýju. Barizt var í nótt í hinni helgu borg Jerúsalem og eldar eru sagðir loga í báðum borg- arhlutum. Egyptar segjast einnig hafa unnið á og sótt inn í ísrael. Barizt er á öll- um vígstöðvum, en í Ör yggisráði hefur ekkert sam komulag náðst um áskor- un um vopnahlé, og kem- ur ráðið saman á nýjan fund í dag. Innbyrðis við- ræður í gær leiddu ekki til neins samkomulags. Frá sókn ísraelsmanna Samkvæmt ísraelskri herstjóm- artilkynningu í morgun hafa ísra- elsmenn tekið bæinn Jenin í Jord- aníu, þorpin Beir Ixa og Nebi Sam Framhald á bls. 7

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.