Vísir - 06.06.1967, Blaðsíða 3
vraTK . prrojudagur 6. Jtmr r96r.
S
í
'œrw' *
Wfi*-
......
Átta þúsund á skátahátíð á Gleráreyrum
V/'eniulega streymir Glerá
’ með slnum jafna nið í krók-
um niður eftir hlíðum, undir
brýr, eftir gljúfrinu þar sem lítil
rafstöð stendur og áfram hægt
og rólega undir gömlu brúna
niður eftir eyrunum og loks á
haf út.
Norðan við ána er „þorpið",
sem Akureyringar kalla svo í
daglegu máli, þótt það sé ekkert
þorp lengur með fjölda nýbygg-
inga og fyrir löngu innlimað í
„höfuðstaðinn" sunnan árinnar.
Þessi rólegi niður árinnar var
rofinn svo um munaöi á sunnu-
daginn, þegar bæjarbúar þyrpt-
ust þús. saman niður á eyr-
arnar. Allt f éinu var komin
göngubrú yfir Glerá og það var
troðningur að komast yfir hana
þótt allt færi fram með róleg-
heitum þó, furðulegar stengur
og tjöld höföu risið upp með
ógnarhraöa, frá einum staðnum
heyrðust hin kynlegustu dýra-
hljóð og var meðal dýranna api,
sem vakti eftirtekt og hrifningu
eldri og einkum þeirra yngri, á
einum stað stóð skilti merkt
því einkennilega orði cirkus og
þar komu fram ýmsir skemmti-
kraftar. Allt var á ferð og flugi,
aldrei hefur fjörið verið meira á
Gleráreyrum. Þetta var skemmti
leg tilbreytni fyrir bæjarbúa,
sem eflaust hafa þakkað skát-
unum, sem stóðu fyrir þessu
öllu af alhug. Skátarnir minnt-
ust hins vegar á þennan
skemmtilega hátt 50 ára afmæl-
is skátastarfseminnar á Akur-
eyri .— meö þátttöku flestra
íbúa bæjarinr eða átta þúsund
manns
Þannig hugsaði einhver hugmyndaríkur skáti sér að skátinn og skátaútbúnaöurinn Iiti út
fimmtíu ár.
Lciksvæði fyrir börn og full-
orðna var vinsælt. Héma sést
einn snáði í lyftingum. Á leik-
svæðinu var ýmislegt um aö
vera, þar voru skotbakkar,
skrautvagn, sem dreginn var af
hesti, og margt fleira.
wm
Frumkvööull skátastarfsemi á Akureyri, Wiggo Öfjord, með kónu sinni, voru heiðursgestir afmælis-
mótsins. Á myndinni sjást þau hjónin til hægri ásamt Dúa Bjömssyni skátaforingja t. v.
Um átta þúsund manns sóttu afmælismót skátanna. Hérn.a sést
inngangshliðið og mannfjöldinn, sem streymir að.
Starfsemi skátanna um fimmtíu ár var kynnt með ýmsu móti. Hér er kynning með myndum og flöggum.