Vísir - 07.06.1967, Blaðsíða 5
V ívSI R . Miðvikudagur 7. júrn' 1967,
5
Sjálfboðaliðar
Sjálfstæðisflokkinn vantar sjálfboðaliða til að
vinna á kjördag. — Hafið samband við skrifstofu
flokksins, Thorvaldsensstræti. Sími 17-100.
Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna
Ritstjórar: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Sigurður Á. Jensson
6LÆSILE6 K0SNIN6ASKCMM TUN
á kosningaskemmtun unga fóiksins í LÍDÓ
Siðastliöið sunnudagskvöld var
haldrn kosningaskemmtun í Lidó
fjírir unga fólkið. Heppnaðist
skemmtun þessi afbragðs vel og
tókst að öllu leyti eins og bezt
varð á kosið. Skemmtunin hófst
meö þvi að formaður Heimdallar,
Ólafur B. Thors, bauð gesti vel-
komna og kynnti ræðumenn og
skemmtikrafta kvöldsins.
Ræðum hins unga sjálfstæðis-
föiks var mjög vel tekið og víst
er að mikill baráttuhugur er í röð-
um unga fólksins og vilji og áhugi
til þess að gera sigur Sjáfstæðis-
flokksins. sem stærstan í komandi
kosningum. Skemmtikröftunum,
þeim Ómari Ragnarssyni, Bessa
Bjamasyni og Gunnar Eyjólfssyni
var einnig sérstaklega vel fagnað.
Hljómsveit Ólafs Gauks lék fyrir
dansinum sem dunaði fram til kl.
1 eftir miðnætti. Vegna þess hve
margir urðu frá að hverfa, hefur
Heimdallur ákveöið aö efna til
annarrar kosningaskemmtunar,
sem getur þó ekki orðið fyrr en í
næstu viku. Verður skemmtun þessi
auglýst nánar síðar.
Hér á eftir birtast úrdrættir úr
þeim ræöum er fluttar voru:
„Hvers konar stjómmálastarf-
semi fylgir þjóöfélagsleg ábyrgð,
og þess vegna veröur að gera
kröfu til að fólk geri sitt bezta
til að komast að raunhæfum og
sanngjörnum niðurstöðum um
vandamál hins íslénzka þjóðfé-
lags. Sem betur fer hugsar
sumt fólk mikið um stjómmál,
og reynir að kryfja málefnin til
mergjar. Aðrir hafa engar skoð-
anir, hvorki fengnar að láni né
gefins — og veit ég ekki hvort
verra er, sinno'^ysið eða hin
aðfengna skoöun. Það er skylda,
hrein og bein skylda hvers ein-
staklings í siðmenntuðu þjóðfé-
Fjölmenni var, eins og myndin ber með sér.
lagi, hvort sem hann er ungur
eða gamall, karl eða kona, að
vita hvað er að gerast í þeim
heimi sem hann lifir í og f þvi
landi, hvers þegn hann er“.
Kristín Sigurösson,
menntaskólanemi.
„Lifsskoðun framsækinnar
æsku fer saman við skoöun
Sjálfstæðismanna á nútímaþjóð-
félagl. Æskan er andvíg ofveldi
stjórnmálamanna, hún er and-
víg valdi beirra yfir lífi fólks-
ins og starfi. Hún lætur ekki
segja sér hvenær hún stofnar fé
lög vegna sameiginlegra áhuga-
mála. Æskan stendur vörð um
Iýðræðlð og styður Sjálfstæðis-
flokkinn til að efla og treysta
■aoBBW wmmmumm
Iýðræðið í landinu. Stefna
flokksins er ung, hún er síung,
en hún er broskuð, maðurinn
sjálfur situr í öndvegi. I því
felst okkar styrkur.
Það er á valdt æskunnar,
hvort áfram verður vor og sum-
ar í íslenzku þjóölífi. Sigur Sjálf
stæðisflokksins er því jafnframt
sigur íslenzkrar æsku. Þess
vegna leiðir æskan Sjálfstæðis-
flokksins fram tll sigurs í kom-
andi kosningum“.
Ármann Sveinsson,
laganemi.
„Val okkar er því aðeins um
tvennt: annaðhvort einstaklings
frelsi, athafnafrelsi og réttínn
til að velja þær vörur og þá þjón
ustu, sem einstaklingnum finnst
bezt á hverium tíma.
eða stefnu andstæðingaflokk-
anná sem vilja að útreiknaðar
þarfir þjóðfélagsins ráði vöru-
vali og athöfnum.
Við Sjálfstæðismenn viljum
ekki Iáta ríkisvaldið stjórna því
hvaða matur er borin fyrir fjöl-
skyldur okkar,
við Sjálfstæðismenn viljum
ekki láta ríkísvaldið ráða því
hvort við hefium framkvæmdir
eða endurbætur á okkar eigin
eignum.
Nel, við viljum ekki afsala
okkur þeim sjálfsögðu mannrétt
indum, sem við búum við núna,
viö viljum efla og styðia stöðu
einstaklingsins ! þjóðfélaginu
með stuðningi okkar við sjálf-
stæöisstefnuna og Sjálfstæöis-
flokkinn“.
Jón Sigurðsson
verzlunarmaður.
„Við skulum gera okkur
grein fyrir því, að enginn sigur
vinnst án baráttu og aö án sig-
urs Sjálfstæðisflokksins er þessi
þjóð orðin að leiksoppi sundur-
lyndra ævintýramanna, sem í
upphafi viðreisnarinnar spáðu
móðuharðindum af mannavöld-
um, manna sem spáðu því af
miklum móði að innan mjög
skamms tíma yrðu um 4000 ís-
lendingar atvinnulausir og að
algjört neyðarástand væri að
ganga yfir þjóðina. Við vitum
nú hvernig þetta tímabil hefur
veriö. Það hefur verið timabil
mestu framfara i sögu þjóðar-
innar, framfara sem hafa verið
örari en hjá nokkurri annarri
þjóð i veröldinni á sama tíma.
Ef við, unga Sjálfstæðisfólk,
leggjum okkur fram í kosninga-
baráttunni, eins og okkur
framast er unnt, mun Sjálfstæð-
isflokkurinn koma sterkari út úr
þessum kosningum en nokkru
sinni fyrr, iandi og þjóö til
blessunar. Þá mun enn blasa
við tími frelsis og framfara, timi
hagsældar og hamingju“.
Haraldur Sumarliðason,
trésmiður.