Vísir - 23.06.1967, Síða 2
V í S IR . Föstudagur 23. júní 1967
ísland tapaðí fyrír
3-5
eftir að hafa haft yfir 3-2 í síðari
hálfleik. Hitinn þjakaði íslenzka
liðið er leið á leikSnn
islendingar eru úr undankeppni Olympíuleikanna í knattspymu.
íslenzka liðið tapaði í gærkveldi síðari leiknum við Spánverja, 3:5
eftir að hafa haft forystu í síðari hálfleik, 3:2. En hitinn og hið
þunna loftslag hafði meiri áhrif á íslenzka liðið en hið spánska
og á þeim tíma sem eftir var, skoruðu Spánverjar þrjú mörk, en
islendingarnir ekkert.
Sundmeistaramót ís-
lands hefst á morgun
— geysimikil þátttaka utan af landi
Aöalhluti Sundmeistaramóts ís-
lands hefst í Laugardalslauginnl á
morgun, laugardag kl. 3 e. h. Geysi-
mikil þátttaka er í mótinu og lík-
lega á þetta sundmeistarmót eftir
að marka þáttaskil í íslenzkum sund
málum, því aö þetta er fyrsta sund
meistaramótiö, sem haldiö er í hinnl
50 metra laug í Laugardainum.
Ánægjulegust er hin mikla þátt-
taka sundfólks utan af landi, en auk
sundfólks úr Reykjavík tekur fólk
frá eftirtöldum stööum þátt í mót-
inu: Akranesi, Keflavík, Selfossi,
Hafrarfirði, Stykkishólmi og ísa-
firði.
Mest er þátttakan í 100 m skrið-
sundi karla, en þar eru keppendur
20 talsins og þeim er skipt í 3
riðla. 1 100 m bringusundi eru
einnig margir keppendur, 14 talsins
í 2 riðlum. Meðal keppenda er flest
af beztu sundmönnum og konum
landsins, svo sem: Guðmundur
Gíslason, Guömundur Þ. Haröar-
son, Fylkir Ágústsson, Hrafnhild-
ur Kristjánsdóttir, Matthildur Guð-
mundsdóttir og Guðmunda Guö-
mundsdóttir.
Fyrra dag keppninnar verður
keppt í eftirtöldum greinum: 100
m skriðsundi karla, 100 m bringu-
sundi karla, 200 m bringusundi kv.
400 m skriðsundi kvenna, 100 m
skriðsundi telpna, 100 m skriðsundi
sveina, 200 m baksundi karia, 100
m baksundi kvenna, 200 m fjór-
sundi karla, 4x100 m skriðsundi
kvenna og 4x100 m fjórsundi karla.
Eins og fyrr segir hefst keppnin
báða dagana kl. 15. eða kl. 3 e. h.
Búast má við miklu fjölmenni, þar
sem mjög ánægjulegt er að fylgjast
með þessari skemmtilegu íþrótt við
hin góðu skilyrði í lauginni nýju.
| iy Leikurinn var í byrjun frekar
: jafn, en á 31. mín. komst v-út-
herji Spánverja, Mixa, í gott færi
og náði að skjóta og skora, 0—1.
ic Aðeins nokkrum mínútum síð-
ar jafnar Magnús Torfason með
fallegu skoti, 1—1.
iy En v-útherji Spánverja hafði
í ekki sagt sitt síðasta orð, því að
^ nokkrum mínútum fyrir leikhlé,
skorar hann enn og nú standa leik-
| ar 1—2, Spáni í hag, og þannig var
staðan í hléi.
it Er Spánverjar höfðu náð for-
ystunni, færðist íslenzka liðið allt
í aukana og náði oft hættulegum
sóknarlotum, og skömmu eftir að
síðari hálfleikur hafði hafizt, skor-
aði Eyleifur Hafsteinsson og jafn-
aði þar með fyrir ísland 2—2.
★ Og enn halda íslendingar áfram
að sækja og enn skera þeir ríku-
lega upp, er hinn fótfrái Kári Árna-
son komst inn fyrir og skoraöi
nokkuð auðveldlega og náði þar
með forustunni fyrir íslendinga
3—2.
★ En Spánverjar höfðu sannar-
|lega ekki sagt sitt stðasta orð, og
, alls ekki einn leikmaður þeirra
Aparchiro heitir hann, því að á
þeim leiktíma, sem eftir var skor-
aði hann hvorki meira né minna
en þrjú mörk fyrir lið sitt og gerði
því út um leikinn. Síðasta mark
hans kom aðeins nokkrum mínútum
! fyrir leikslok.
Islendingar mega vel við una,
þar sem þess verður að gæta, að^
spánska áhugamannalandsliöiö er
eitt hið sterkasta í Evrópu. Síö-
ustu mtnútur leiksins þjakaði hit-
inn tslenzka liðið mjög og lagðist
það í vöm. Ekki bætti úr skák, að
einn bezti maður liðsins í gær,
Guðmundur Pétursson varð að yfir
gefa leikvöllinn í síðari hálfleik
1 vegna meiðsla. Magnús Torfason
og Eyleifur Hafsteinsson stóðu sigj síðari. Framlínan var ekki nógu
mjög vel í leiknum í gær, svo; virk, og upphlaup íslenzka liðsins
og Guðmundur eins og fyrr segir. byggðist um of á einstaklingsfram-
Vörn liðsins var þétt í fyrri háif- taki.
leik, en gaf sig nokkuð í þeim
KÁRI
EYLEIFUR MAGNUS
Þeir skoruðu mörk íslands í gær
STUTT...
Svíar hafa nú valið landslið sitt
í knattspyrnu, sem leika á við
Dani á Idrætsparken i Kaupmanna-
höfn á sunnudag. Liðið er þannig,
talið frá markverði til v-útherja:
Sven-Gunnar Larson (Örebro),
Hans Selander (Helsingborg), Kurt
Axelson (Gais), Björn Nordqvist
(Norrköping), Jan Karlson (Bro-
mölla), Jan Olson (Gais), Ingvar
Svenson (Göteborg), Inge Daniels-
son (Helsingborg), Leif Ericson
(Sirius), Agne Simonson (Örgyte)
og Tom Tureson (Hammarby).
Norðmenn og Búlgarar leika
landsleik á Ulleval-leikvanginum
utan viö Osló n. k. fimmtudag.
Leikurinn er liður í Evrópumeist-
arakeppni landsliða. Norska liðið
er þannig: Kjell Kaspersen (Skeid),
Arild Mathisen (Valeringen), Roar
Johansen (Frederikstad), Finn
Thorsen (Skeid) Nils A. Eggen
(Rosenborg), Trygve Bomö (Skeid),
Olaf Nilsen (Viking), Harald Sunde
(Rosenborg), Odd Iversen (Rosen-
borg) Harald Berg (Lyn) og Kjetil
Hásund (Hödd). Eins og á upptaln-
ingunni sést, eru þama 3 ieikmenn
Rosenborg liðsins, sem hér spilaði
móti KR í Evrópukeppninni í hitt-
eðfyrra. Rosenborg er nú efst i
norsku deildakcppnlnni.
Á alþjóðlegu frjálsíþróttamótl í
Austur-Berlín fyrir stuttu náðist
eftirfarandi árangur: 5000 m hlaup:
Ron Clark, Ástraiíu, 13:39,0 mín.
2. Jurgen Haase, A-Þýzkalandi
13:50,4 min. Kringlukast: Danek,
Tékkóslóvakía, 62,36 m. 100 m
hlaup Giannatassio, Italíu, 10,5 sek.
Figuorola, Kúbu, meiddist og varð
i fjórði á tímanum 10,7 sek. Stangar-
stökk: Nortwig, A-Þýzkalandi, 4,90
m. Finninn Pehkoranta og sovét-
maðurinn Kejda stukku sömu hæð.
800 m hlaup: Matuschewski, A-
Þýzkalandi, 1:49,5 mín.
Gjöf til KKI:
Körhiboltí árítaSur af
!
ttfB_ BL B ® | ameriskir hermenn, sem hér j
m BB^BBB^BBiá^ B^MffBBBB ! SeSndu herþjónustu á tfmum :
vkfBB VrBBBBB&%jB flffffl j síðari heimsstyrjaldarinnar. Með !
j al þeirra er Mr. David Zinkoff, :
_. „ I einn af forystumönnum amer-;
Eins og sagt var frá x blaðmu| í gær, eru hér staddir nokkrir, íska körfuknattleiksliðsins Phila
I delphia 76’ers, sem nú er talið i
j bezta körfuknattleikslið heims. ■
Liðið vann á síðasta keppnis- '
tfmabili amerísku atvinnu- j
mannakeppnina (NBA), og sýndi :
all mikla yfirburði yfir andstæð
ingana.
Meöal liðsmanna Philadelphia
76 ’ers er hinn víðfrægi körfu-
knattleiksmaður Wilt Chamberlain,
sem er talinn hæst launaði at-
vinnuíþróttamaður í heimi. Mr.
Zinkoff kom meðan á dvölinni hér
stóð, að máli við Boga Þorsteins-
son formann Körfuknattleikssam-
bands Islands og færði sambandinu
að gjöf körfubolta, áritaðan af
ieikmönnum hins fræga liðs. Jafn-
framt tjáöi hann vilja sinn til að
gefa stóran bikar til keppni f
körfuknattleik hér á landi. Bogi
afhenti honum að gjöf merki Körfu-
knattleikssambandsins og tjáði hon
______________________________________um innilegar þakkir íslenzkra körfu
Bogi afhendir Mr. Zinkoff merki KKl. (Ljósm. Magnús). knattleiksmanna.
Frá leik Finna og Rússa á þriðjudag. Markvörður Finna, Lars Násemann
slær knöttinn frá sóknarmanni Sovétmanna.