Vísir - 23.06.1967, Side 3
VISIR . Föstudagur 23. júní 1967.
J
YHDSJ
■
' 1 :
Wmmmi
■
;
Hann Magnús ljósmyndari
gerði það af skömmum sínum
hér á dögunum að taka myndir
af fólki í bænum, án þess að
það vissi af.
Magnús notaði svokallaða að-
dráttarlinsu við iðju sina og sjá-
um við hluta af árangrinum f
Myndsjánni í dag.
★
1 trjágaröinum við Hringbraut
lágu tveir fullorðnir bæjar-
vinnumenn og hvíldu lúin bein.
Það var indælis veður þennan
dag og nutu karlamir þess
greinilega af heilum hug. Mynd-
in af þeirn gefur það líka til
kynna svo ekki verður um villzt
Nú er ekki þar með sagt að
karlarnir geti flatmagað í sól-
skininu daginn út og inn og
enginn skyldi efast um að
þessir tveir hafi skilað sínu
dagsverki.
★ • -t ! ■"
1 garðinum við LækjargÖtu,
þar sem Hafnarfjarðarvagnarnir
hafa aðsetur og „Móðurást"
trónar á stalli, situr gamall
maður og lætur líöa úr göngu-
þreyttum fótum sínum. Hann
dregur sígarettustubb úr vas-
anum og leitar að eldspýtum.
• Eftir nokkra leit finnur hann
eldspýturnar, kveikir í stubbn-
um og blár reykurinn liðast inn
milli triágreinanna, sem eru
rétt að byrja aö laufgast.
Fulloröin kona í Skipholtinu
hefur sett á sig skuplu, tekið
sér strákúst i hönd og notar
góða veðrið tii að sópa gang-
stéttina utan við húsið sitt.
Hún gengur rösklega til verks
og þeytir rykinu af gangstétt-
inni út á götuna þar sem það
dreifist og hverfur út yfir
svart malbikið.
★
I Aðalstræti hefur leigubil-
stjóri stöðvað farartæki sitt til
að hleypa út farþégum, konu
með litla dóttur sína. Hvemig
sem á þvi stendur lætur bíl-
stjórinn þær mæðgumar fara
út úr bílnum umferðarmegin í
stað þess að hleypa þeim út
gangstéttarmegin.
>ví miður er þetta ekki ó-
algeng sjón og ættu atvinnu-
bílstjórar ekki að láta slíkt
henda sig.
★
Það getur verið erfitt að
komast yfir aðalumferðargöt-
urnar i borginni. Sem betur fer
hafa margir bifreiðarstjórar
tekið upp þann sið, að gefa fót-
gangendum kost á að komast
yfir götur með því að stöðva
farartæki sín og gefa merki um
að öilu sé óhætt fyrir fólkið,
en það var einmitt í slíku til-
felli sem myndin neðst á síð-
unni til hægri var tekin, í Aust-
urstræti.
★
Við hornið á húsi einu við
Skólabraut stendur maður með
hatt og ræðir við lögregluþjón.
Menn eiga ýmis erindi við lög-
regluna. Kannski er sá með
hattinn ókunnugur í borginni
og spyr lögregluþjóninn til veg
ar, en þaö getur einnig verið
að þeir þekkist eitthvað og
spyrji hvern annan tíðinda.
Þegar enginn veit
0
■3
G
U
<n
<
f
0