Vísir - 23.06.1967, Síða 8

Vísir - 23.06.1967, Síða 8
8 VÍSIR . Föstudagur 23. júni 1967 VÍSIR Utgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands í lausasölu kr. 7.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. „Grandeur" og o/ío Arabalöndin framleiða mikinn hluta af olíunni, sem notuð er á Vesturlöndum. Vegna þessarar mikilvægu vöru hafa Arabalöndin sterka stjómmálalega aðstöðu gagnvart Vesturlöndum og færa sér hana í nyt. Bret- ar og Bandaríkjamenn hafa mikilla hagsmuna að gæta í olíulindunum á þessum stöðum og reyna því eftir megni að forðast að styggja leiðtoga Arabaríkjanna. Hefur það m.a. komið fram í fsraelsstríðinu. Vest- urveldin lýstu yfir hlutleysi, þótt samúð þeirra sé með ísrael. Arabalöndin em einnig margfalt víðlend- ari og fjölmennari en ísrael. Ef Machiavelli væri á lífi, mundi hann brosa að þeim, sem styðja hið fámenna og litla Ísraelsríki. Einn vestrænn leiðtogi færir sér stríðið í nyt til þess að koma ár sinni fyrir borð meðal Arabaríkj- anna. Þetta er de Gaulle sem hefur að takmörkuðu leyti stutt tillögur Sovétríkjanna í deilunni og gagn- rýnt fsrael. Franskir fulltrúar vinna nú að því að grafa undan olíuaðstöðu Vesturveldanna í Arabalönd- unum í því augnamiði, að Frakkland komi í þeirra stað. Upplýst er, að þessir menn hvetja leiðtoga Ar- abaríkjanna til að þjóðnýta olíufélögin og bjóða jafn- framt franska aðstoð við að vinna olíuna og selja hana. Þetta var eitt helzta málið á Kuwait-ráðstefn- unni, enda er þjóðnýting olíulindanna mjög freist- andi hefndaraðgerð fyrir Arabaleiðtoga. Takist þessi ráðagerð de Gaulles, mundu Bandaríkin verða fyrir nokkru tjóni og Bretland mundi ramba á barmi gjald- þrots. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Hjá de Gaulle flokkast þessi undirróður og tækifæris- mennska sjálfsagt sem „grandeur“. Vopn og sálfræðingar Þrátt fyrir ósigurinn í Ísraelsstríöinu er yfirlæti leiðtoga Arabaríkjanriá hið sama og áður. Sama ó- raunsæið ræður gerðum þeirra og fyrri daginn. Þeir virðast ekkert hafa lært af ósigrinum eða hafa gleymt þeim lærdómi strax. Þeip hafa fengið vilyrði Sovét- stjórnarinnar fyrir nýjum og ókeypis vopnabúnaði og eru aftur famir að tala um að „mala“ ísrael. Á opinberum vettvangi er aðeins talað um áfall en ekki ósigur og skuldinni skellt á alla aðra en leiðtog- ana sjálfa. Almenningur fær ekki að vita, hve gífur- legur ósigurinn var, og styður þvi hina óraunsæju stefnu leiðtoganna. Kröfurnar um nýja stríðslotu em háværar í Arabaríkjunum. Hatrið er magnaðra en áður og friðarvonin minni. Leiðtogar Arabaríkjanna viðurkenna ekki stað- reyndirnar og kenna öllum öðmm en sér sjálfum um ófarirnar. Slík sefjun er vel þekkt fyrirbrigði í sál- fræðinni. Þessir leiðtogar em fjötraðir í æsingaáróðri sínum. Þeir þurfa ekki vopn, — þeir þurfa sálfræð- inga. ; ( Reykjanesbrautin malbikuð JXafizt var handa um malbikun á Reykjanesbrautinni frá borgarmörkunum við Kópavogs Iæk eftir hádegi á mánudag og í fyrrakvöld var framkvæmdun um lokið, búið var að malbika kaflann allan upp á Öskjuhlíð. Verkið sóttist vel og fljótt og verður mikill munur frá því, sem áður var, að aka þessa leið. Vegna þess hve mikil umferö aræð Reykjanesbrautin er. höfðu menn nokkrar áhyggjur haft af því að loka umferö um hana meðan á framkvæmdum stæði, en fyrir tilstyrk lögregl- unnar. sem beindi umferðinni til Kópavogs og Hafnarfjarðar aðr ar leiðir, gekk umferðin nokk- urn veginn snuðrulaust og án verulegra tafa. Var umferðinni beint um Bústaðaveg, Breiöholts veg og Nýbýlaveg fyrsta dag- inn, en þegar lokig var við að malbika spottann frá læknum að gatnamótum Fossvogsvegar, rann umferðin um Bústaðaveg, Klifveg og Fossvogsveg, Næsti áfangi, sem hafizt verð ur handa uni, verður Hringbraut in frá Njarðargötu vestur aö Bræðraborgarstíg. i" ............ Verið að valta síðasta spottann, upp Öskjuhlíðina að sunnanverðu. SR fylgir sömu reglum um greiðslur fil síldarbátanna og gilt hafa undanfarin ár 1 fyrradag birtist í Timanum forsíðufregn um „mikla f jártiags örðugleika" Síldarverksmiðja rikisins. Er þar meðal annars sagt: „Eru margir bátar þegar búnir að leggja upp talsvert af sfld, en hafa ekki fengið eyri greiddan fyrir hana". — Sam- kvæmt upplýsingum, sem Vfsir hefur aflað sér, er nú fylgt sömu venjum um greiðslur SR Skólostjórastadei við Tækniskól- onn Inus Staða skólastjóra Tækniskóla íslands hefur verið auglýst laus til umsóknar. Einnig hafa verið auglýstar nokkrar kennarastöö- ur við skólann. Umsóknafrestur er til 16. júlí n.k. og skulu um- sóknir sendast menntamálaráðu neytinu. Kennarastöður þær, sem eru lausar til umsóknar eru f dönsku, ensku, menningarsögu þýzku, eðlisfræði og efnafræði. til síldarbáta, sem gilt hafa und- anfarin ár. Utgeröirnar hafa fengið út- tektir á olíu, fæði handa skips- höfn og peninga handa skips- höfninni, þegar viö löndum, en uppgjör hefur yfirleitt ekki farið fram fyrr en ca. 10 dögum eftir að aflanum var landaö. Þessari venju hefur einnig verið fylgt í ár og hafa útgerðimar getað tekið út olíu, kost og ýmislegt annaö, en reikningum hefur aö venju verið framvísað til Síld- arverksmiöja ríkisins. Þá hafa áhafnir báta fengiö peninga upp að vissu marki, eins og tíðkazt hefur. Þegar frétt Tímans var skrif- uð var vart liðinn sá tími, tíu dagar eða svo, sem það tekur að ganga frá uppgjöri við bát- ana og því hefur ekki raun- verulega reynt á þetta atriði. Látiö er að þvl liggja I fregn Timans, að Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri SR og Sveinn Benediktsson formaður stjórnar SR, hafi farið til útlanda vegna „fjárhagsörðugleikanna", en er- indi þeirra var allt annað, sem sé það, að kanna sölumöguléika afuröa síldarverksmiðjanna, t. d. I Þýzkalandi. Nýjar stöðu- veitingar Ófeigur Eiríksson bæjarfógeti á Neskaupstað hefur verið skip aður bæjarfógeti á Akureyri og sýslumaöur Eyjarfjarðarsýslu frá 1. október n.k að telja. Þá hefur dr. Gísli Blöndal hag fræðingur verið skipaður til að gegna embætti hagsýslustjóra ríkisins frá 1. júlí n.k. að telia Ævar ísberg viðskiptafræöing ur hefur verið skipaður vara ríkisskattstjóri frá 1. júlí. Óla' ur Nilsson löggildur endurskoð andi hefur veriö skipaður skatta rannsóknarstjóri frá 1. septem- ber n.k. og Sveinn Þórðarson viðskiptafræðingur hefur verið skipaður skattstjóri i Reykjanes umdæmi.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.