Vísir


Vísir - 23.06.1967, Qupperneq 9

Vísir - 23.06.1967, Qupperneq 9
V1S IR . Föstudagur 23. júní 1967. 9 r*. VIÐTAL DAGSINS er viö Elinrós Benediktsdótrur „Og héðan berst þér birkilaufa þeyr af blásnum kvisti, grein sem aldrei deyr“. M. J. jLTún heitir Elínrós Benedikts- dóttir, þingeysk að ætt, fædd á Ytra-Hóli í Kaupangs- sveit. Þriggja ára flutti hún með foreldrum sínum að Breiðabóli í Kaupangssveit, en þau voru Benedikt Jónsson, ættaður úr Aðaldal og kona hans Sesselja Jónatansdóttir frá Þórustöðum á Svalbarðsströnd. — Þú ert þá Þingeyingur i báðar ættir? — Já, og ég er næstelzt af 15 systkinum og af þeim eru 8 á lífi. — Hvernig fannst þér lífið á þínum æskuárum? — Mér fannst það gott. Við höfðum ekki af neinu öðru að segja en því sem að okkur var rétt og ennþá sakna ég margs frá gamla tímanum. — Langaði ykkur ekki í eitt- hvað fjarlægt — eitthvað ó- þekkt? — Nei, en þú getur skiliö það, að heimilið var fátækt með all- an þennan bamahóp. Lffið var fremur fábrotiö — mjög ólíkt því sem nú er. En samt fund- um við lífshamingju, og það held ég að hafi fyrst og fremst or- sakazt af því, hve vænt okkur þótti um foreldrana, og vildum gera þeim sem flest til hæfis. Okkur var það vel ljóst að þau létu einskis ófreistaö til þess að okkur liði sem bezt. — Heldur þú að börnum þyki ekki vænt um foreldra sína í dag? — Nei, ekki eins og þá, því fe< nú verr. Samband milli barna og foreldra er ekki eins náið nú og áður var. — Getur þú nokkuð gefið mér hugmynd um í hverju þetta muni liggja. Mín kynni af ungu fólki gengnum 36 ára starf eru góð, og finn ég engan sérstak- an mun á eðlisl.neigðum ungs fólks í dag og fyrir þrem tug- um ára. — Já, þetta álít ég rétt at- hugaö, en það er annað: Foreldr- arnir hugsuöu miklu meira um börnin þá, en nú er.- Hið nána samband, milli þeirra eldri og ungu var mikils virði. Til dæmis skal ég benda þér á það, að þótt við værum heima 13 syst- kini, og þar af leiðandi í mörg horn aö líta, þá haföi pabbi alltaf tíma til að tala við okk- ur. Mamma kenndi okkur bæn- ii' og önnur þau fræði, sem þá voru talin nauðsynleg til mann- bóta. Oft fórú foreldrar okkar út með okkur og léku sér með okkur, og þá má segja aö mamma hafi verið komin tals- vert á efri ár. Þau kenndu okkur ýmsa leiki, sem þá þóttu ánægju legir. og ég vil segja að þessi framkoma þeirra hafi skapað þann samhug, sem fjölskyldunni allri, ekki sízt okkur krökkun- ur var mikils viröi. Nú hafa foreldrarnir engan tíma fyrir börnin sín, hraðinn er oröinn svo mikill að ekkert kemst að nema kapphlaupið um lífsmunað eða þá á öðru leitinu fjárafla- strit. — En fyrst ég hef minnzt á foreldra mína, sem bæði voru mér mjög kær, þá verð ég aö segja þaö, að móðir mín var óvenjulega vel gerö kona. Henni sást sjaldan bregða, þótt eitt- hvað'henti. Faöir minn var ör- ari, en heimilislífið var þrátt fyr- ir þennan mismun á eölisþátt- um þeirra mjög gott. Og eng- an hef ég ennþá hitt, sem þekkti móður mína, að ekki hafi honum legið hlýtt orð til hennar hvort sem um var að ræða karl eöa konu. Og ég held að hreinskilni í umgengnishátt- um manna á milli hafi verið miklu betur séð þá en nú er. — Hvað tók svo við þegar þú lagðir leið þína að heiman? — Eitt sumar var ég í kaupa- vinnu og svo fjóra vetur á Ak- ureyri, þaðan lá svo leiðin til Reykjavíkur i ljósmæðraskól- ann. Þegar ég hafði lokið námi mínu þar, fór ég hingað suður til Keflavíkur og hef nú verið búsett hér í 53 ár, því hér gifti ég mig. — Hvernig leit svo Kéflavík út á þeim tíma? —Hún var nú lítil þá, senni- lega um 300 íbúar, sem flestir höfðu sitt lífsframfæri af sjón- um. Þá var ekki búið að fram- kvæma hér mikiö fólkinu til hag ræöis, hvorki hvað snerti að- stöðu til sjósóknar né vinnu- brögð á landi. T. d. þurfti að sækja allt vatn í vatnsból sem þá voru í þorpinu, og varð mað- ur að draga þetta sjálfur ýmist á sleða eöa vagni. Ef þvo þurfti þvott var alltaf fyrsta Elínrós Benediktsdóttir. neituðu mennirnir, sem höfðu flutt mig á bílnum, að fara til baka. vegna þess hve veðrið var vont. Ég segist veröa aö kom- ast heim. Þeir segja pað alveg óframkvæmanlegt, bylurinn sé það svartur. — Jæja. þá fer ég ein. Þá er það kona. sem vill fara meö mér. því hún þurfti einnig að komast til baka. heim til sín en ég taldi mig engu bættari. Þaö varð svo úr, aö ég fór ein. — Þeir buðust ekki til að fylgja mér, karlmennirnir. — Ég komst með góðu móti leiðar minnar, og gat látið vita um ferð mína símleiðis — En þaö verð ég að segja, án þess ég vilji neitt halla á karlmennina. að þeir eiga það til að vera sér- hlífnari en mörg konan — vilja gjarnan lifa fyrir sjálfa sig fyrst og fremst. — En í þessu sam- bandi vil ég þó segja dálítiö. sem ef til vill gefur nokkra á- bendingu. Ég hef átt fimm drengi en aðeins eina stúlku. þess vegna fannst mér ég verða að kenna þeim öll venjuleg hússtörf, því þeir uröu að leysa bau af hendi þegar ég var f jar- verandi, og ég held ég megi segja það, að enginn þeirra ber kinnroða fyrir það og vinnur eða aðstoöar við þau verk á sfnu heimili ef með þarf. — Vani uppvaxtaráranna hefur á- reiöanlega nokkuð að segja um framvindu lffsins á manndóms- árunum. — Þú ert búin aö dvelja hér i Keflavík í 53 ár. Ertu orðin Keflvíkingur? — Ég er Þingeyingur. 55 Það er að þurrka út Þ’ngeyinginn“ verkið að sækja vatnið. — Hverju hafðir þú vanizt heima? . — Á veturna sóttum við vatn ið í fötum, en á sumrin þvoðum við alla þvotta í læk, sem rann rétt hjá túninu. — Hvað fannst þér einna ólík ast hér og í þfnum heimahög- um? — Þaö var nú nokkuð margt. Þó held ég að það hafi sér- staklega verið munurinn á land inu, þegar ég bar saman gróð- urlöndin þar og hrjóstrin hér — þá þótti mér mjög einkenni- legt, að hér syðra skyldi hvergi vera bryggja, sem skip gat lagzt að, en norður á Svalbarðs eyri voru góð löndunarskilyrði á þeim tíma. — Hvernig kunnir þú svo þess um breyttu staðháttum? — Það verður nú aldrei á allt kosið, en ég mundi halla réttu máli, ef ég segði að mig hefði ekki stundum langað norð ur og æskt þess fremur að eiga þar heima. — Hitt er svo annað mál, að viö höfum haft það fremur gott hér alla tfð, og því skyldi maður þá vera að fást um nokkrar leiöinda stund- ir. — Hefur þú aldrei þurft að vita af þínum nánustu tefla tvi- sýnt tafl við hafið? — Ég veit ekki hvað segja skal um þaö, þó ekkert frek- ar eftir að ég kom hingað. Bræö ur mínir sóttu sjó á skútum frá Eyjafiröi meöan ég var heima, og elzti bróðir minn var ekki nema 15 ára þegar hann réðst vestur til Patreksfjarðar til róðra hjá frænda sínum Jó- hannesi Jóhannessyni skipstjóra og var með honum eftir það mörg sumur. — Því verður ekki neitaö aö oft þótti okkur ' langt að biöa frétta þegar bræð- urnir voru á sjónum, en þá var erfiðara um þá þjónustu en nú er. — Þú hefur Iengi verið ljós- móðir. Hvað viltu segja mér frá því starfi? — Það hefur veitt mér mikla anægju. Fyrst var nú það aö hér var um starf að ræða, sem ég hafði mikinn áhuga fyrir. — Mig langaði meira að segja til að verða læknir. — Hve stórt var. þitt um- dæmi? — Það var Keflavík og Njarð- víkur, og svo á tímabili allur skaginn, bví þá vantaði ljós- móður. Mér er dálítið minnis- stæð ein ferð hér út i Garð. Þá voru miklir vatnavextir og erfitt að sjá veginn að nætur- lagi, enda fór svo að við lentum útaf og öfan tjöm. Ég missti töskuna mína en náöi henni samt aftur, og þegar við höfðum öslað upp á veginn stóðum við þarna bíllaus — og hvað var nú til ráða? Ég lagði þá til að við skyldum ganga áfram og veifa svo fyrsta bílnum, sem á leið okkar yrði. — En ef þaö er nú Kanabíll? segir hann. Ég kvað það engu máli skipta. — Getur þú talaö við þá? — Nei, ég kvað svo ekki vera, þvl ég kynni ekki tehskU, en við hlyturrt þó að geta gerLþeim skiljanlegt hverS ’við' þyrftúm með. — Svo kemuij' bflt'öá þtffiilá-féirð tfukk- ■ ur frátK^anurn^Þeir sDyrja .þm. tferð okkar'óg'Vegja: — Sand: gerði? —% Mef,--svátaði: ég. — Útskájár?.„.segia þeii-. —. Já, t-, á þann ífaíP^aV ej gert þeim skiljanlegt áð "ferðinni væri heitið út • Garöinn. Þeir tóku okkur svo i bílinn og tókst mér að gera þeim skiljanlegt hvar við vildum fara úr. — Þetta voru traustir og góðir menn. Þegar við svo komum á á- fangastaðinn. þá var þar ekki gott í efni, af fæöingu gat ekki orðiö nema konan kæmist und- ir læknishendur ég varð því að ná í bíl og fara meö hana til Reykjavíkur. Þetta og annað bvílíkt hlýtur alltaf að koma fyrir á langri starfsævi og kannski lítt f frásögur færandi. Annað atvik get ég þó nefnt h'ka fyrst ég er farin að rifja þetta upp. Þá var ég sótt inn ■ Njarðvíkur Þar gekk fæðingin vel en þegar ég ætlaði til baka — Hafa þessir rúmlega fimm áratugir ekki getað þurrkað út Þingeyinginn? — Nei, það er ekki hægt, það er ómögulegt. Man ég fjörðinn fríða og fjallabláan hring. Man ég læki líða litgræn tún um kring. Man ég svífá á sænum seglunt ,-búw; fley. berast fyrir blænum jjí burt .frá strönd og ey. ' Máti ég’ hátt i hlíðum iíS hjárðir standa á beit. , Man ég þlóma blíöum búná fagra sveit. Man ég foss úr fjalli fleygjast sjávar til, hendast stall af stalli sterk með undirspil. Man ég minnar æsku mætust draumalönd. Man ég móðurgæzku og milda föðurhönd. Man ég allt er átti ég f þeirri sveit. Frá því fara mátti og framar aldrei leit. Svo brosir þessi 77 ára kona sínu þingeyska hlýja brosi. sem sllt frá bemsku hefur yliað mér, enda þótt ég sæi það þá Ijóma á öðru andliti. Þ. M.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.