Vísir - 04.08.1967, Síða 9

Vísir - 04.08.1967, Síða 9
V í S IR . Föstudagur 4. ágúst 1967. þessu sinni ætla ég að halda áfram ferðasögu minni frá því í fyrri viku. Þá sagði ég nokkuð frá heimsókn minni til Austurrfkis 0" Vínarborgar, en eftir að hafa dvaliö þar um stund, sneri ég aftur norður á bóginn og kom til Munchen. Þangag hafði ég heldur ekki komið áður og þótti forvitnilegt að kynnast ýmsu þar. Miinchen er sem kunnugt er höfuöborg Bæjaralands, eins stærsta og öflugasta héraðs Þýzkalands. Hún stendur uppi á há^léttunni og hafði ég búizt við, aö þar væri fjöllótt og til- breytingaríkt landslag, en svo er ekki, heldur er landið næst- um marflatt á stóru svæði, nema oft djúpir farvegir niður að án- um. Það er ekki fyrr en miklu sunnar, sem Alpafjöllin með sín um djúpu dölum skapa stór- brotna náttúru. Þessi háslétta er eitt bezta búskaparland Þýzkalands og eru þar rekin stórbú með nýtízkulegum verk- færum. Fólkið á þessum slóöum er á ýmsan hátt talið hafa sérstööu meðal Þjóðverja. Það er talið fé- lagslyndara og góðlyndara, en annars staðar. Annars var það fyrsta sem ég veitti athygli, hve málgefið og málglatt fólk er þar og gildir þag líka fyrir Austur- ríkismenn. Ekki var mér ljóst hvort þetta stafaði fremur af því aö gömul siðvenja liggur enn í landi frá því menn voru málglaðir sveitamenn, eöa þetta sprettur- af sérkennilegri lyndis eiiikunn heils þjóðarbrots en það er ómögulegt annað en að veita þessu athygli. Ókunnugir ferða félagar eru þar, jafnskjótt og þeir setjast inn í jámbrautar- klefann, komnir i hrókasamræð ur og opna hver fyrir öörum til finningar sinar og persónuleg vandamál og þannig geta þeir talað tíma eftir tíma, talfærin eins og vel smurð maskína. — Hvað þá ef menn setiast inn á einhverja af hinum óteljandi öl- krám Múnchenborgar, viö heil- pottskrúsir af einstaklega ljúf- um veigum þjóðardrykks þeirra. jYJeðal Bæjara lifir stöðugt und ir niðri í glæðum gamalla aðskilnaöarhugmynda. Fvrr á öldum var auður og þjóðmenn- ing á miklu hærra stigi þama suöur frá, heldur en á flatlendi Norður Þýzkalands. Hér ríkti á sínum tíma háþróuð rómversk menning meðan sléttubúarnir vom hreinir villimenn og hér vom síðar á öldum auðugustu höfðingjarnir og má sjá um- merki þeirra í óteljandi glæsileg um gulli slegnum barokk-höll- um .Þá voru láglendingamir rétt að byrja að rækta sínar kart- öflur, sem urðu undirstaða hins prússneska veldis. Það var því ekki aö furöa, þó stöðugur urg ur væri í Bæjumm. þegar Prúss ar tóku forustuna f sameiningu Þýzkalands, þótt þeir neydd- ust til að fylgja með. Þessa hé^ur enn gætt á síðustu ámm, þeh' kalla hérað sitt Fríríkið Bavern og þegar komið er þang að frá Austurrfki em það ekki Á götu í Munchen. I baksýn ráðhús borgarinnar. Ljósm. Þ. Th. mér sagt, að hér fjarstýrði lög- reglan umferðinni. Stjórnklefa hefði verið komið fyrir á lögreglu stöðinni og fylgdust þeir meö umferð í sjónvarpstækjum og stilltu ui ..erðarvita. Og svo er þetta síðasta ráð, sem þeir eru nú að framkvæma, það er að byggja neðanjarðarbraut um hoigma þvera og endilanga og af því stafar allmikill uppgröft ur á flestum torgum borgarinn- ar. Þar eru þeir að gera stöövar neðanjaröarbrautarinnar og mun þar verða komið fyrir í stórum sölum neðanjarðar heilum við- skiptahverfum, óteljandi verzl- unum og þjónustufyrirtækjum. Veröur þar hátt til lofts og björt rafljós eiga að líkja eftir dagsljósinu. Þar sem stöðvar þessar eiga að vera, hafa þeir grafið borgartorgin algerlega út og gapa við risastórar holur 20- 3U iiit-.'J djúpar. Líentiur steypu vinna þar yfir, en þegar henni er allri lokiö veröa torgin að nýju Iögð yfir þessi steinstevpu bákn og allt fært í samt Iag aft- ur. Stærsta holan er á torginu fyrir framan aöaljámbrautar- stöðina ,en þar á um leið að skapa stórfenglegar umferðar- æðar og bílastæði, sem komið verður fyrir bæöi neöanjarðar og uppi á háþaki járnbrautar- stöðvarinnar. Er þar til sýnis líkan af þessum framkvæmdum eins og þær eiga að verða, þeg- ar þær eru fullgerðar og vænta borgarbúar þess að höggvið verði á marga umferðarhnúta með þeim framkvæmdum. „höfuSborg þýzkir landamæraverðir og toll arar 'sem taka á móti manni, heldur bæjerskir. Af þessum sökum virðist mér að þeir láti sér nokkuö í léttu rúmi liggja skiptingu Þýzka- lands og harmi það lítt þótt Prússarnir og Berlín séu utan- veltu við sambandslýðveldiö um skeið. Því að það hefur einmitt gefið Bæjurum tækifæri til að grípa forustuna til sín á ýmsan hátt. Því að á meðan þeir, Bæjar arnir, halda stöðugt áfram að gagnrýna Bonn-stjórnina fyrir ráðríki og verja sérréttindi sín með kjafti og klóm, er þó svo komið á sama tíma, að Múnchen er að verða sú borg Þýzkalands sem smám saman er að fá á sig einna mestan höfuðborgarblæ. Hún á að vísu í harðri sam- keppni við Hamborg miöstöð siglinga og utnaríkisverzlunar og Frankfurt miðstöð banka og innanlandsverzlunar, en þrátt fyrir það eru viðhorfin smám- saman að þróast í þá átt, að Múnchen sker sig æ meira úr sem þjóðleg og menningarleg miðstöð Þýzkalands, er dregur fólkið að sér úr öllum áttum Þar þróast 'nú listir og bók- menntir hvað bezt, þar eru vís indastöðvar og atómrafstöðvar og bar skammt frá er iafnvel búið aö stofnsetja eina mestu olíu- stöð í Mið-Evrópu og er olíunni dælt þangað í pípum sunnan frá Miðjaröarhafinu. Þar er yfir- höfuð allt á ferð og flugi og smám saman er Múnchen að byrja að fá á sig stórborgar blæ. Frá stríðslokum hefur íbúa tala hennar aukizt úr 800 þús- undum og upp í 1,2 milljónir og eru hvergi í Þýzkalandi önnur dæmi um þvílíka fólksfjölgun. jþessi aukning birtist ekki hvað sízt í bifreiðaumferð á göt- um borgarinnar. Ég hef óvíða, ef nokkurs staðar, séð annað eins umferöaræði eins og eftir aðal- umferðaræðum hennar, stræti því sem almennt er kallað Strachus, Sonnenstrasse og Kaufingerstrasse. Er mér nær að halda, að engin borg sem ég hef komið í eigi við þvílíkt umferðaröngþveiti að stríða sem Múnchen. Þegar ég var á ferð um miðborgina var logn með sólskini og hitakófi. Á strætun- um var óhemju mannfjöldi, því að ofan á öra mannfjölgun bæt- ist það nú, að ferðamanna- straumur til Múnchen er geig- vænlegur og er sagt að um 2 milljónir ferðamanna komi þar á hverju ári. Þannig voru gang- stéttirnar fullar af fólki og með fram þeim voru akbrautirnar fullar af bifreiðum, svo langt sem augað eygöi, stundum rykktu þær í og ökutækja- straumurinn gat þust áfram. Þess á milli sat allt fast og í hitamollunni blandaðist útblást- urseimurinn saman við loftið svo eitruð þoka myndaðist um strætin og smaug inn um allt. Tjað virtist líka liggja ofarlega á talliðugum tungum Múnc- hen-búa að óskapast yfir þess- um umferðarvandræðum. Menn hófu á bjórstofum heimspekileg ar umræöur um þaö, að hverju borgarbyggðin stefndi. Áður fyrr hefði verið sælt og gott að búa í borgum, nú væru borg imar með bílamergö sinni að breytast í hreinustu vfti á jarð- ríki. Það hefði líka áður fyrr verið gaman aö eiga bifreið, en nú væri umferðin orðin eins og vitlausraspítali. Menn yrðu taugaveiklaðir og fengju fyrir hjartað af biðinni, erfiöinu, kóf- inu og æðibunuganginum. Leit aö bifreiðastæöum væri oft ör- væntingarfullt fálm, minnti á menn sem væru oft á síðustu stundu að leita að hálm- strái til að bjarga lífi sínu. Hver er meiningin? Erum við menn- irnir að stefna að því aö gera okkar eigin heimkynni að kvala- staö. Einn viðtalandi gekk svo langt um leið og hann svolgraði bjórinn stórum úr pottkrús sinni að það væri kominn tími til að vernda mennina og banna allar bifreiðir, þessi tæki sem píndu og kúguðu mannkynið. VTel má vera, að umferðar- ástand í Múnchen hafi ver- ið sérlega slæmt um þessar mundir vegna þess, að miklar framkvæmdir standa þar yfir um þessar mundir og er varla hægt aö finna þar nokkurt torg sem ekki er uppgrafiö og veldur þetta ákaflegum umferðarhindr unum. En með þessum fram- kvæmdur hyggjast þeir einmitt leysa vandann. Múnchen-búar hafa gripið til ýmiskonar aðferða til að leysa umferðarvandamál sín en örð- ugt er aðstöðu í miöborginni, vegna þess að strætin eru gömul og þröng. Á elnum stað var mér bent á það, að sjónvarps- upptökutækjum hafði verið kom ið fyrir á gatnamótum og var Vjtegna þessara aðgerða er Múnchenarborg nú um þess ar mundir öll eins og upprifin í sárum, en framkvæmdimar koma sér vel, þar sem þær gefa mikla atvinnu og ekki veitir af því að sannleikurinn er sá, að hálfgert kreppuástand hefur ver ið í Þýzkalandi síðasta árið. Yf- irleitt kom það mér á óvart, hve ástandið í efnahagsmálum og atvinnumálum Þýzkalands hefur verið slæmt upp á siðkast ið, framleiösla hefur dregizt sam an, verksmiöjur ganga fyrir hálf um krafti og hafa sagt starfs- fólki upp í stórum stíl, vegna verkefnaskorts og markaðserfið leika. Þessi sámdráttur hefur þó ekki fyrst og fremst komið niðri á innlendum verkamönn- um, heldur á hinu erlenda vinnu afli. Fyrir rúmu ári voru um 1,3 milljón erlendra verkamanna aðallega ítala starfandi í land- inu. Síðan hefur um 400 þús- und þeirra veriö sagt upp starfi og þeir hafa orðið að hverfa heim, suöur til Sikileyjar og Kalabríu þar sem ennþá minna er aö gera. Á sama tíma er álit- ið að um 600 þúsund manns séu atvinnulausir í Þýzkalandi þó ekki sé fullkomlega að mark'a þá tölu, þar sem gera verður ráð fyrir í svo stóru þjóðfélagi vegna skipta á starfsstað að ekki sé neitt óeðlilegt að 200-300 þúsund manns séu skráðir at- vinnulausir, án þess aö um neitt vandamál sé að ræða. Þrátt fyrir þaö er þessi aftur kippur alvarlegt mál og ætti að vekja menn til umhugsunar. Hagfræöingar hafa fyllzt sjálfs- trausti á undanförnum árum og telja sig geta auðveldlega með hagfræðilegum, ráðum sigrazt á kreppuógninni, en þeir hafa ekki getað komið í veg fyrir alvar- legan afturkipp í efnahagsma'r- um Þýzkalands, sem hefur haft Framhald á bls. 10.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.