Vísir - 24.08.1967, Blaðsíða 16

Vísir - 24.08.1967, Blaðsíða 16
Fimmtudaguc 24. ágúst 1967. íslenzki hugvitsmaðurinn Ein- ar Einarsson liefur nýlega feng- ið einkaleyfi á tveim uppfmning um sinum, en hann hefur unvára raðir unnið að teikningnm á nýrri vél sem gæti hafið sig til flugs lóðrétt og hefur kom- izt svo langt að geta smíðað eina slfka sem gat lyft 750 kiió grömmum. Nokkur ár eru síðan Einar smíðaði þá vél, en síðan hefur hann stöðugt unnið að fullkomn un hennar. Erlendar flugvélaverksmiðjur og fleiri aðilar hafa sýnt mik- ínn áhuga á uppfinningum Ein- ars og af þessum ástæðum hafði Vísir samband við hann til að forvitnast um það nýjasta, sem á döfinni er hjá honum, Einar sýndi okkur nýjustu teikninguna af vél' sinni sem hann néfnir Vertikala og á hún að geta hafið sig lóðrétt til Hefur fengið einkaleyfi fyrir stýrisútbúnaði og flugpalli Hugvitsmaðurinn Einar Einarsson vinnur nú við að fullkomna sérkennilega flugvél flugs. Vélin er búin tveim þrýstiloftshreyflum og auk þess litlum þrýstiloftshreyfli á stéli sem eingöngu yrði notaður við flugtak og lendingu við stjórn vélarinnar. Einar hefur fengiö einkaleyfi á þessu, en hreyfill- inn á stéli vélarinnar gæti hreyfzt upp og niður auk þess sem hann gæti hreyfzt til hiið- anna. Einar hefur einnig fengið einkaleyfi á flugpalli, sem er nokkuð nýstárlegur að gerð og sést á meðfylgjandi teikningu. Pallurinn er þannig útbúinn, að efst er götuð grind, sem hleypir þrýstiloftinu úr hreyflunum í gegnum sig, en lokur koma i veg fyrir að loftið þyrhst upp aftur, heldur er það leitt frá pallinum og hleypt út í nægi- legri fjarlægð frá pallinum til þess að hafa ekki truflandi á- hrif á flugvélina sjálfa. — Við þetta vinnst það tvennt að sand- ur og annað lauslegt, sem á venjulegum flugbrautum er tíð- ast, þyrlast ekki um vélina í lendingu né flugtaki og skapar því ekki þá hættu að óhrein- indi sogist inn í hreyflana (líkt og átti sér stað um svifskipið á dögunum). f öðru lagi truflar loftstraumurinn frá hreyflunum vélina ekki í lendingu og flug- taki, en hætta gæti stafað af því undir venjulegum kringum- stæöum. Að sjálfsögðu gæti vél- in einnig lent og hafið sig til flugs á sömu stöðum og venju- Ieg þyrla, en kostur pallanna sýnist ótvíræður. Án efa eiga flugvélar sem þessar mikla framtíð fyrir sér enda eru kostir þeirra margir og tvímælalausir, ekki sízt í landi sem íslandi, þar sem vfða er svo háttað, ógerlegt eða ill- mögulegt er að búa til flugvelli. U.5. PATENT (REF) L. U.S. PA TENT. (REF) Þegar Vertikala er á flugi notar hún aðeins aðalhreyflana sem eru tveir, einn á hvorum væng. Vertikala í flugtaki. Takið eftir flugtakspallinum og Utla þrýstiloftshreyflinum á stélinu. Heitt vatn í Fossvogshverfí fyrir miðjan hsember Nýja kyndistöðin við Árbæjar- hverfi verður tllbúin til notkunar í október eða nóvember, sagði hita véitustjóri, Jóhannes Zoéga, í við- tali við Vísi í gær. Sú stöö er fyrir a.lan bæinn og Árbæjarhverfiö og nýja hverfiö í Fossvogsdalnum koma til meö að fá heltt vatn frá henni. í fyrra var byrjað að leggja leiðsl Svifskipið sett aft- ur á flot í dag — Ný vél var sett i það Svifskipið mun fara aftur á flot síðari hluta dagsins í dag, cftir þvi sem Magnús Magnússon bæjarstj. í Vestmannaeyjum sagði Vísi í morgun. Eins og menn rekur minni til, bilaði skipiö við tilraunir sínar við Vestmannaeyjar i fyrri viku, Slapp lítið meiddur 15 ára piltur slasaðist lítillega á veginum milli bæjanna Heiði og Geldingalækjar, þegar dráttarvél, sem hann ók, lenti út af veginum og ofan í skurð. Vildi þetta til rétt fyrir klukkan 6 í gærkvöldi og var sjúkrabíll fenginn til þess að flytja piltinn á sjúkrahúsiö á Sel- fossi. en meiðsli hans voru þó ekki alvarlegs eðlis. Pilturinn var í sveit í sumar á Geldlngalæk. er sandur komst í gegnum síu á ! vélinnl og í hreyfil, sem þar er. IJef | ur veriö skipt um vél í skipinu og j tók verkið tvo daga. Magnús sagði, að við verkiö I hefðu unnið þrír Bretar, skipstjóri j skipsins og tveir vélamenn, sem verið hafa á /í hér. Kom vélin | til Vestmannaeyja á þriöjudags- j morgun með Herjólfi, en vélin var j send hingað til landsins frá verk- smiðjunum British Hoovercraft Ltd í Bretlandi. Svifskipið mun því byrja tilraun ir sínar aö nýju við Eyjar í dag og veröur þeim haldiö áfram þar í nokkra daga, en síðan kemur skipið hingað til Reykjavíkur. Verður það reynt á flóanum milli Reykjavíkur og Akraness. Gefst íbúum Reykja- vikur og Akraness þá væntanlega kostur á að fara með skipinu út á flóann. ur í Fossvoginn og nú erum við nýbúnir að semja við verktakann Ok hf., samkvæmt útboði, um lagn ingu á framhaldi þeirra. — Svo að þeir, sem flytja inn í nýju húsin sín í Fossvoginum ættu að fá heitt vatn í vetur? — Já. Við erum langt komnir með nýju kyndistöðina og lögninni til húsanna á, samkv. samningi, að v^ra lokið fýrir miðjan desember. Húsið við stöðina er komið upp og fleira er búið, en það er enn verið að vinna í henni. En hvað um boranirnar, sem þið ætlið að framkvæma um næstu mánaðamót hjá Elliöaánum. Hafa þær ekki þýðingu fyrir þessi hverfi ? — Við getum ekki treyst á það, að við fáum heitt vatn þar. Það er er.gin leið að sjá það fyrir. Þess vegna var nýja kyndistöðin reist og hefði verið hvort sem er. En hún gerir það kleift, að unnt er að bæta Fossvoginum inn á kerfið. Eldur í Eldborgu Eldur kom upp í nýja skipinu, Eldborgu, sem í sumar var hleypt af stokkunum i skipasmíöastööinni á Akureyri. Lá skipið við bryggju á Akureyrl og verið var að mála iestar þess, og einnig var unnið við rafsuðu í því. Hljóp neisti í málninguna og eldur kom upp. — Fljótlega tókst að slökkva eldinn, áður en nokkrar alvarlegar skemmd ir höfðu oröið. Málning skemmd Ist þó nokkuö af völdum reyks. Kauptaxtar i Búr- fellssamningi þeir sömu og gilda í Arnessýslu Vinnuveitendasambandiö sendi í gær frá sér orðsendingu, þar sem segir að kauptaxtar í Búrfellssamn ingum séu hinir sömu og gilda í Árnessýslu og því þeir sömu sem almennt gilda hjá Dagsbrún og Hlíf. Oröalag greinargeröar frá Hlíf mætti misskilja þannig að Vinnu- veiteudasambandið hafi i megin- dráttum gert hliðstæöan samning viö Búrfell og Hlíf krefst nú i Straumsvík. Yfirborganir þær, sem Fosskraft kann að greiða við Búrfellsvirkj- un eru annað mál. Yfirborganir, sem tíðkazt hafa að undanförnu og Hlíf krefst nú að teknar séu inn í kjarasamninga hefur Vinnuveitenda samband íslands alltaf neitað að gera að kjarasamningaatriði, þar sem um tímabundið ástand sé aö ræöa. Dregið hefur verulega úr yfirborgunum á þessu ári, segir í orðsendingu Vinnuveitendasam- bandsins. Ekki ástæða til endurvígslu Árbæjarkirkju segir biskup Hjónavígsla sú, sem fram fór í Árbæjarkirkju í síðustu viku hefur vakið nokkurt umtal, þar eö hún var framkvæmd samkvæmt siðum og venjum Baha’i trúarinnar, og mun vera fyrsta Baha’i hjónavígsl- an sem framkvæmd er á íslandi. Biskup íslands, herra Sigurbjöm Einarsson, sagði í viðtali við Vísi, að hann teldi ekki ástæðu til að Framh. á 10. síöu. Mörg skip bíða með full- fermi við Jan Mayen I morgun var sól og blíöa við, Austurland og bezta veður á síldar mlðunum, en mörg skipanna bíöa nú með fullfermi vlð Jan Mayen eftir flutningaskipinu SHdinni, sem v,cntanlegt er þangað á laugardag- in. til þess að losa úr veiðiskip-! unum. — Haförn er hins vegar á j leið til Siglufjaröar með 3.200 lest- ir af síld. sem landað var í hann , noröur við Jan Mayen. Sjö skip tilkynntu um afla sein- asta sólarhring og búizt er við að einhver veiði hafi verið í nótt á mið unum, en af því höfðu engin tíð- indi borizt í morgun. Skipin sem tilkynntu um afla voru þessi: Stígandi 240 lestir, Sigurbjörg 240, Gísli Árni 250, Þorsteinn 200. Albert 220, Gjafar 200, Arnl Magn ússon 200. — Samtals 1550 lestir. ■

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.