Vísir - 08.09.1967, Blaðsíða 7
V í SIR . Föstudagur 8. september 1967.
morgun
útlönd i morgun
útlönd í morgun
útlond í morgun
útlönd
NÝ TILRAUN TIL AD KOMA Á
FRIDIÍ VIETNAM
Fréttir frá Bandaríkjunum herma
a6 Bandarfkjastjórn þreifi fyrir sér
um nýja tilraun til samkomulags-
umleitana um að binda endi á Vi-
etnamstyrjöldina, og hafi þetta ver
ið rætt við fulltrúa í Öryggisráð-
inu, en samkvæmt fregnunum er
gert ráð fyrir að Saméinuðu þjóð-
imar beiti sér fyrir málinu.
I Lundúnaútvarpinu var sagt í
gærkvöldi, að frá þessu hefði verið
sagt í grein í blaðinu The New
York Times, og virtist svo sem blað
ið hljóti að hafa haft upplýsingar
sínar frá sendinefnd Bandaríkjanna
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í
New York.
Sagt var og, að þetta kæmi fram,
Grískur herréttur dæm-
ir 17 ára pilt í 10 ára
fangelsi
er mikillar gagnrýni mætti vænta
og harðrar á Bandaríkin er Allsherj
arþingig kemur saman, og á þeim
tíma er andúöin gegn styrjöldinni
magnaðist í Bandaríkjunum.
Allsherjarþingiö kemur saman
eftir hálfan mánuð.
Saigon; Bandaríkjamenn og N,-
Vietnamar börðust í gær í 8 klukku
stundir nálægt Da Nang. Níutíu og
tveir N.-Vietnamar féllu, en mann-
tjón Bandaríkjamanna sagt 5 falln-
ir og 65 særöir. — Sagt er, að
Norður-Vietnamar hafi 4000 manna
lið í dalnum, þar sem átökin áttu
sér stað.
Indonesía og Singa
pore skiptast á
ambassadorum
Sdttmáli var í gær undirritaður
milll Indónesíu o^Singapore.
Samkvæmt honum munu löndin
taka npp fullt stjórnmálasamband
á ný. '
Ambassadorar veröa skipaöir
samkvæmt sáttmálanum.
íþróttir —
Framh. af bls. 2
liðið í heild var frekar slakt, og
ekki með rétta bikarkeppnis
skapið, sem aftur Skagamenn
höfðu nóg af. Þetta var slæmur
skellur fyrir Þróttarliðið að tapa
þessum leik, fyrir mönnum, sem'
voru á toppnum fyrir 10 til 15
árum, og ætla mætti að skellur-
inn hefði orðið stærri, ef þeir
hefðu leikið vð þá þá.
Dómari í þessum leik var
Guðmundur Haraldsson, og
dæmdi hann vel. Hann átti erf-
iðan dag, síðustu 10 mínúturnar
en þá reyndu leikmenn, hin ó-
trúlegustu brot í skjóli myrkurs
ins. — klp —
BiLAKAUR^
Vei með farnir bílar til sölu
og sýnis íbílageymslu okkar
[ að Laugavegi 105. Tækifæri
| til að gera góð bílakaup.. —
Hagstæð greiðslukjör. —
Bílaskipti koma til greina.
® Fangelsisdómar hafa veriö
kveðnir upp af herrétti í Aþenu yf-
ir sjö ungum mönnum fyrir „komm-
únistiska starfsemi.
Þrír voru dæmdir í 14 ára fang-
elsi hver. Þeir eru 19, 24 og 26 ára,
en 17 ára piltur var dæmdur í 10
ára fangelsi fyrir hig sama. Þrír
voru dæmdir í árs fangelsi hver
fyrir óhlýðni við yfirvöldin.
Volvo Amazon 1966
Mercedes Benz 190 ’62 ’63
Trabant Station 1964 ’65
Opel Kapitan 1962
Opel station 1961
Volkswagen Fastback ’66
Taunus 12M sendibíll ’66
Volkswagen 1500 S 1964
Volkswagen 1962/65
Rambler Classic 1965
Willys Jeepster / Skipti
á L, Rover. 1967
Prinz 1963.
Fíat 1500 Station 1966
Saab 1963/65/66
Commet 1962
Buick Special 1955/61
Moskvitch 1964
Taunus 17M Station 1966
Bronco (vel klæddur) ’66
Taunus 12M 1964
Austin 1800 1965
Cortina 1964
Zodiac 1965
Skoda 1202 1964
Tökum góða bila í umboðssölu
| Höfum rúmgott sýningarsvæði
innanhúss.
UMBOÐIÐ
SVEINN EGILSSON H.F,
. LAUGAVEG 105 SIMI 22466
□ Mikill viðbúnaður var í Rtó de
Janeiro til þess að fagna Ólafi Nor
egskonungi, sem kom í viku opin-
bera heimsókn til Brazilíu í fyrra-
dag. Arthur da Costa de Silva, for-
seti tók á móti konungi á flugvell-
inum.
Myndin er af Johnson, tekin á seinasta fundi hans með fréttamönnum. Á þessum fundi neitaði Johnson,
að ágreiningur væri milli stjórnarinnar og yfirherstjó rnarinnar um sprengjuárásimar í Vietnam. Þetta var
rétt fyrir kosningarnar. Og nú — um leið og það fregnast samkvæmt upplýsingum New York Times, að
Bandaríkjastjórn geri enn eina tiiraun til að koma því til leiðar, að setzt verði að samningaborði, skýrir
McNamara Iandvarnaráðherra frá áformum um tálma nir (rafmagnsgirðingar o. fl.) sunnan afvopnuöu spild-
unnar, til þess að hindra lið — og birgðafiutninga Norður-Vietnama suður á bóginn, en viðurkennir um Ieið,
að aldrei yrði hægt að taka fyrir þá að fullu. Framkvæmdir eru hafnar á 23. km. vegarkafla.
V. Þjóðverjar leggja við hlustirnar
í hvert sinn og de Gaulle ræskir sig
De Gaulle Frakklandsforseti er
ágætlega fagnað I Póliandi, en þang
að kom hann f viku opinbera heim-
sókn í fyrradag, og voru Póllands-
forseti og pólskir ráðherrar við-
staddir komuna.
De Gaulle endurtók við þetta
tækifæri, að Frakkland viöurkenndi
„Oder-Neisse lfnuna", sem Ianda-
mæri Póllands og Þýzka-
lands til frambúöar, en þessi landa-
mæri viðurkennir Vestur-Þýzka-
land ekki, og friðarsamningar hafa
ekki verið gerðir.
í NTB-frétt frá Bonn segir, aö
vestur-þýzka stjórnin sé vel á verði
til þess að fylgjast sem gerst með
öllu í Póllandsheimsókn de Gaulle,
og „leggi við hlustirnar í hvert
skipti sem hann ræski sig til ræðu-
flutnings”, jafnt í „Lodz sem Var-
sjá“. Vestur-þýzkir stjórnmála-
menn munu hafa gott vald á sér
og varðveita ró sfna — og bíða
með allar umsagnir þar til tilkynn-
ing verður birt um heimsóknina að
henni lokinni.
Eignasala eðo skipti
Til sölu eru tvær þriggja herb. íbúðir í Aust-
urbænum. Hagstæðir skilmálar.
Eignaskipti koma til greina.
Einnig ca. 30 ferm. skúr með góðri aðkeyrslu
á eignarlóð í Vesturbænum, hentugur fyrir
smáiðnað. Til greina kemur að borga hann
með fasteignatryggðu skuldabréfi að meira
eða minna leyti.
Upplýsingar í síma 2 16 77.
Blaðburðarbörn óskast
til að bera blaðið út í eftirtalin hverfi:
HRINGBRAUT
AÐALSTRÆTI
o. fl.
Dagbl. V í S IR
Afgreiðsla Hverfisgötu 55.
TÆKIFÆRISKAUP
Gólfteppi — Útsala — Bútasala
Seljum nokkuð magn af gólfteppabútum af
ýmsum litum og stærðum.
Sala fer fram í verksmiðjunni á Álafossi í
Mosfellssveit í dag og á morgun kl. 13.00 til
18.00.
ÁLAFOSS HF.