Vísir - 08.09.1967, Síða 9

Vísir - 08.09.1967, Síða 9
V1SIR . Föstudagur 8. september 1967. * TTm síöustu helgi fóru fram forsetakosningar ; Vietnam, auk þess sem kosnir voru 60 þingmenn til öldungadeildar landsins. Úrslit forsetakosning- anna urðu, að þeir valdamenn sem að undanfömu hafa farið með stjórn landsins, hershöfð- ingjarnir Thieu og Ky sigruöu, en með miklu minni atkvæöa- mun en búizt hafði verið viö. Menn spyrja um það víðs vegar um heim, hvort kosning- arnar hafi verið lýðræðislegar. En þeirri spurningu er ekki svo auðvelt aö svara með einföldu já eða nei. Það veröur að taka tillit til þess, að kosningamar fóru fram við ákaflega óvenjuleg skilyrði. Það er vissulega mjög óvenjulegt, ef ekki einsdæmi, að almennar kosningar séu látn- ar fara fram í landi, sem stöö- ug styrjöld geisar í. Ástandinu í Suður-Vietnam má að nokkru leyti líkja við hernumið land, þar sem fjölmennur innrásarher frá Norður-Vietnam leynist víðs vegar í landinu. Af þeirri ástæðu einni gátu kosningarnar ekki farið fram i öllu landinu, heldur aðeins í þeim hémöum, þar sem héraðs- stjórn var talin nógu styrk orð- in til þess að geta skipulagt og haldið framkvæmd kosninganna áfram til streitu þvert gegn ógn- arherferð kommúnista. Jbúatala Suöur-Vietnam er nú talin vera um 15 milljónir og er það athyglisvert, aö þrátt fyrir langvarandi styrjöld fer íbúatalan jafnt og þétt vaxandi. Af þessum íbúafjölda hefur ver- ið áætlað, að eitthvað í kringum 9 milljónir séu á kosningaaldri en á kjörskrá nú voru tæplega 6 milljónir kjósenda. Þetta sýnir strax, aö kosning- arnar voru þannig takmarkaðar við 60—70% íbúanna. Þessa takmörkum er þó tæpast hægt að gagnrýna, því að varla er hægt að ætlast til að hægt sé að framkvæma kosn- ingar á vígvallarsvæði. Þau hér- uð, sem helzt hafa orðiö útund- an eru norðan til í landinu ná- lægt landamærunum sem liggja Norður-Vietnam og einnig nokkur svæði í óshólmum Me- kong-fljótsins, sem örðugast hefur reynzt að friða. Þá verður líka að taka tillit til þess, að íbúar þessa lands hafa ekki vanizt neinni lýðræðis- Kosmngamar í Vietnam Truong Dinh Dzu friðarsinninn, sem fékk óvænt fylgi í kosningunum. stjóm frá blautu barnsbeini. Það er alltaf dálítið óeðlilegt og undarlegt, þegar vestrænar þjóðir hyggjast fara að útbreiöa lýðræðisþjóöskipulag sitt meöal þjóöa meö allt öörum erfðum og hugarfari. Fyrst í staö ríktu Vesturlandaþjóöir yfir þess- um löndum með harðneskju- legri nýlendukúgun eöa þeir notfærðu sér það höfðingja- skipulag og mandarínaveldi, sem fyrir var í landinu til að koma ráöum sínum fram. En svo þegar nýlenduherrarnir hverfa á braut, ímynda þeir sér, að þeir geti mælt svo fyrir við brottförina, að héðan í frá skuli lýðræði innleitt. Slíkur hugs- unarháttur er bæði fjarstæðu- kenndur og fráleitur. J Suður-Vietnam eins og víðs- vegar í öðrum Asíulöndum hljóta lýðræðislegar kosningar að verða gallaðar á vestrænan mælikvarða. Ættarhöfðingjar og leiðtogar sértrúarflokka gefa á- hangendum sínum fyrirmæli um að kjósa með ákveðnym hætti og þannig er atkvæðum stjómað í stórum stil. Þá er og sagt að herforingjar geti skipaö hermönnum sfnum að greiða atkvæði með vissum hætti og þar fram eftir götunum. Því er sannleikurinn sá, að kosningar í þessum löndum geta ekki kallazt lýðræðislegar á vestrænan mælikvarða. En þar með er ekki sagt, að þær séu einskisnýtar. Þær geta gefið talsveröa hugmynd um viðhorf þjóöarinnar og mér virðist að draga megi athyglisverðar álykt- anir af þeim. Sama máli gilti um þingkosningar þær, sem fram fóru f fyrra, að það var fjarstæða að kalla þær lýðræð- islegar á vestrænan mæli- kvaröa, en þrátt fyrir það gáfu þær rúm fyrir ólíkar skoðanir. Það er síðan staðreynd, að á þjóðþingi landsins eru margir flokkar, sem túlka sjónarmiö hinna ólíkustu þjóðfélagsafla. Þess vegna er aö minnsta kosti óhætt að staðhæfa það, aö kosn- ingamar eru á allt öðm stigi og hafa meiri þýðingu, heldur en sá skrípaleikur sem viðgengst í kommúnistaríkjum að hafa að- eins einn lista, sem hlýtur 99 prósent allra atkvæða. Tjh-ásagnir austan frá Vietnam benda til þess að íbúum landsins, sem hafa ekki alizt upp við lýðræðisþjóðfélag hafi komið kosningabaráttáh kynlega fyrir sjónir. Og ekki hefur á- standið heldur lagazt við það, að framboöslistar f forsetakosning- unum og í öldungadeildarkosn- ingunum um allt land vom 11 talsins og hlýtur þetta að hafa verkað mjög ruglandi á fólk, sem margt er tæplega eða ekki læst eða skrifandi. Og þessi mikli fjöldi frambjóðenda hefur jafnframt orðið þess valdandi, að hersöfðingjamir Thieu og Ky fengju hlutfallslega minna at- kvæðamagn en bmzt hafði verið við eöa aðeins um 35% af greiddum atkvæðum. Vissulega bjuggust margir viö því, að kosningamar myndu verða hreinn skrípaleikur. Vom hershöfðingjamir tortryggðir. Menn sögðu, að þeir myndu sjá um það bak við tjöldin, að haga kosningunum og atkvæðataln- ingu þannig að þeir væm ör- uggir um sigur. Blöð kommún- ista og róttækra vinstri manna um allan heim unnu aö þvf að gera kosningarnar þannig fyrir- fram tortryggilegar. Það yrði ekkert að marka þær fremur en kosningar í öðrum einræðis- löndum. fréttir bera þaö nú með sér, að þessi gagnrýni og fordæming hafi verið ótfmabær. Þeir sem fylgdust meö síðustu lotu kosningabardagans bera vitni um það, að þar hafi gætt miklu meiri sanngirni og rétt- lætis en búast hafi mátt við. Getur varla leikið vafi á því, aö En slikt fær ekki heldur staðizt, því að þaö er ekki lítið að fá 35% atkvæða, þar sem ellefu flokkar bjóða fram. Ckæruliðar og skemmdarverka- ^ menn kommúnista börðust að sjálfsögðu af alefli gegn kosningunum og vildu ónýta þær. f þeim tilgangi skipulögðu þeir mikla ógnar og ofbeldis- herferð í landinu, sem náði há- marki sunnudaginn, vikuna fyrir kosningar. En þá voru á einni nóttu drepnir eða særðir 355 menn. Þessi herferð kommúnista var ákaflega ógeðsleg og ber þess nokkuð vitni, hve að- þrengdir þeir eru orðnir. Sprengjum og vítisvélum var Hershöfðingjarnir Thieu og Ky, sem sigruðu í kosningunum, en með minna atkvæðamagni en búizt hafði verið við. öllum frambjóöendum var gert jafnhátt undir höfði að koma skoðunum sínum á framfæri. Strangar reglur tryggðu það, aö allir frambjóðendur, hershöfð- ingjarnir sem aðrir hefðu sömu aðstöðu við útgáfu á kosninga- bæklingum og áróöursspjöldum og að þessu leyti virðist fram- kvæmd kosninganna jafnvel hafa verið lýðræðislegri en tíðk- ast í flestum vestrænum rikj- um, þar sem fjármagnið ræður því hve miklum áróðri flokkar koma fram. Sama var að segja um kosningaræöur í útvarpi, aö bersýnilega var reynt aö hafa sem mest jafnræöi þar á. Sjónarvottum ber einnig sam- an um það, að leynd hafi verið viðhaldið á atkvæðagreiðslu á kjörstöðum og því ekki um að ræða þvingunarvald einræðis- stjórnar í sjálfum kjörklefunum. Þannig er það dómur flestra, að framkvæmd kosninganna hafi veriö heiðarlegri en menn bjuggust almennt við. Enda bregður svo við, að kommún- istapressan um allan heim snýr jafnskjótt viö blaðinu og hættir að tala um óheiðarlegar kosn- ingar. Þess í stað byrjar hún nú að býsnast yfir því, hve lítiö fylgi hershöföingjamir hafi fengiö og á það að sýna, að þeir séu rúðir trausti þjóðarinnar. komiö fyrir á almannafæri i strætisvögnum og á markaðs- torgum og rakettum frá hinum nýju rússnesku rakettubyssum, sem streymt hafa frá Norður- Vietnam upp á síðkastið, var skotið af handahófi yfir bæi og þorp. Síðustu dáðir þessara þokkapilta var að læða sprengj- um inn í ' "J"klefa. Þannig voru manndrf ~>r —oftast af algeru handahófi og bitnuðu á sak- lausu fólki, konum og börnum. Enda er tilgangur kommúnist- anna fyrst og fremst að skapa einfaldlega sem mesta skelfingu og ringulreið í landinu. Þeir vonuðust jafnvel til þess, aö ógnarherferð þessi myndi skjóta almennum borgurum svo mikl- um skelk í bringu, að fólk þyröi ekki að fara og greiða atkvæði. En staðreyndin varð hins vegar sú, að eitthvað nálægt )0% atkvæðisbærra borgara neyttu kosningaréttar síns og í þeirri kosningaþátttöku, sem varð jafnvel meiri en búizt haföi verið við er einmitt fólginn mesti ósigur kommúnistanna. Cem fyrr segir voru frambjóð- endur og kosningalistar hvorki meira né minna en ellefu talsins. Gefur því auga leið, að mörg ólík sjónarmið hafa þann- ig fengið að koma fram. Þar kom inn í héraðsrígur, og trú- málarígur, þar var einn sem . hafði það að höfuðmarkmiði aö herða styrjöldina og beita sér fyrir innrás í Norður-Vietnam til að gjalda líku líkt. Og þar voru líka menn sem kölluðu sig friðarsinna og kváðu þeir þaö höfuömarkmiö sitt, að setja sig í samband viö kommúnista- stjórnina í Hanoi og semja um frið við hana. Þessi frambjóö- andi sem heitir Truong Dinh Dzu hafði friðardúfu að kosn- ingamerki sínu og hlaut hann ó- vænt kosningafylgi og komst næst þeim hershöfðingjunum aö atkvæðamagni, eða uppundir 20% af heildaratkvæðum. Tj’ins og eölilegt er var styrj- öld og friöur höfuðumræðu efni frambjóðendanna. Og eftir því sem fregnir herma af kosn- ingafundum þá virðist öllum frambjóöendunum hafa verið þaö ljóst, að vandinn steðjar fyrst og fremst frá Norður- Vietnam. Menn töluöu um það. að semja yrði við stjórn Noröur- Vietnam, til þess að koma á friöi. Og virðist það almennt á- lit, aö þó nokkuö sé um inn- borna skæruliöa, sem kasta sprengjum og skilja eftir sig vítisvélar, þá sé það ekki höf- uövandamálið. heldur hinir skipulögðu Iiðs- og hergagna- flutningar frá Norður-Vietnam. TTver var nú ástæðan til þess, aö efnt var til kosninga í landinu þó vandræöatímar ríktu? Að sumu leyti voru kosn- ingar nokkurs konar sýning út á við. . eim var ætlað að kveða niður áróður sem kveöur viö víða um lönd, að þjóðin viður- kenni ekki né virði stjórnarvöld landsins, heldur allur almúginn á bandi kommúnista. Þetta virðist hafa tekizt. Kosningarn- ar hafa verulegt gildi, þar sem þær sýna aö þorri búanna á þessu landssvæði er andstæður kommúnistunum. Og í öðru lagi hafa kosning- arnar átt að gegna því hlut- verki að reyna að tengja sam- starf og samheldni meðal her- stjórnar og almennra borgara. Það er afleiðing margra ára her- foringjastjórnar, aö efast má um fylgi almennings viö stjóm- völdin í landinu. Og það er ó- neitanlega undirstaða viðreisnar landsins, að slíku sambandi verði komiö á. Hins vegar er töluvert vafasamt hve vel þetta hefur heppnazt. Margt bendir til þess, að þingdeildir veröi mjög sundraðar og skiptar og allt lendi enn á ný í flokka- dráttum og deilum. Þannig er áhættan talsverð, þaö gæti farið svo aö kosningarnar yröu ekki til að auka samheldni, heldur þvert á móti til að ala á inn- byrðis deilum í landinu. Þorsteinn Thorarensen.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.