Vísir - 08.09.1967, Page 16

Vísir - 08.09.1967, Page 16
visiR Fðstudagur 8. september 1967. Hnförninii" liefur flutt 36.600 tonn Haförninn, síldarflutningaskip S.R. hefur nú flutt 36,6 þús. tonn af síld af hinum fjarlægu miöum í norðurhöfum i sumar til Síldar- verksmiðja ríkisins á Siglufirði. — f-Iefur skipiö flutt þetta magn i 12 Ferðum og er nú lagt upp í þá rettándu. Öll síidin hefur farið í bræðslu. Siglufjörður er nú önnur stærsta löndunarhöfnin á eftir Seyð ísfirði. Síldarflutningaskipin hafa i sum- ar gert flotanum kleift að stunda veiðar á svo norðlægum slóðum, flutt frá skipunum síldaraflann, en kornið aftur með vatn, vistir og olíu frá landi. Er óvisb hvernig horft hefði án skipanna við veiðar þessar. Halssafnið var tryggt fyr- ir 10 miiijóair — Ijósmyndir teknar af liverri síðu safnsins áður en það var lánað Miklar varúðarráðstafanir hafa fjár, þar eð þar er að finna einstök verið gerðar til þess að varðveita merki og arkarhluta. sem óviða nið dýrmæta Hans Hals-safn, sem nú er á afmælissýnihgu Félags ís- anzkra frímerkjasafnara í Boga- Falnum. eða hvergi eru til annars staöar í heiminum. Til dæmis eru í safninu 7 umslög af þeim 18 ísl. skildinga- umslögum, sem til eru í veröldinni. Samkvæmt upplýsingum, sem Aðeins tvö önnur siík umslög eru blaðið hefur fengið hjá Finni Kol beinssyni, einum af stjórnendum sýningarinnar, var það tryggt fyrir til hér á landi og þau eru einmitt geymd í sama húsi og sýningin, á itíu milljónir króna, en í rauninni Þjóðminjasafninu. Þau umslög voru i er ekki hægt að meta þetta safn til í eigu Sigurðar málara, stofnanda Þjóðminjasafnsins, og fundust í skrifborðsskúffu fyrir fáeinum ár- um. Hvert siíkra umslaga hefur ver- ið selt á frímerkjauppboðum erlend is á um 200 þúsund krönur. Eins og kunnugt er á póststjórn- in þetta verðmæta safn hins kunna frímerkjasafnara Hans Hals, og áð- ur en það var lánað til sýningar- innar í Bogasalnum, var tekin lit- mynd af hverri einustu síðu safns- ins. — Myndirnar tók Ingimundur Magnússon og fékk hann til þess ’érstakar litfilmur utanlands frá. Lögregluvörður er við sýninguna dag og nótt, til þess að fyrirbyggja "tuld úr þessu dýrmæta safni. Sýningin í Bogasalnum stendur fram á sunnudag, 10. sept. I Harður örekstur í I Ártúushrekku í morgun [ □ ÓVenju mikið er um árekstra »og óhöpp í umferöinni þessa [dagana eins og stundum vill •verða á haustin. Á rúmum • klukkutíma í gærkvöldi, frá 11 [til miðnættis urðu þrír árekstr- »ar í Reykjavík og í morgun var [ vitað um tvo á tímanum frá [ 8—9. » □ Árekstrarnir í gær urðu ekki harðir, en árekstur efst í Ártúns brekku i morgun var mjög harð ur og tvennt var flutt í Slysa- varðstofuna til aðgerðar. Til- drögin að árekstrinum í morg- un voru þau að Mercedes Benz bíll ók upp Ártúnsbrekkuna. — Jeppabíll hafði stanzað á vegar- A 1 í\ „fA.. Drengur rerst af síysförum í Eyjum Það slys varð í Vestmanna- eyjum í fyrradag að 8 ára gam- all drengur féll niður af stýris- húsi báts sem lá í höfninni, og slasaðist mikið. Var drengnum þegar í stað komið undir læknis hendur, en um kvöldið var flog- ið með hann til Reykjavíkur. j Var flugvél frá Flugfélagi ís- lands stödd í Vestmannaeyjum j og flaug hún með drenginn til Reykjavíkur. Var hann fluttur í Landakotsspítalann og andaðist hann þar í gærniorgun. Nafn drengsins verður ekki birt að svo stöddu. sjonvarpsmenmmir viö togarann í gærmorgun. Almannagjá lokað fyrir bílaumferð Þingvallanefnd hefur tekið á- kvörðun um aö loka Almannagjá fyrir allri bifreiðaumferð og mun ákvörðunin væntanlega komast i framkvæmd í október n. k. Einnig hefur verið ákveðið aö úthluta ekki fleiri lúðum að svo stöddu fyrir sumarbústaðl i Gjábakkalandi. Ákvarðanir þessar voru teknar á fundi Þingvallanefndar s.l. mánu- dag og þriðjudag. Segir í tilkynn- ingu frá Þingvallanefnd að lokun Almannagjár sé gerð vegna slysa- hættu og til friðunar gjánni. Einn- ig hefur verið ákveðið að banna alla netaveiði fyrir landi þjóðgarðs ins. Sett hafa verið upp tvö úti- salemi og verður þeim fjölgað næsta vor og verða þá tjaldstæöi afmörkuð greinilegar en hingað til hefur verið gert. Unnið er að nýrri girðingu um Þjóðgarðinn og verð- ur væntanlega lokið við girðingu um allan Þjóðgarðinn næsta sumar. Ísland-England 4:4 á bridge-mótinu — er nú i 14.-16. sæti — Sviar efstir íslenzka sveitin á Evrópumeist- i aramótinu i bridge náði prýðisár- j angri í 6. umferþ keppninnar, sem ' spiluð var í gær. Áttust þá við 1 enska sveitin og sú íslenzka og lauk spilinu með jafntefli, 4—4, en loka- tölur í stigatölunni urðu 78—76 Is- I landi í hag, en í hálfleik var stað- an 44—43 íslandi einnig í hag. Þetta er bezti árangur íslenzku sveitarinnar til þessa, en annars hef ur sveitin staðið sig heldur verr en búizt var við. Svíar hafa nú tekið forystuna á mótinu, en sænska sveitin hefur alla tíð verið í ein- liverjum af efstu sætunum, en hef- ur nú tekið hreina forystu. AnnaFs urðu úrslit 6. umferðar þessi: SÆNSKIR SJÓNVARPSMENN GERA ÞÁTT UM AKUREYRI Liður i lengri þætti um lifið i smáborgum á Norðurl'óndum Fjórir starfsmenn frá sænska sjónvarpinu vinna nú að upp- töku sjónvarpsefnis á Akur- eyri. Veröur það liður í löng- um þætti, sem tekinn er á öllum Norðurlöndunum og á að sýna líf og starf norrænna þjóða. — Þáttur þessi mun nefnast .Nurdiska Miljöer' og verður sýndur í sænska sjón- varpinu að ári. Stjórnandi upptökunnar á Ak- ureyri heitir Jan Björnlund og hefur hann sér tíl aöstoðar þrjá filmara. Gunnlaugur P. Kristins son fréttamaður íslenzka sjón- varpsins á Akureyri undirbýr þessa upptöku og er jafnframt túlkur Svíanna. Sænsku sjón- varpsinennirnir komu til Akur- eyrar í fyrradag og dveljast þar tvær vikur. Þátturinn mun byggj ast á viðtölum við málsmetandi menn, svo sem bæjarstjóra og forstöðumenn stofnana, sem tengd eru staðnum. Ástæðan fyrir því að Akur- eyri varð fyrir valinu fyrir hinn íslenzka hluta þessa nor- ræna þáttar mun vera sú að þar birtist fjöibreytni ísienzkra atvinnuvega í hæfilegri stærð og ennfremur vegna þess hve gamli hluti bæjarins er vel aðgreindur frá nýja hlutanum, svo þar er auðvelt að rekja bústaðaþróun áratuganna. Fréttaritari Vísis náði tali af sjónvarpstökumönnunum í gær þar sem þeir voru að filma einn Akureyrartogaranna en hann var að leggjast að bryggju með á anpað hundrað lestir af fiski. Létu þeir vel ,vfir sér og sögð- ust hvergi í allri Evrópu hafa getað fengið svo gott veður til myndatöku og á Akureyri þessa dagana. Þegar þeir hafa lokið við þessa yfirlitsmyndatöku sína af íslenzku hversdagslífi á Akur- eyri mun sænsk sjónvarpskona koma hingað til lands og taka viðtal við einhverja dæmigerða íslenzka fjölskyldu og þar með er myndatökunni fyrir íslenzka hluta þessa norræna þáttar í sænska sjónvarpinu lokið. Framhald á bls. 10

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.