Vísir - 12.09.1967, Qupperneq 1
57. árg. - Þriðjudagur 12. september 1967. - 208. tbl.
landsmið / haast
Síldin viröist nú vera á réttri | og 6 gr. 10 min. A. 1.. eða um 600
leið til landsins. Aðalveiðisvæðið sjómílur frá Langanesi. Þar fengu
í gær var um 73 gr. 13 mín. N. br. | allmörg skip góðr.n afla í gær, á
ÍSAÐUR FLA TFSSKUR MFÐ FOT-
UNNIA ENGLANDSMARKAD
— Athyglisverðar tilraunir með fiskút-
flutning — Fiskurinn á uppboð i London
Allnýstárlegur varningur fór
með þotu Flugfélagsins frá
Reykjavíkurflugvelli í morgun.
Þar var um að ræða 2 tonn af
isuðum flatfiski, en Páll Áxéls-
son, útgerðarmaður í Keflavík
er hér að gera smátilraun með
það, hvort þetta sé arðbært.
Vísir náði sambandi við Pál i
morgun, og sagði hann, að mest-
ur hluti magnsins, sem fór utan
í morgun, færi á uppboð í Lon-
don. Sagðist hann ekki vita,
hvort grundvöllur væri fyrir
slíka flutninga, flutnings-
kostnaður væri dýr, og 10%
tollur á fiskinum, en aftur á
móti fengist hærra verð fyrir
fiskinn í Engiandi en hér á landi.
Eins og áður segir var hér
um að ræða flatfisk og lúðu. Er
fiskurinn ísaður og í trékössum.
Afiinn er fenginn af Keflavíkur-
bátum. Páll sagðist þurfa aö
borga 10% innflutningstoll af
fiskinum í Englandi, en t.d.
Danir og Hollendingar þurfa
ekki að greiða þennan toll, þar
sem þessar tvær fyrrgreindu
þjóðir eru í Fríverzlunarbanda-
laginu (EFTA) ásamt Englend-
ingum.
Páll kvaðst ekki vita enn.
hvort grundvöllur væri fyrir
slíkum flutningum, og kvaðst
ekki senda út annan farm, fyrr
en niðurstöður þessarar tilraun-
ar hans lægju fyrir.
meðan veður entist til veiða, en um
fjögurleytið var komin bræla og
ófært tii veiða.
1 nótt voru skipin byrjuð að
kasta aftur og þá nokkru vestar
en í gær svo að síldin viröist nú
,stefna í átt að landinu.
Fiskifræðingarnir búast við all-
miklu magni upp að íslandsströnd-
um. Hjálmar Vilhjálmsson, sem er
nýkominn úr rannsóknarleiðangri
meö Ægi austan af miðunum sagði
að það kæmi sér ekki á óvart þó
að síldin tæki á sig svolítinn sveig
suður á bóginn, áður en hún stefndi
upp að iandinu. Norður og austur
af Jan Mayen væri óvenju kaldur
straumur, sem næði allt austur á
sjöttu gráðu og síldin- virtist fara
suður með kuldaskilunum allt suð-
ur fyrir Jan Mayen, en síðan myndi
hún líklega beygja upp að landinu.
— Að vísu gæti hún svo sem far-
ið inn í og gegn um kalda sjóinn,
Frh. á bls. 10.
Búizt við miklu magni á Is-
Fyrsta farþega-
flug þofunnar
frá Reykjavík
Boeing 727 bota Flugfélags-j
ins fór sína fyrstu áætlunarferö i
frá Reykjavíkurflugvelli í morg-1
un, en þotan varð að lenda hér
í Reykjavík í gær vegna dimm-
viðris á Keflavíkurflugvelli. 88
farþegar fóru með vélinni í morg
un, og auk þess var mikil fragt
með vélinni, og var hún með
hámarksþunga innan borðs, sem '
samsvarar 128 farþegum, er hún
hóf sig á Ioft frá Reykjavíkur-'
flugvelli kl. 8 í morgun. Flug-
stjóri í bessari ferð er Jóhannes
Snorrason.
Þotan fór til London í morgun |
og er væntanleg aftur síðari i
hluta dagsins í dag. Mun hún j
þá halda aftur út og þá til Kaup-
mannahafnar. Eins og áður segir i
voru 88 farþegar meg þotunni1
1 ferðinni í morgun, en þess má j
geta, að mjö.g góö sætanýtingi
hefur verið í henni undanfarið'
og þotan reynzt mjög vel í hví-]
vetna.
Sérstök síldarleitartæki i
smiðum fyrir Arna Friðriksson
Skipið til Englands i vetur til endanlegs frágangs
í gær var Árni Friðriksson hiö
nýja síldarleitarskip íslendinga
formlega afhent Hafrannsóknar-
stofnuninni. Skipið heldur héðan í
fyrsta leiðangur sinn seinna í þess-
ari viku, en í dag gefst almenn-
í ingi kostur á að skoða skipið.
Árni Friðriksson er á ýmsan
hátt nýstárlegt skip. Vélarúm
j skipsins er allt hljóöeinangrað. í
skipinu er svokallaður veititankur,
sem nær þvert yfir skipið. Hann
er hálffylltur af sjó og á sjórinn
jafnan að streyma á móti veltunni
og draga úr henni um helming eða
meira. Þannig á skipið að vera
stööugra og eiga fiskileitartækin
að koma að betri notum en ella og
er þetta ennfremur gert til þess
! að starfsskilyrði verði sem bezt
fyrir hvers konar nákvæmnis-
vinnu um borð.
Tvær rannsóknarstofur eru í
skipinu, þar sem aöstaða verður til
úrvinnslu nauðsynlegra gagna við
síldarleitina.
Smíðaverð skipsins er 40 milljón-
ir og er þess að mestu aflað meö
sérstöku gjaldi, sem síldarútveg-
urinn tók á sig, en reiknað er með
aö ríkissjóður veröi að hlaupa und-
ir bagga með verulegar fjárupp-
hæðir, einkum í ár, þar eð síldar-
! gjaldiö hrekkur ekki til.
Skipið mun sigla utan í vetur
og verður þá sett í þaö stærra og
fullkomnara síldarleitartæki, sem
sérstaklega er gert eftir kröfum
síldarleitarinnar og óskum.
Mun skipið sigla utan til Low-
estoft aftur eftir áramótin til
þess að gengið verði frá þessu nýja
tæki um borð, en það er nú í smíö-
um. Einnig verður þá gengið frá
vindum skipsins og fleiru, sem
ekki hefur unnizt tími til að full-
klára.
Myndsjáin í dag er frá komu
Árna Friðrikssonar í fyrradag.
Þessi mynd er tekin á Reykjavíkurflugvelli í morgun, en þá var veriö
að setja fiskkassa í þotuna. Er flatfiskurinn ísaður í þessum trékössum.
(Ljósmynd Vísir, ísak).
Farþegar ganga um borð í Boeing-þotuna á Reykjavíkurtlugvelli í morgun. (Ljósmynd Vísir, lsak.)
V-þýzka rikisstjórnin mót-
mælir ráðstöfunum EBE
— Telur þær skaða samskiptin við Island
V-þýzka ríkisstjórnin mót-
mælti í gær harðlega þeim á-
kvörðunum stjórnarnefndar
Efnah.bandalagsins, að hækka
stórlega tolla á ísfiski og að
minnka tollakvóta á innfluttum
fiski til Þýzkalands. Segir vest-
ur-þýzka ríkisstjórnin í mót-
mælaorðsendingu sinni, að lönd
innan Efnahagsbandalagsins
muni ekki geta séö v-þýzka
markaöinuni fyrir nægilegu fisk-
magni, og jafnframt að fyrr-
greindar ráðstafanir skaði stór-
lega samskintin við lönd utan
EBE, sérstaklega ísland og hin
Norðurlöndin. Segjast v-þýzk
stjórnarvöid búast við. ?.ð fisk-
\’erð hækki bar í landi. vegna
þessara ráðstafana.
Vísir hafði í morgun sam-
band við Þórball Ásgeirsson,
ráðuneytisstjóra í viðskipta-
málaráðuneytinu og sagði hann,
að Henrik Sv. Björnsson, sendi-
herra íslands myndi á fimmtu-
dag ganga á fund Sicco Mans-
holt, þess manns í 15 manna
stjórnarnefnd EBE, sem fer með
landbúnaðar- og sjávarútvegs-
mái, og skýra honum frá mót-
mælum isíenzkra stjómvalda,
og jafnframt að íslendingar
vildu fá leiðréttingu þessara
mála. Þess má geta, að íslenzka
ríkisstjórnin mótmælti þessum
ráðstöfunum stjórnarnefndar
EBE strax og þær voru kunnar,
í ágúst s.l.
Ráðstafanir stjórnarnefndar-
ínnar voru m. a. fólgnar í því,
að tollkvóti ísfisks flutts inn til
Vestur-Þýzkalands á tímabilinu
Frh. á bls. 10.