Vísir - 12.09.1967, Side 3
V'f'S'FR . Þriðjudagur 12. september 1967.
3
■
Árni Friðriksson RE 100 sigldi inn á innri höfnina í Reykjavík á 11. tímanum í gærmorgun. Yzt til vinstri á myndinni má sjá í skut Ægis gamla, sem gegnt hefur
aðaihlutverki í síldarleit undangenginna sumra.
Það var nokkurn veginn um
sama leyti að 'Ámi Friðriksson
fyrsta íslenzka skipið sem smíð-
að er sérstaklega til fiskirann-
sókna og síldarleitar sigldi inn á
Reykjavíkurhöfn og fréttir bár-
ust um það að austan frá síldar-
leitinni að sildin væri nú loksins
komin á hreyfingu suður á bóg-
inn i átt að landinu.
Það verður því væntanlega
fyrsta verkefni þessa glæsilega
skips að fylgjast með þessari
langþráðu göngu sildarinnar upp
að landinu, því að nú vona
menn að hún taki ekki fleiri
hliðarspor i sumar, enda þykir
hún hafa svikið okkur íslend-
inga nógu lengi.
Fá eða engin dýr í sjónum
hafa sennilega verið hundelt til
jafns við síldina, svo mjög hefur
verið sótzt eftir henni og undan-
gengin sumur hafa margar þjóð-
ir gert út rannsóknarleiöangra
til þess að fylgjast með háttum
síldarstofnsins í Noröur-Atlants-
hafi. Samt sem áður reynist
mönnum erfitt að reikna út
dutlunga hennar.
Fiskifræðingar okkar, sem við
síldarleitina hafa starfað, hafa
þó reynzt furðu sannspáir í sfld-
arspám sínum og má mikils af
þeim vænta, þegar þeir hafa
fengið svo fullkomiö tæki til af-
nota sem þetta nýja leitarskip.
Hingað til hafa allar okkar
síldarrannsóknir fariö fram í
skipum, sem byggð voru til allt
annarra nota. Ægir gamli, sem
nú er væntanlega leystur af
hólmi hefur undanfarin ár veriö
aðalsíldarleitarskip okkar, þrjá-
tíu og átta ára gamall orðinn
og upphaflega ætlaður til strand
gæzlu, sem hann hefur orðiö að
sinna jafnframt sildarleitinni
oftast nær.
Árnl Friðriksson verður hins
vegar eingöngu notaður til fiski-
rannsókna og um borð í honum
verða fullkomnari tæki en áður
hafa verið notuð í íslenzkum
skipum til þess ama.
Ýmsir hafa haft orð á þvi að
sfldveiðunum hafi verið gert
hærra undir höfði en öðrum ís-
lenzkum sjávarútvegi, hvað rann
sóknir snertir. Tvö til þrjú skip
hafa jafnan verið við síldarleit
sumar hvert, en rannsóknir á
öðrum fiski hafa verið hverf-
andi litlar. — Menn binda þess
vegna miklar vonir við hiö nýja
hafrannsóknaskip, sem nú er í
smíðum fyrir Islendinga en þaö
á að bera nafn Bjama Sæmunds
sonar, sem var brautryöjandi í
rannsóknum á siávardýrum hér
við Iand.
Það getur til dæmis varla tal-
izt vammlaust lengur, aö tslend-
ingar skuli ekki halda úti rann-
sóknaskipi einhvern hluta ársins
að minnsta kosti til þess að
kanna þorskstofninn, eða að
ekki skuli vera neinu kostað til
þess að kanna togveiðislóöir,
þegar nágrannaþjóðir okkar
senda fullkomin leitarskip með
skipum sínum á miðin í grennd
við okkur.
Það er því einsýnt að þess-
ara skipa bíða mikil störf í þágu
íslenzka sjávarútvegslns.
Sjávarútvegsmálaráðherra býöur Jón Einarsson, skipstjóra á Áma Friðrikssyni velkominn.
Þarna má sjá ýmsa fyrirmenn íslenzks sjávarútvegs horfa á skipið leggjast upp að Ægisgaröinum.
Meðal annarra Jakob Jakoþsson, fiskifræðing, Guðmund Jörundsson, útgerðarmann, Eggert G. Þor-
steinsson, sjávarútvegsmálaráðherra, Jón Arnalds, dcildarstjóra í atvinnumálaráðuneytinu, Jón Jóns-
son, forstöðumann Rannsóknarstofnunar sjávarútvegsins.
Fjöldi manns stóö á bryggjunni, þegar Árni Friðriksson lagðist að
i gærmorgun. (Ljósm. Vísis B. G. )
iiiiiliijiL? | ,
pw ,
H .
Má -v 1r,|
* N \ i"
!« ’ja
'ÉÍtk^É cöa '"V '-w.