Vísir - 12.09.1967, Side 8

Vísir - 12.09.1967, Side 8
Ö V1SIR . Þriðjudagur 12. september 1967, VÍSIR lltgefandi: Blaðaútgaran viau\ Framkvæmdastjórl: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþör Olfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr 100.00 á mánuði innanlands f lausasölu kr. 7.00 eintakið Prents...iðj£ Visis — Edda h.f. Þjóðarlösfur J>eir Islendingar, sem orðnir voru fulltíða um 1940, ólust flestir upp við skilyrði svo gerólík því, sem yngri kynslóðin þekkir, að segja má að um tvo heima sé þar að ræða. Þær breytingar, sem urðu á þjóðlífinu á styrjaldarárunum, komu svo snöggt, að jafnvel þeir, sem komnir voru til vits og ára, áttuðu sig ekki á þeim strax og flutu sumir hugsunarlítið með straumnum inn í hina nýju veröld. Aðrir héldu vöku sinni, vildu ekki rjúfa tengslin við fortíðina, gerðu sér grein fyrir bæði kostum og göllum breytingarinnar og héldu fast við fornar dyggðir. Þeir, er enn lifa úr þeim hópi, telja, að þrátt fyrir allar framfarirnar og stórbætt lífskjör á öllum sviðum, hafi andlegur og siðferðilegur þroski þjóðarinnar ekki vaxið að sama skapi. T. d. séu skyldurækni og ábyrgðartilfinning almennt minni en áður var. Þessi skoðun kom skýrt fram í þættinum „Þrándi í Götu“ hér í blaðinu fyrir nokkrum dögum. Þar sagði m. a.: „Við getum ekki neitað því, að undanfarið góð- æri hefur alið upp í okkur vissa lesti. T. d. hefur gífur- leg eftirspurn eftir vinnuafli samfellt í mörg undan- farin ár haft það í för með sér, að hin áður þjóðlega stundvísi og samvizkusemi hefur beðið alvarlegan hnekki. Víða á vinnustöðum, þar sem vinna byrjar klukkan átta, er man:.skapurinn ekki kominn til vinnu fyrr en hálftíma eða klukkutíma síðar. Og þó að nú í seinni tíð hafi verið tekin upp notkun á stimpil- klukkum, þá orsakar almenn óstundvísi mjög slæma nýtingu á dýrum vélum og húsnæði. Ef um ákveðin verkefni er að rseða, sem Ijúka verður, þá getur óstund vísi orsakað beint aukið eftirvinnuálag á hærra kaupi. Góðu árin hafa einnig orsakað lélegri vinnubrögð, ýmsir leyfa sér kjaftatarnir m. a. í síma viðkomandi fyrirtækja, í skjóli þess, að vegna vöntunar á vinnu- krafti, þá sé þessi slóðaskapur látinn átölulaus. En versti ósóminn er misnotkunin á veikindadögunum, sem allir vita að eru stórkostlega misnotaðir, þó að erfitt sé að bæta þar um“. Svo mörg eru þau orð, og þau eru raunar fleiri. Hér er ljót lýsing á ástandinu, en því miður mun hún koma allt of vel heim við reynsluna á mörgum vinnustöðum. Þetta er orðinn þjóðarlöstur. Trúmennska í störfum og umhyggja fyrir hag þeirra, sem hjá er unnið, þyrfti áreiðanlega að vera meiri í voru landi en raun ber vitni. Það er orðinn of almennur hugsunarháttur, að heimta sem mest af öðrum, en leggja sem minnst fram sjálfur. Þetta þarf að breytast aftur, og má í því sambandi taka undir orð „Þrándar í Götu“ í fyrr- nefndu spjalli: „Hvernig væri að stéttarfélögin tækju þátt í að hefja áróður í þessu skyni?“ Póllandsheimsókn de Gaulle De Gaulle Frakklandsforseti er í oplnberri heimsókn í Pól- landi svo sem getiö hefur verið. Hann átti þegar eftir komuna tal við forsetann og helztu ráð- herra og fara lokaviðræöur þeirra um sameiginleg vanda- mál og heimsvandamál fram rétt fyrir lok heimsóknarinnar. De Gaulle hefur verið ákaf- lega vei fagnað í Póllandi, enda hefir árum og öldum saman ver- ið um órofa vináttu — og menningartengsl að ræða milli Pólverja og Frakka. De Gaulle var líka tekið með fögnuði hvar vetna þar sem hann hefir kom- ið í heimsókn sinni, fyrst i Varsjá, síðar í öðnrni pólskum bæjum, þeirra meðal bæjum sem fyrr voru þýzkir, en nú eru „eins pólskir og það, sem ég hefi pólskast séð“ eins og haft er eftir de Gaulle. Hann heim- sótti fyrrverandi fangabúðir þýzkra nazista f Auschwitz, þar sem milljónum Gyðinga var tor- tímt af nazistum í síðari heims- styrjöld. í gestabók þar skrifaði de Gaulle: Hvílikur harmur! Hvilik viröing! Hvilik von fyrir allt mannkyn! I ræðum sínum í Póllandi hef- ir de Gaulle verið einarður og opinskár sem jafnan. 1 einni lýsti hann yfir óbreyttri afstöðu Frakklands til landamæra Pól- lands og Þýzkalands (Oder- Neisse-línan svonefnda). Þau landamæri viðurkennir ekki Vestur-Þýzkaland. Um þau hef- ir ekki verið samið, enda ekki friðarsamningar gerðir. Þýzka- landsvandamálið er óleyst. En líklega dettur fáum í hug, að þessum landamærum verði breytt, nema ný röskun veröi á landamærum álfunnar af völd- um .nýrrar styrjaldar. í annarri ræðu talaöi de Gaulle á þann veg, að það var skilið sem hvatning til sjálfstæðari utanrikisstefnu. Og svo var bú- izt viö, að hann myndi ræða ýtarlegar ýmislegt, sem hann I NTB-frétt segir, aö nýstofn- að félag ætli að stofna verk- smlðju til framleiöslu á sildar- mjöli, sem minni fita er i en í venjulegu sfldarmjöli. Vélar verða keyptar frá Þýzkalandi. Verksmiðjan verður á Eiger- ey og gert ráð fyrir 100 lesta afköstum af mjöli á dag. Sölu- möguleikar eru betri fyrir slikt sildarmjöl en venjulegt, vegna hafði drepið á í ræðum sínum — og um er deilt, — er hann ávarpaði þjóðþingið. Endurreisn evrópskrar einingar. 1 ræðu þeirri, sem de Gaulle flutti á pólska þinginu, hvatii hann til samstarfs milli Póllar.ds o.g Frakklands, þegar um væri að ræða endurreisn evrópskrar einingar. Gomulka, pólski flokksleiðtog inn, sagði i gær, að Pólland væri reiðubúið að koma tengslum sfn um vi ðVestur-Þýzkaland f eöli- legt horf, ef opinber vestur- þýzk stjómmálastefna yrði r-■:s( frá grunni á nýjum, raunhæfum sjónarmiöum. þess að það hentar betur sem kúafóður, þar sem enginn keim- ur verður af mjólkinni, en sá ókostur fylgir venjulega síldar- mjölinu. Ekki er hægt að nota mjöl- ið til manneldis. Sams konar verksmiðja, með minni framleiðslugetu, er a Karmöy. Norðmenn reisa síldarverk- smiðju til framleiðslu á mjöli, sem í er minni fifa en venjulega

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.