Vísir


Vísir - 23.09.1967, Qupperneq 1

Vísir - 23.09.1967, Qupperneq 1
VISIR 57. árg. Laugardagur 23. septeirtber 1967. — 218. tbl. Myndlistarhúsið á Mikla- túm hoðið út Tveir sýningarsalir verða i húsinu, veitingasalur og útiveitingasvæði Myndlistarhús þaö, sem Borg- arsjóður Reykjavíkur og Félag íslenzkra myndlistarmanna hyggjast reisa á Miklatúni hef- ur verið boðið út og eiga verk- takar að skiia tllboðum fyrir 5. október næstkomandi. — Þegar hefur verið grafið fyrir húsinu í Miklatúninu við Flókagötu. M; ndlistarhúsið verður hin veglegasta bygging. Tveir sýn- ingasalir verða í húsinu, 38 metra langir og 11 og 14 metra breiðir. Húsið verður U-!aga og ganga armarnir til suðurs. — Verður komið fyrir útiveitinga- svæði i U-inu, sem verður í tengslum við veitingasal i hús- inu sjálfu. — Á veitingasvæð- inu og salnum verður aðstaða til að stilla upp höggmyndum. — Þá verður í húsinu skrifstofa Félag ísl. myndlistarmanna og ýmislegt annað, isem þarf að vera í húsi sem þessu. Á þakinu yfir sýningasölun- um verða margir glerhjálmar til þess að hleypa ljósinu beint nið- ur, en einnig verða rimlagluggar staé :ttir hátt á veggjunum, sem eiga að veita eðlilega birtu inn í salinn. — Öllum rafmagnsljós- uni verður komið þannig fyrir, að lýsing verði sem líkust því, se.n hún er á daginn, þ.e. þeim verður komið fyrir við gler- hjálmana og gluggana. Hannes Kr. Davíðsson arki- tekt teiknaði húsið. — Óvíst er hvenær bygging hússins hefst, en Félag ísl. myndlistarmanna hefur lýst þvi yfir, að Haust- sýningin, sem hefst í dag í Listamannaskálanum sé sú síð- asta, sem þar verður haldin. Þessa mynd tókum við af svanahjónunum á Tjörninni, þegar þau voru að hrista af sér vætuna á Tjarnarbakkanum meg miklum bægslagangi. Börnin, sem höfðu verið að henda brauðmolum til þeirra í óða önn og kalla „púdda-púdd“, urðu skelkuð og hlupu til mæðra sinna, en svanahjónin hafa verið bömum til mikillar ánægju í sumar, ekki sízt eftir að fjórir litlir ungar höfðu bætzt í hóp svananna. (Ljósm. Isak.). Þýzkir sjómenn gengu berserks- gang á Patreksfirði Stálu bifreiðum og stórskemmdu eina — 5-6 gæzluvarðhaldi að staðaldri i allan gærdag Afli togaranna hefur minnkað — Ovenju fáir hafa selt i Þýzkalandi — L'ónd- unarhömlunum i Bretlandi aflétt 2. okt. n.k. Patreksfirðingar vöknuðu við vondan draum í gærmorgun, þegar þeir ætluðu til vinnu sinnar. Fundu þeir ekki bíla sína á þeim stöðum, sem þeim hafði verið Iagt kvöldið áður, því um nóttina höfðu þýzkir sjómenn stolið þeim og ekið um plássið. Lögreglan vann í allan gærdag að rannsókn á þjófnuöum og skemmdum, sem framin voru á nokkrum bifreiðum Patreksfirð- inga í fyrrinótt, og stóðu yfir- heyrslur yfir fram á kvöld. Voru jafnan 5-6 menn af áhöfn þözks skuttogara, sem staddur er á Pat- reksf. hafðir í gæzluvaröhaldi í einu í gærdag, meðan yfirheyrslur stóðu yfir hjá sýslumanni. Hafa böndin FRAM og VALUR leíka um Islands- bikarinn á morgun Úrslitin um íslandsbikarinn í j | knattspyrnu fara fram á morgun á Laugardalsvellinum. Það eru Fram og Valur sem mætast í ( hreinum úrslitaleik. Leikurinn hefst kl. 2. borizt að ákveðnum mönnum með- al áhafnarinnar, en þeir ekki enn játað á sig þjófnaðina og skemmd- irnar, scm urðu á bílunum. Stór skuttogari, Slezvik frá Kiel i Þýzkalandi, kom til Patreksfjarð ar í fyrrakvöld, til þess að sækja þangað vatn, vistir og eldsneyti. Staldraði togarinn við um nóttina, en strax um kvöldið varð þess vart, að nokkrir skipverja væru við skál um borð, og einnig nokkrir, sem farið höfðu í land. Samkvæmt upplýsingum frá Jóni Eggertssyni, fréttaritara Vísis á Patreksfirði, mun lögreglan hafa þurft að flytia þá, sem í land fóru, um borð í skipið aftur um kvöldið Framn .á bls. 10. I Afli togaranna hefur heldur rýrn að upp á síðkastiö, að því er Hall- grímur Guðmundsson hjá Togara- afgreiðslunni sagði Vísi í gær. Að- eins tveir togarar lönduðu afla sín- um í Reykjavík í síöustu viku, og einn er væntanlegur á mánu- dag. Þá hafði biaðið og samband viö Landssamband fsl. útvegs- manna og fékk þær upplýsingar þar, að aöeins þrír togarar hefðu selt afla sinn í Þýzkalandi í sept- ember, og er það óvenjulegt mið- að við þennan árstíma. Ingimar Einarsson fulltrúi hjá LfÚ sagði blaðinu að ekki væri vitað um einn togara ,sem ætlaði að selja afla sinn í Englandi, en það stafar aðallega af hinum ströngu löndunarreglum sem verið hafa á löndunum erlendra togara i ænsk- um höfnum. Löndunarreglur þessar voru settar á 24. júlí sl. og áttu upp haflega að gilda til 1. september, en gildistími þeirra ávallt verið framlengdur, og um leið hefur nokkrum ströngustu ákvæðum þeirra verið brevtt til hins betra frá íslenzku sjónarmiði. Nú hefur verið tilkynnt' að reglurnar gangi úr gildi hinn 2. október nk. og má þá búast við því, að islenzkir tog- arar fari aö selja afla sinn í Eng landi, en þó sagði Ingimundur blað inu, að það væri orðið sjaldgæft, að íslenzkir togarar hittu á að fá góðan fisk fyrir Bretlandsmarkað á haustin. Eins og fyrr segir hafa aðeins tveir togarar landað afla sínum i Reykjavík þessa viku, Ingólfur Arn arson, sem kom með 160 lestir, og Sigurður, sem var með 250 lest- Framn á bls. 10. Væru mjólkurumbúðirnar framleiddar hér á landi: 6 millj. kr. gjaldeyrissparnaður, á ári VÍSIR í vikulokin fylgir blaðinu í dag. — Mjólkursamsalan fékk ekki leyfi TETRA PAK i Svibjóð, til að kaupa umbúðirnar hér á landi. □ Óhætt mun að fullyrða, að miklar umræður hafa risið vegna hinna nýju mjólkurumbúða, sem væntanlegar munu á markaðinn innan skamms. Finnst fólki, að ekki sé gætt nógu mikillar hagsýni í innkaupum á nýju umbúðunum, og út yfir þverbak þykir keyra, þegar upplýsist, að þegar til- boð í garð umbúðanna, annað íslenzkt og hitt frá erlendum aðila, hljóða upp á svo til sömu upphæð, þá skuli tilboði hins erlenda aðila vera tekið. Kassagerð Reykjavíkur bauð í fram- leiðslu á hinum nýju umbúftum, og sneri Visir sér í gær til forstjóra Kassagerðarinnar, Kristjáns Jóhanns Kristjánssonar, og spurðist fyrir um þetta mál. Kristján sagði m. a.: ,,Það má segja, að síðari verðútreikn- ingur Mjólkursamsölunnar mun hafa komizt mjög nálægt þeim verðútreikningi, sem Kassagerö- in gerði og sendi Mjólkursam- sölunni, miðaö viö sama toll af hráefninu óunnu og umbúðun- um fullunnum. Ef miðað er við, að daglega séu seldir 80 þús. lítrar í hinum nýju umbúðum, sem er lágmark á markaði Mjólk ursámsölunnar, mun láta nærri, að hreinn gjaldeyrissparnaður þjóðarbúsins af því, að umbúð- irnar séu framleiddar hér á landi nemi um 6 milljónum kr. á ári. Svo að ekki sé minnzt á öryggi það, sem hlýzt fyrir neyt endur af því, að umbúðirnar séu framleiddar hér, en Mjólkursam salan verður að halda birgðir umbúða, vegna þess ,að alltaf getur eitthvað komið fyrir, sem hindrar aðflutning umbúðanna hingað til landsins, og vitanlega kostar fjármuni að hafa slíkan lager. I tilboöi Kassagerðarinn- ar fólst m. a. að hún bauðst sjálf til að hafa ávallt til taks birgðir til þriggja mánaða. Hitt má og koma í Ijós, að forstjóri Mjólkursamsölunnar sneri sér til Tetra þak í Svíþjóð þess fyrirtækis, sem hefur einka umboð á framleiðslu þessara umbúða, og fór fram á leyfi til að mega kaupa umbúðirnar hér á landi, en fékk algjöra neitun". Þá víl ég leiðrétta þá missögn að umbúðirnar frá Tetra Pak, sem hingað eru fluttar inn, séu hráefni. Þær eru algerlega til- búnar til að setja þær í áfylling- arvélarnar. í því tilfelli, að Kassagerðin framleiddi umbúð- irnar, flyttum við inn hráefnið óunnið, í 1000 kg rúllum, en mundum siðan vinna hráefnið, þ. e. pressun, stenzlun og lím- ingu á öskjunum. Mönnum kann að þykja það alleinkennilegt, að þegar talað er um minnkandi gjaldeyris- forða þjóðarbúsins, og versnandi þróun í því efni, skuli einstök- um fvrirtækjum líðast að sóa Framn .á bls. 10. I

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.