Vísir - 23.09.1967, Page 2

Vísir - 23.09.1967, Page 2
2 V1SIR . Laugardagur 23. september 1967. Þessar fjórar myndir hér eru úr fyrstu kvikmyndinni, sem Bítillinn JOHN LENNON hefur leikið í, og heitir hún „HOW I WON THE WAR“. Mikið hefur verið rætt og ritað um kvikmynd þessa, enda engin furða, þar sem svo frægur og vinsæll maður fer með aðalhlutverkið. I þýzka tímaritinu „STERN“ hef- ur verið minnzt á þessa umræddu mynd meira en í nokkru öðru blaði að því er ég hygg. Fyrir skemmstu kom langt og mikið viðt. við LENN- ON, og hanrt spuröur spjörunum úr, eins og vænta má. Þegar JOHN var spurður hvort hann heföi í hyggju að halda áfram kvikmynda- leik, svaraði hann neitandi, og byggði hann svar sitt á þeirri for- sendu, að eiginkona hans væri lítt hrifin af þeirri atvinnugrein, og hefði hann með fullu samþykki hennar tekið sér þetta hlutverk á hendur. Myndin „HOW I WON THE WAR/'HVERNIG ÉG VANN STRÍÐ IГ var frumsýnd 23. ágúst sl. í London og hrósa gagnrýnendur LENNON á hvert reipi. Honum hafa nú borizt nokkur i.vikmyndatilboö, en ef að líkum lætur, munu þau ekki vinna á hon- um. „Hvernig ég vann stríðið" TANINGA- SÍÐAN „Skárst mun sinni kellu að kúra hjá" Fyrir nokkru kom út fjögurra laga hljómplata með Þorvaldi Halldórssyni og hljómsveit Ingi- mars Eydal. Aðallagið á plöt- unni er fallegt, rólegt sjómanna- lag, sem ber nafnið HÖLDUM HEIM. Má sennilega búast við þvi. að þetta lag eigi eftir að heyrast oft í óskalagaþætti sjó- manna næstu mánuðina. Eitt fjörugasta lagið, sem kom ið hefur út hér í langan tíma, er á þessari plötu. Það er amer- ískt lag, með íslenzkum texta eftir Kristján frá Djúpalæk. — Heitir það SKÁRST MUN SINNI KELLU AÐ KÚRA HJÁ. Bráð- skemmtilegur texti er við það, sem Þorvaldur syngur all hressi- lega, en með honum syngja þau Helena Eyjólfsdóttir og Finnur Eydal, sem tók sæti í hljómsveit bróður síns fyrir tæpu ári. Síðan eru það tvö lög eftir Þorvald sjálfan. Þau helta ÉG VAR ÁTJÁN ÁRA og í NÓTT. Bæði eru lögin góð, hið fyrra hratt og ekki auðlært, en hið síðara einfalt en engu að síður vandmeðfarið, og nær Þorvald- ur góðum tökum á því. Hljómplata þessi var hljóðrit- uð síðastliðið vor, en þá lék hljómsveit Ingimars Eydal inn á aöra fjögurra laga plötu, þar sem Helena syngur ein. Er sú plata væntanleg f nóvember og verður nánar sagt frá henni þá. í þessari viku heimsótti hljóm sveitin Reykjavík, til að leika inn á aðrar tvær plötur, sem koma munu út eftir áramót. En einnig geröi hljómsveitin tvo sjónvarpsþætti og kemur fram á dansleikjum í Reykjavík einu sinni eða tvisvar. Með hinum ágætu hljómplöt- um sínum hefur hin prýðilega hljómsveit Ingimars Eydal afl- að sér slíkra vinsælda, aö ein- stakt má telja með hljómsveit utan Reykjavikur. Bítlarnir við upptöku hjá Rolling Stones Nú fyrir skömmu kom út tveggja laga hljómplata með ROLL ING STONES, og eru bæöi lögin samin af þeim félögum Mick Jagg- er og Keith Richard. Nafngift þeirra er: “WE LOVE YOU“ og „DANDE- LION“. -Q. Bítlunum var boðið að vera við, er upptakan átti sér stað, og þáðu þeir það. — Ef til vill hafa þeir hjálpað eitthvaö til — j hver veit ? ? ? ! ít Eins og eflaust allir vita, stóðu þeir Mick Jagger og Keith Richard ----------------------------------- í málaferlum, vegna þess, að í fór- um þeirra fannst nokkuð magn af eiturlyfinu „MARIUANA". Fyrr- greind hljómplata er sú fyrsta. sem komið hefur út með ROLLING STONES eftir að þessum málaferl- um lauk, og spáðu því margir, aö ROLLINGARNIR hefðu glatað vin- sældum sínum með þessu athæfi, i en því fer fjarri. Lögin WE LOVE YOU og DANDELION fóru beint í sautjánda sæti vinsældarlistans og eru nú á hraðri uppleið. i

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.