Vísir - 23.09.1967, Side 3

Vísir - 23.09.1967, Side 3
VISIR . Laugardagur 23. september 1967, 3 Reynir og Björn fara sameiginlega yfir nótur yfir verk Lindholms. Bohdan Wodiczko hljómsveitarstjóri. MYND- S J A Sinfóníuhljómsveit íslands æfir fyrir Norrænu tónlistarhátíðina undir stjórn Bohdan Wodiczko í Háskólanum. TÓNLISTARHÁTÍÐ NORÐURLANDA í Reykjavík 1967 Þessa viku hefur staðiö yfir norræn tónlistarhátíö í Reykja- vík og fannst Myndsjánni til- hlýöilegt að bregða sér á æfingu í Háskólabíói og taka nokkrar myndir af því, sem þar fór fram. Er Myndsjáin kom á staðlnn var verið aö æfa verk er nefn- ist Sinfonia da camera og auð- vitað var Ijósmyndarinn fljótur að taka mynd af hljómsveitinni meöan hún var að leika Sinfoni- una. Verkiö er eftir hið kunna finnska tónskáld Joonas Kokk- onen. í gærkvöldi voru síðustu tón- leikarnir á hátíðinni, og þá var meðal annars flutt sinfónía eftir Leif Þórarinsson, en hún er til- einkug Ragnari í Smára. Var þá einnig flutt Sinfonia da cam- era, Mutanza eftir Svíann Ingv- ar Lidholm, Herbsttag eftir Danann Axal Borup-Jörgensen (viö ljóö eftir Rilkc) og söng Ruth Little Magnússon einsöng. Einnig var flutt A L’inconnu eft- ir Paul Rovsing Olsen og eftir Norðmanninn Arne Nordheim, sem er tónlistargagnrýnandi og tónskáld, var flutt Respons 1 fyrir tvö slaghljóöfæri og seg- ulband. Myndsjáin náöi einnig mynd- um af tveim slaghljóðfæraieik- urunum, er þeir voru að bera saman bækur sínar á æfingunni, en það voru þeir Reynir Sigurðs son og Bjöm Liljequist. Hinir norrænu tónlistarmenn munu flestir fara héðan á mánu- dag og þriöjudag eftir viðburða- ríka viku á íslandi, en aðsókn að tónlistarhátíðinni var mjög góð. i Ingvar Lidholm tónskáld, Wodiczko stjórnandi og Björn Ólafsson konsertmeistari ræðast við um verk Ingvars Lidholm í hléi.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.