Vísir - 23.09.1967, Side 8

Vísir - 23.09.1967, Side 8
s VÍSIR . Laugardagur 23. september 1967. VÍSIB Utgefandi: Blaðaútgáían visrn / Framirvæmdastjóri: Dagur Jónasson ) Ritstjóri: Jónas Kristjánsson / Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson ) Fréttastjóri; Jón Birgir Pétursson ( Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson / Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, slmar 15610 og 15099 \ Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. / Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) ) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands ( t lausasölu kt. 7.00 eintakið / Prentsi*iiðjt Visis — Edda h.f. ) Hvað hefðu þeir gert? 'J'íminn er afar hreykinn af frammistöðu Eysteins ] Jónssonar í útvarpsþætti Áma Gunnarssonar s.l. laug- \ ardag. Árni spurði Eystein m. a. hvað Framsóknar- ( flokkurinn hefði gert í sumar, ef hann hefði haft / valdaaðstöðu eftir kosningarnar. J Þótt Tímanum þyki svar Eysteins stórmerkilegt, ' mun flestum, sem á það hlustuðu, hafa fundizt lítið á því að græða. Það var gamla „platan“ um hina leið- ina, sem aldrei virðist hægt að upplýsa hver sé. Ey- steinn sagðist mundu hafa hafizt handa um „raun- hæfan áætlunarbúskap“ og athugun á því, hvaða framkvæmdir ættu að hafa „forgangsrétt“. Svo sagði hann, að flokkur sinn mundi tafarlaust hafa látið gera athugun á rekstrargrundvelli hverrar atvinnugreinar, til þess að komast að raun um, hvað helzt væri hægt að gera til þess að bæta reksturinn með aukinni tækni og hagræðingu. ' Allt er þetta tómt orðagjálfur, og í rauninni er mað- ( urinn með því að koma sér hjá að svara spurningunni. / Ekkert af þessu er nýtt. Ríkisstjórnin hefur látið gera J slíkar athuganir. Engar líkur eru til að þær hefðu orð- ) ið nokkuð ýtarlegri, þótt Framsóknarflokkurinn hefði V farið með völd, enda líklegt að sömu mennirnir hefðu \) framkvæmt þær. Þetta er ekki lausnin á þeim vanda, (( sem verðfall og aflabrestur valda. Hér þarf meira til. f( Þá sagði Eysteinn Jónsson, að Framsóknarflokk- #) urinn hefði „lagt til að tekið yrði upp samstarf við ) launþegasamtökin um markvissa stefnu í kaupgjalds- ) málum, er stefndi að því að tryggja launþegum eðli- \ lega hlutdeild í vaxandi þjóðartekjum". Heldur Ey- í steinn að þjóðartekjurnar hafi farið vaxandi síðan í 1) sumar, eða hvernig ber að skilja þetta? \\ En því er til að svara, að launþegar hafa aldrei f eng- ( ið eins „eðlilega“ hlutdeild í þjóðartekjunum og í tíð ( núverandi ríkisstjómar. Eysteinn Jónsson ætti sem J minnst að tala um samstarf við launþegasamtökin. ) Flokkur hans hefur ekki reynzt þeim svo vel, þegar ) hann hefur farið með völd. Vinstri stjómin þóttist \ ætla að hafa sérstaklega gott samstarf og samráð ( um flesta hluti við launþegasamtökin. Endirinn varð / samt sá, að verkalýðssamtökin báðu þá stjóm að / hypja sig frá völdum og sögðu hana hafa bmgðizt ) öllum sínum loforðum. Verður að telja harla ólíklegt ) að þau mundu vilja fela Framsóknarflokknum for- \ sjá sinna mála, eða treysta honum betur en núver- (( andi stjórnarflokkum. II Auðvitað gleymdi Eysteinn Jónsson ekki að nefna /) það „bjargráð“ Framsóknarmanna, að eyða gjaldeyr- ) isvarasjóðnum. Það hefði að þeirra dómi verið flestra ) meina bót, og sýnir bezt, hvílík gæfa það var fyrir \ þjóðina, að þeir skyldu ekki komast í ríkisstjóm eftir ( síðustu kosningar. ( F-lll Aðstaða Breta til varna með kjarnorkuvopnum talin í hættu Daily Mail birtir forsiðufrétt um málið Blaðið Daily Mail í London blrtir forsiðufregn um, að Bret- ar elgi á hættu að glata aðstöðu sinni til varna með kjarnorku- vopnum og RAF eða brezka flug hemum sé hætta búin, ef fram- kvæmd verður hótun um bann á sölu f. um 300 herflugvélum af fullkomnustu gerð (top-line air- craft), en flugvélarnar eru 266 Phantom orrustuþotur F-lll, — sprengjuþotur af „swing-wing“ gerð og herflutningaflugvélar af Herculesgerð, en þessara flug- véla þarfnist flugherinn brezki, anars verði hann að húka á jörðu niðri eftir 1970. Blaðið segir þessa „hótun“ hafa þær afleiðingar að stjómin hafi tekið vamamálastefnu sína til endur-íhugunar, og landvarna ráðherrann, Denis Healy, telji um mjög alvarlegt mál að ræða. Og blaðið segir, að orsök þess hversu komið sé megi kenna hálfvelgjulegum stuðningi stjóm arinnar við „styrjöld Bandaríkj- anna i Vietnam". Auk flugvélanna eiga Bretar á hættu að fá ekki 64 kjamorku skeyti til notkunar í Polaris- kafbátum, handa 4 brezkum kjarnorkukafbátum af þessari gerð. Þessi hertæki segir blaöið þann hornstein sem vamar- stefna Healys byggist á, sem á að gera Bretum kleift að gegna áfram „heimshlutverki“, án þess nokkru sinni að geta ráðist í meiri háttar hemaöaraðgerðir án bandarískrar hjálpar. Þá minnir blaðið á, að hætt var við, vegna áöurgreindra vopna, smíöi TSR-2 sprengju- flugvélanna, Hawker-111 orr- ustuþotanna oð Hawker 681 her flutningaflugvélanna. Það ,sem hinum nýja vanda veldur, er breytingatillaga viö lögin um aöstoð við erlend ríki, en hana flytur „andbrezkur ein- angrunarsinni", Harold Gross, sem á sæti i fulltrúadeild þjóð- þingsins .Ef tillaga hans næði samþykkt yröi bönnuö öll hern- aðarleg aðstoð við öll lönd, sem Ieyfa verzlun viö Norður-Viet- nam, — og þetta sé greinilega lagt til, vegna þess að 12 brezk skip, með brezkri skrásetningu aö nafninu til, séu í stöðugum flutningum milli Hong Kong og Norður-Vietnam, og Bretar séu eina þjóðin, sem máli skipti, meöal bandamanna Bandaríkj- anna, í þessari aðstöðu. Ef af þessu yröi gæti tap bandarískra fyrirtækja numiö 700 milljónum punda. Blaðið segir þó, að 30 Hercu- les-flugvélar hafi þegar veriö af- hentar RAF, og fyrstu Polaris- flugskeytin hafi þegar verið af- hent. ► í Bihar-ríki Indlandi hefir Poonpoon-áin flætt yfir bakka sína og flótti byrjaður úr út- h-erfum borgarinnar Patna. íbúar bæjarins em 365.000. ► í Sovétríkjunum er búist við meöal komuppskeru í ár, eöa minni en í fyrra, eða um 150 milljónum lesta, en 1966 var metár uppskeran 170 m. 1. — Vegna kombirgöa mun ekki þurfa að kaupa kom erlendis. Atkvæðagreiðsla í San Francisco 7. nóv. um brottflutning herafla Bandaríkjanna frá S-Vietnam JJ æstiréttur Kalifomíu úrskurð A aði nýlega, að greiða skyldi atkvæði um það í kosningunum I San Franclsco, sem fram fara 7. nóv., hvort Bandaríkin ættu að flytja burt herafla sinn frá Suður-Vietnam þegar í stað. — Borgarar í ýmsum borgum Bandarikjanna hafa ag undan- fömu háð baráttu fyrir slíkum atkvæðagreiðslum. Spuming um þetta var á at- kvæðaseðlum í kosningum í De- arbom, Michigan, í fyrra, og 41 af hundraði þeirra, sem atkvæði greiddu lýstu sig mótfallna í- hlutun Bandaríkjanna í Viet- nam. I San Francisco var lagt til, að kjósendur greiddu atkvæði um eftirfarandi ályktun: Það er stefna borgara San- Francisco og San-Francisco- sýslu, að vopnahlé verði gert þegar i stað í Vietnam og her- lið Bandaríkjanna flutt burt það an, svo að Vietnamþjóðin geti sjálf leyst sín vandamál. Nefnd borgara, sem kallar sig „Citizens for a Vote on Viet- nam“ (Borgarar, sem vilja at- kvæðagreiðslu um Vietnam), hafði farið fram á það við Bas- il Healy, sem er yfirkjörstjóri í San-Francisco, að atkvæöa- greiðsla færi fram, en nefndin hafði safnað 22,000 undirskrift- um meðal kjósenda málinu til stuðnings. Eftir margar árangurslausar tilraunir til þess að atkvæða- greiðslan yrði leyfð, skaut nefnd in málinu til Hæstaréttar, sem felldi úrskurð sinn í málinu með atkvæðum 5 dómara, en 2 voru á móti. Hinir síðarnefndu töldu lagaheimildir til almennrar at- kvæðagreiðslu í kosningum um mál aðeins ná til mála borgar- innar, en forseti réttarins kvað það skoðun hinna, að slík laga- ákvæði yrði að túlka frjálslega í þágu lýðræðislegrar þróunar. Úrskuröarins var beöið víða um Bandarikin með óþreyju þar sem litig var á málið sem próf- mál, er greiddi fyrir sams konar atkvæðagreiðslum yfirleitt, ef atkvæðagreiðsla yrði leyfð. í New York neitaði yfirkjör- stjórn sams konar málaleiatn á þeim grundvelli, að utanrikismál væri óviðkomandi borgarmálum.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.