Vísir - 26.09.1967, Qupperneq 7
VlSIR . Þriðjudagur 26. september 1967.
morgun útlönd í morgun
útlond í morgun
útlönd í raorgun
útlönd
Ayub Khan, þjóðarleiðtogi Pakist-
an, er í Moskvu í nokkurra daga
opinberri heimsókn sámt utanrík-
isráðherra sínum, Shari-Fuddin
Pirzada. — Talið er, að rætt mimi
verða urn aukna vopnasölu frá Sov-
étríkjunum til Pakistan og aukna
efnahagsaðstoð.
D Sennilegt er, að 150 manns hafi
drukknað, er ferja með 200 manns^
rakst á sker í Gangesfljóti s.l.
föstudag.
□ 52 þingmenn fulltrúadeilrar
þjóðþings Bandaríkjanna hafa hvatt
til endurathugunar á Vietnamstefnu
stjómarinnar. Findlay, republikani
frá Illinois, sagði á fundi með
fréttamönnum í gær, að fulltrúa-
deildin hafi ekki gripið inn í Viet-
nam-styrjöldina síðan er svo köll-
uð Tonkinflóa-ályktun var gerð
1964, en Johnson forseti hefur
haldið því fram, að pieö henni hafi
fulltrúadeildin fallizt algerlega á
stefnu stjómarinnar. Findlay sagði,
að styrjöldin hefði að ö.llu leyti
tekið gerbreytingum frá því sam-
þykktin var gerð.
tl Kairóútvarpið skýrði frá því I
gær, að þjóðernissamtökin Flosy og
NLF í Suður-Arabíu heföu fallizt á
að hætta innbyrðis fjandsamlegum
aðgerðum. Þau hafa átt í blóðugum
bardögum að undanfömu og her
S.-A. reynt að fá leiðtoga þeirra til
að sættast. Bretar gera sér vonir
tm einingu og samkomulag úm
stjórnarmyndun og ef svo verður
kann Suður-Arabía að fá sjálfstæði
fyrr en áður var ákveðið (9. jan.)
^ Le Than Nghi vara-forsætis-
ráðherya Noröur-Vietnam er i
Moskvu og hefúr rætt við Kosy
gin um hernaðarlega og efna-
hagslega aðstoð við N.V. Slík-
ur sáttmáli hefur verið undir
ritaður af forsætisráöherra N.
V. og Ri.meníu. Varaforsætisráð
herrann kom' til Moskvu frá
Kúbu þar sem sgmstarfssáttmáli
var undirritaður 15. sept.
j>Launþégar í Aþenu eru 1.148.
000 eöa 20.000 fleiri en á sama
tíma í fyrra.
Egyptar sagðir hafa hætt við inn-
rás / ísrael fyrir áeggjan Rássa
Blaðið Intemational Herald
Tribune (gefið út ásamt The
New York Time.s og The Wash-
. ington Post) birti á forsíðu ný-
lega fréttapistil frá Madrid þess
efnis, að Sovétríkjunum hafi tek
izt að fá Egypta til þess að
hætta við áformaða innrás í
ísrael 5. júní, aðeins 30 klukku-
stundum áður en hún átti að
hefjast. Fréttaritarinn Tad Szule
hefir þetta eftir stjómmálamönn
um í Madríd, sem hafa upplýs-
ingar sínar frá Kairo ,eða frá
stjómmálamönnum (sendiráðs-
mönnum), sem bezt skilyrði
hafa til þess að fylgjast með
gangi mála.
Sovézki ambassadorinn í Ka-
iro, Pozhidayev (annar hefir síð-
an veriö skipaður í hans stað),
er sagður hafa haldið því fram
á fundi meö Nasser, að Israel
heföi hvorki getu til né áhuga
á aö ráðast á Arabalöndin, og
þar af leiðandi væri honum hent
ugra að sækja fram að marki
sínu eftir stjórnmálalegum leið-
um og beita sér á þeim vett-
vangi með þunga til þess að
markinu yrði náð.
Sovézki ambassadorinn er
sagður hafa lagt sérstaklega til
við Nasser, að hætta við áform
um að leggja tundurdufl í Tiran-
sund inn í Akabaflóá, en í maí
hafði egypzka stjórnin lagt bann
við siglingum um sundið.
Þá er sagt, að ambassadorinn
hafi tekiö það sérstaklega fram',
og lagt á það áherzlu, að Egypta
land gæti ekki reitt sig á beina
aðstoð Sovétríkjanna, ef það
ætti upptökin að styrjöld í Aust-
urlöndum nær.
Nasser féllst að lokum á, að
hætta við innrásaráformin og
gerði varaforseta sinum og yfir-
manni hersins, Amer marskálki,
kunnugt um ákvöröun sína, og
þann 4. júní voru send hraö-
skeyti til allra hersveita á Sin-
ai-skaga, að hætt hefði verið
við innrásina.
Diplomatar í Madrid, seg-
ir Szule, eru þeirrar skoðun-
ar, að þarna liggi ræturnar
að ágrelningi milli Nassers
og Amers, sem svo leiddi
.11 þess, að honum var vikið
úr embættum og enn síöar,
að hann framdi sjálfsmorð
nú fyrir skemmstu.
Þá er haft eftir þessum sömu
heimildum, að þegar egypzkar
hersveitir voru á undftnhaldi á
Sinaiskaga þann 3. júní hafi
Pozhidayev ambassador enn far-
ið á fund Nassers og munu þeir
þá hafa skipzt á hörðum oröum.
Stuttu síðar urðu ambassadora-
skipti og viö embætti Pozhida-
yevs tók Vladimir Yefimovich,
sem enn gegnir því.
Tad Szule segir, að spánskir
sendiráösmenn í Kairo hafi sér-
stööu til þess að fylgjast meö
gangi mála í Egyptalandi, vegna
hinna nánu tengsla sem Spánn
hafi við arabísk lönd yfirleitt.
Skömmu áður en styrjöldin
brauzt út sendi Nasser Franco
einræðisherra á Spáni greinar-
gerð um afstöðu sína gagnvart
ísrael.
Það var hinn 28. mai, sem
spánski ambassadorinn í Wash-
ington, de Merry del Val, bað
um að fá að ganga á fund Dean
Rusks utanríkisráöherra þegar
í stað, til þess að skýra honum
frá efni sýrlenzkrar .rðsending-
ar, sem Spánn hafi tekið að sér
aö koma á framfæri, en í orð-
sendingunni var Bandaríkja-
stjórn beðin að beita áhrifum
sínum til þess að hindra árás
af Israels hálfu.
Þegar sambúöin spilltist milli
Arabaríkjanna og vestrænna
þjóða — einkum Bretlands og
Bandaríkjanna — vegna ásak-
ana Nassers i garð þeirra fyrir
aðstoð við ísrael, tók Spánn aö
sér a' gæta hagsmuna Banda-
ríkjanna í Kairo.
□ Mikið flóð hafa komið í suð-
urhluta Texas í kjölfar hvirfil-
vindsins Beulah. Orkoman var
gífurleg og einangruðust 750
þúsund manns á 165 þús. km.
svæði. — Úrkoman var 170 upp
í 760 millimetrar á flóðasvæð-
inu.
$>. Gromyko utanríkisráðherra
flutti ræðu á Allsherjarþinginu
fyrir helgina og kvað hann of-
beldi Bandaríkjanna mestu ógn
unina við heimsfriðinn, bæöi
vegna þess hve ákaft væri bar-
izt, hernaðarframlag Bandaríkj-
anna mikið, en styrjöldin gæti
hvenær sem væri dreifzt til
annara svæöa og dregið ný ríki
inn í hana. Ifann sakaði Banda
ríkin um margskonar viliandi
upplýsingar um styrjöldina, en
frumkvæði Bandaríkjanna til
friðar mætti líkja við sápukúlur
ætlaðar til áhrifa heima fyrir
og erlendis. Hann endurtók, að
friður geti ekki komist á f N.
V. nema árásaraðilinn hverfi
burt þaöan.
Brezki þingmaöurinn Duncan
Sandys (fyrrv. ráðherra íhalds-
manna) réðst harkalega á de
Gaulle í ræðu í Evrópuráöinu
fyrir helgi. Sagði hann de Gaulle
vilja hindra aðild Breta í EBE
til þess að geta sjálfur verið þar
einráöur. Tillögu um aukaaðild
væri ekki hægt að taka alvar
íéga, Bretland sætti sig ekki við
að á sig væri litið sem „annars
flokks veldi“. Hann-kvað fram-
tíö Evrópu undir því komna, að
EBE opnaði dyrnar fyrir Bret-
um. Hann kvaðst ekki trúaður
á, að de Gaulle heföi meiri hluta
frönsku þjóöarinnar að baki sér
í þessu máli.
-<S>
Herald-Tribune í París birtir þessa stríðsmynd frá Vietnam. Bandarískur faílhlifahermaður er á leið
til herstöðvar með Vietcong-liða, sem hann hefur íekið höndum, „grafið upp úr njósnaholu“, eins og
það er orðað.
Bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningar í Noregi
L'iklegf, oð úrslitin sýni aukið fylgi krata, en að
borgaraflokkarnir i heild hafi fengið
meirihluta atkvæða
Blaðið Aftenposten í Osló segir
í morgun, að bráðabirgðatölur, sem
birtar hafí verið um bæjar- og
sveitarstjórnarkosningarnar í Nor-
egi sýni, að mikil festa sé i norsku
stjórnmálalífi og á grundvelli þeirra
upplýsinga, sem fyrir lágu eftir mið
nætti, virtist hafa miðað nokkuð
í þá átt, að Verkalýðsflokkurinn
fengi uppreisn fyrir ósigurinn
1965.
Blaðið telur þó mögulegt, að þeg-
ar endanlegar tölur liggi fyrir, að
í ljós komi að borgaraflokkarnir f
þetta skipti hafi fengið meirihluta
atkvæða. Morgenbladet segir, að
þau úrslit, sem legið hafi fyrir
nokkru eftir miðnætti virðist benda
til, að reyndin verði sú, sem marg-
ir hafi búizt við, að Verkalýðsflokk-
urinn myndi treysta aðstöðu sína á
ný, en ekki ná aftur því fylgi, sem
hann hafði 1963. Þegar litið sé á
borgaraflokkana sem heild kunni úr
slitin aö verða þau, að staða þeirra
verði sterkari en eftir fyrrí bæjar-
og sveitarstjórnarkosningar, en mið
að við stórsigurinn 1965 verður um
nokkurt tap fyrir þá að ræöa.
Wi!son svarar fyrirspurnum
Harold Wilson forsætisráðherra
Bretlands svaraði í gær fyrirspurn-
um i sjónvarpi og sagði m. a., að
samningar væru eina leiðin til þess
að binda endi á styrjöldina í Viet-
nam, en úrslit hennar væru ekki
undir bví komin, að Bretland hyrfi
frá samstöðu við Bandaríkin.
Hann kvað efnahagsaðgerðir gegn
Rhodesíu hafa borið mikinn árang-
ur, þótt þær heföu ekki dugað t,il
þess að tilganginum með þeim hefð’
verið náð og ekki um annað að
ræða að óbreyttu en að fylgja þeirri
stefnu, sem Bretland hefði tekið
og samveldið aðhyllzt.
Hann spáði efnahags- og atvinnu-
lífsbata á næsta árj. en við atvinnu-
leysi yrði að stríða í vetur — og
stjómin mundi halda efnahags-
stefnu sinni óbreyttri hversu óvin-
sælar sem ráðstafanir hennar reynd
ust.
'■■Bar-m m