Vísir - 19.10.1967, Side 2
Ársþing Glímu-
sumbnnds Islunds
Undirbúning-
ur Þjóðverjn
fyrir OL '72
hnfinn
Næstu Ólympíuleikar veröa
haldnir í Mexikóborg næsta
haust. Þamæstu veröa haldnir
í Miinchen 1972, — og eins og
Þjóðverja er von og visa, er allt
skipulag í bezta lagi og fyrir-
hyggjan ræður í öllum fram-
kvæmdum. Þeir eru fyrir löngu
byrjaðir að gera áætlanir um
leikana og framkvæmdir viö um
500 byggingar af ýmsu tagi eru
hafnar.
Á myndinni er módel af
Ólympíusvæöinu 1972. Fremst
er ÓL-þorpiö, en á miðri mynd-
inni er Ólympíuvöllurinn, sem á
að rúma 100.000 áhorfendur.
Bak við hann er sundlaugin og
íþróttahöll.
Eitt þeirra mannvirkja, sem
þama verður er mikil bygging
fyrir um 60 sjónvarpsstöðvar,
sem ætla að sjónvarpa frá leik-
unum og 100 útvarpsstöðvar,
sem ætla að senda út lýsingar
á keppni leikanna.
V í SIR . Fimmtudagur 19. október 1967.
£r enginn munur á 1. og 2. deild?
Fram ógnað af IR i gærkvöldi — og Val af
Þrótti, — og loks unnu Ármenningar Víking i
handknattleiksmótinu i gærkvöldi
Framarar voru í mestu
erfiðleikum með hina ungu
og frísku ÍR-inga í Reykja-
víkurmótinu í handknatt-
leik í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi. Það varð ekki
greindur mikill styrkleika-
munur á íslandsmeisturun
um og 2. deildarliðinu að
þessu sinni.
v Reynsla Framara færði þeim
fyrst og fremst sigurinn í þessum
spennandi leik liðanna, en allt þar
til um miðjan síðari hálfleik var
leikurinn mjög jafn. 1 fyrri hálf-
leik leiddu ÍR-ingar jafnvel leikinn,
en I hálfleik var staðan 9:9.
Fram haföi rétt fyrir miöjan síö-
ari hálfleik yfir 15:14 og komust
þá I 18:14 og síðan 21:15, en leik-
inn unnu Framarar með 21:16.
Þróttur og Valur sýndu einna
lakastan handknattleikinn í gær-
kvöld. Leikurinn varð nokkuð jafn,
en Valssigurinn lá einhvem veginn
alltaf í loftinu. í hálfleik var staðan
hálfleik komst Valur í 9:5 yfir, en
Þrótturum tókst aftur að minnka
bilið í 10:9, en þá skoruðu Vals-
menn 2 næstu mörk, 12:9 og leik-
inn unnu þeir með 14:11.
Leikur Ármanns og Víkings var
skemmtilegur, mjög jafn og spenn-
andi. Ármenningar náðu góöu for-
skoti, 5:1, en Vikingar meö „ris-
ana“ sína, náðu sér á strik og voru
nærri búnir að jafna metin fyrir
hálfleik, en Ármann hélt þó for-
ystunni með 7:6.
Vamar og markmannsleikur
Víkings var i molum í gærkvöldi
og því fengu Ármenningarnir ó-
eðlilega greiða leið aö marki Vik-
inganna, ekki hvað sízt 1 seinni
6:4 fyrir Val, en spemma í síðari l hálfleik. Víkingar jöfnuðu 7:7 í
byrjun hálfleiksins og aftur í 9:9.
En þá var það að Ármenningarnir
komust I gang og skoruðu næstu 5
mörk og höfðu þeir þá yfir 14:9,
en engu aö siöur ógna Víkingar,
skora 3 mörk í röð og var staðan
þá 14:12 og 8 mín. eftir, — allt
gat enn gerzt.
Ármenningar skora 15:12, en
Einar Magnússon skorar 15:13 úr
vítakasti. Hélzt nú tveggja marka
forysta Ármanns til leiksloka, en
spennan náði hámarki, þegar eftir
voru 30 sekúndur. Þá skoruöu Vík-
ingar 18:17, en þrátt fyrir „maður
gegn manni“ leikaðferðina tókst
þeim ekki að ná boltanum, en Ár-
menningar skoruðu sitt síðasta
mark og unnu með 19:17.
um helginu
Ársþing Glímusambands íslands
1967 verður háð sunnudaginn 22.
okt. n.k. og hefst kl. 10 árdegis í
Tjamarbúð, Vonarstræti 10.
Stjórnin.
i Spenneindi leikir
í bikorkeppni KKÍ
Fyrir nokkru voru spcnnandi og
skemmtilegir leikir í bikarkeppni
K.K.I. og uröu úrslit leikjana sem
hér segir:
K.R. vann Ármann með 40 stig-
um gegn 36.
U.M.F. Tindastóll vann Knatt-
spymufélag Akureyrar meö 31 stigi
gegn 25.
Körfuknattleiksfélag Isafjarðar
vann U.M.F. Snæfell með eins stigs
mun þ.e. 52:51.
Leikur U.M.F. Selfoss—U.M.F.
Laugdæla fór ekki fram á Laugar-
vatni eins og til stóð, þar sem aö
Selfosslið mætti ekki til leiks.
Hér er ein mynd af léttara
taginu fyrir golfmenn. Undir-
skriftin er: Haraldur, ég finn
hvergi björgunarbeltlö mitt!
Þessi skemmtilega mynd var tekin um síðustu helgi á Melavellinum,-þegar Eyleifur skoraöi eina mark
leiksins. Eyleifur fékk góða sendingU fyrir markið frá hægri og sneri baki að markinu, þegar hann
skaut. Boltinn sést í markhorninu, en Þorbergur er greinilega allt of seinn að kasta sér, en lengst
til vinstri sést Eyleifur horfa á eftir vel heppnuðu skoti sínu. Úrslitaleikurinn í.bikarkeppninni verð-
ur leikinn á sunnudaginn kemur. Þá mætast Víkingur óg KR.
efn1
yfifíDí®
OÖiV
/