Vísir - 26.10.1967, Page 3

Vísir - 26.10.1967, Page 3
V1SIR . Fimmtudagur 26. október 1967, LAXAKLAK Á HÚSAVÍK Eins og skýrt var frá hér í Vísi í fyrradag, var ný eldisstöð tekin í notkun á Húsavík fyr- ir u. þ. b. ári síöan og hefur rekstur og árangur stöðvarinnar gengið með ágaetum. 1 Myndsjá i dag eru myndir sem sýna m. a. þegar verið er að kreista hrygnur og hængi í hinni nýiu stöð fyrir skömmu. Tvídálka myndin hér fyrir neöan sýnir þegar verið er að kreista hrygnu í stöðinni og má glöggt sjá hvernig hrognin renna úr hrygnunni í skálina. Maðurinn, sem kreistir hrygn- una heif.ir Kristján Benedikts- son og t-r bóndi að Hóimavaði. Sá sem heldur á skálinni er Bragi Eiríksson, formaöur Fé- lags áhugamanna um fiskirækt. Á myndinni þar fyrir neðan heldur Hallmar Helgason á stærsta hæng' stöðvarinnar og vegur hann 25 pund. • Tvidálkamyndin efst á síð- unni til hægri er af þeim Braga Eiríkssyni og Kristiáni Bene- diktssyni að kreista aðra hrygnu, en maðurinn sem sést í horninu hægra megin er Kristj án Óskarsson, vélstjóri Fiskiðj- unnar i Húsavík. Þridálka mynd in bar fyrir neðan er af Jakobi Havstein að ræða við bræðuma Vigfús og Björn Jónssyni á Laxamýri, en það er Vigfús sem er vinstra megin á mynd- inni, en Biör” er til hægri. Þrí- þálkamyndin neöst á síðunni er at hængum i keri, en net er breitt yfir kerið til að koma í veg fyrir að fuglar ræni fisk- unum. Veiðin í Laxá í Þingeyjar- sýslu hefur verið með bezta móti í sumar, . — 1283 iaxar komu á land, þar af 928 á neðra svæðinu, en árið þar áöur veidd ust 469 laxar. Meðalþyngd iax- anna var 10.9 pund, en sumar- iö 1966 var hún 9.77 pund. Vfir leitt veiddist laxinn á dökkar flugur. Stærstá laxinn veiddi Björn Blöndal, rithöfundur. Var það 28 punda hrygna. Gizka menn á að ef hægt hefði veriö að kreista hana, heföi hún gefið af sér hrogn, sem hefðu verið allt að 50.000 króna viröi.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.