Vísir - 26.10.1967, Blaðsíða 4

Vísir - 26.10.1967, Blaðsíða 4
 Krýning, sem dregizt hefur í 26 ár Iranskeisari krýnir sig og drottningu sina á morgun. — 7 daga hátiðaböld þegnanna Auðmýktin, sem þegnamir sýna keisara sínum, þegar þeir ganga fyrir hann, gerir hann jafnan vandræðalegan og hérna reisir hann einn upp, sem ætlaði að votta honum hollustu sina með því að kyssa fætur hans. Keisarinn sezt undir stýri drátt- arvélar til þess að gefa bændum gott fordæmi, en kjaminn i stefnu hans I landbúnaöarmálum hefur einkum verið á sviði nýræktar. J sjö daga og sjö nætur munu hátíðahöld fbúa Irans standa eftir að drottnari þeirra, Mo- hammed Reza Shah Pahlavi, hefur hafið á loft kórónu af silfurbakka, sjálfur sett hana á höfuð sér og stigið í hið persneska páfuglshásæti, sem Shashanshah — konungur kon unganna - en það gerist í dag, 26. október. íranskeisari hefur ríkt i landi sinu í 26 ár, síðan brezkt og rússneskt hemámslið setti hann til valda 22 ára gamlan ungling, en hann hefur aldrei verið krýnd ur, svo hér er um aö ræða krýn- ingu, sem seinkað hefur meir, en nokkur dæmi eru um önnur í sögunni. Þennan dag sem jafn frámt er 49. afmælisdagur keis- arans verður drottning hans Far- ah Diba einnig krýnd en hún á hins vegar afmæli í 29. sinn í dag Verður það í fyrsta sinn í sögu Persíu síðan 641 fyrir fæðingu Krists sem kona er krýnd til rík- is þar. Keisarinn hefur sjálfur gefið þá skýringu á drættinum sem orðið hefur á krýningunni að: „þegar ég kom til ríkis 1941, stóð seinni heimsstyrjöldin yfir. Land mitt var á valdi erlendra herja, enskra, bandarískra rússneskra, en hvert þessara landa vildi hafa áhrif á landsmál okkar, jafnvel komast yfir hluta af landi okkæ\^ Hvernig gat ég þá latið'fara franv hátíð, sem tákna skyldi gléði alíf'a landsmanna? Maður finnur enga gleði eða stolt yfir því, aö ríkja í landi, sem er sundrað, fátækt og hersetið. En nú loksins finnst mér við hafa eitthvað til að sýna og eitthvað til að gleðjast yfir. Það er í rauninni ekki ég, sem verð krýndur, heldur sá áfangi, sem náðst hefur“. Sá áfangi, sem keisarinn talar um, eru þau bættu kjör, sem orð- ið hafa meðal hinna 75 millj. íbúa landsins, en þau eru að miklu leyti honum að þakka. Þessi fyrr- verandi glaumgosi, sem var þekktur úr skemmtanalífi heims- borganna, hefur revnzt dugandi stjórnandi, þann tíma sem hann hefur ríkt. Það er fyrst nú i 6000 ára sögu landsins, sem fóstr aði stjörnafræöina, þar sem stærð fræði var listgrein og skákin fund in upp, fyrst nú, að fjöldinn með al íbúanna lifir við mannsæm- andi kjör. Litið er á krýningarathöfnina og hátíðahöldin samfara henni, sem þjóðarhátíð. I Golestan-höll- inni, þar sem krýningin mun fara fram, verða viðstaddir um 5000 áhorfendur, en þjóðhöfðingj um annarra landa hefur ekki verið boðið að vera viðstaddir hátíðahöldin, heldur aðeins sendi- herrum og ambassadorum, sem staddir eru í landinu. „Við höfum ekki efni á því að bjóða tignum gestum," segir íranskeisari. Sjálf athöfnin verður með svip uðu sniði og krýning Elizabetar II, en litmynd, sem tekin var af hátíðahöldunum þá, hefur aftur og aftur veriö sýnd þeim embætt- ismönnum rikisins sem að hátiða höldunum standa. Skrautvagn hef ur verið smíðaður fyrir keisara- e\ ut f3 millj. kr., 8 hyftir gæðmgar flafa vqrið , keypt.ir, ásáim T' vögnum öðrum frá Búlgaríu, Sérstök kór- óna hefur verið gerð fyrir Farah Diba, dottningu, en hún mun klæðast dragt úr hvítu Sviss- silki, sem 22 saumakonur hjá Dior hafa unnið við síðustu 4 mánuði. Kóröna keisarans er greipt 3380 demöntum, 368 perl- um 2 safírum og 5 risastórum smarögöum. Krýning Farah Dibu á morgun táknar það, að hún mun taka við ríkinu og stjórna því, ef keisar- inn fellur frá, þar til hinn 7 ára gamli prins Reza hefur náð 20 ára aldri. Hún er þriðja kona keisarans, sem kvæntist fyrst 1938 Fawzia, prinsessu, systur Farúks, þáverandi Egyptalands- konungs. Með henni eignaðist hann dótturina Shanaz, en hann skildi við þessa fyrstu eiginkonu sína 1948 og er hún nú gift egypzkum lögreglumanni. 1951 kvæntist hann Soraya, prinsessu, en hið barnlausa hjónaband þeirra var leyst upp 1958. Soraya hefur ekki gifzt á ný. — Þegar Farah Diba var valin til þess að verða þriðja kona keisarans, lagði hún stund á nám í arkitekt ur í París, en hún giftist keisar- anum 1959, í desember. í október 1960 eignuðust þau rikisarfann, prins Reza, í marz 1963 prins- essu Farahnaz og í apríl 1966 eignuðust þau aftur dreng prins Ali. * Það kemur fyrir, að keisarahjónin bregði sér til Sviss á skíðl og hafa þá gjaman bömin með sér, eins og hér á myndinni. Athyglisvert bréf yjí síðustu áratugum hefur mörgum tugum eða iafnvel hundruðum milljóna af almanna fé verið varið til þess að reisa félagsheimili í sveitum, stund- um svo þétt, að varla er nema 10—20 mínútna akstur milli þeirra. Þetta stingur mjög í stúf við það, sem gert er fyrir það fólk. karla og konur, sem dvel- ur iangdvölum fjarri heimilum sxnum við sjósókn eöa fisk- vinnslu í landi, einkum á sildar- vertíð. — Þegar sjómennirnir koma að landi, stundum eftir svaðilfarir langt norður í íshafi, bíður þeirra að jafnaði ekki ann að en natan, vínverzlunin og sóðalegir veitingastaðir, og þeir sem ekki una við aö bæla flet- in um borð í landlegum, hafa það helzt til afþreyingar að fá sér leigubíi, birgja sig upp með brennivín og fara upp í sveit á skrall í einhverju félagsheimili þar. Það er varla tiltökumál, eins og allt er í haginn búið. Fáar þjóðir búa jafn hrak- smánarlega að sjómönnum sin- um í ntenningarlegu og andlegu tilliti sem Islendingar. Norð- menn, sem sízt eru taldir örari á fé en islendingar, hafa t. d. um langt skeiö haft sínar sjó- mannakirkjur og sjómannaheim- ili víös vegar, bæði í heimahöfn um og í öðrum Iöndum, og verja til þess miklu fé. Ég kom fyrir nokkrum árum á eitt slíkt á indælun staö í Bodö, utan við Osló, og dáðist að því, að þar virtist ekkert til sparað. Það má segja Vestmannaey- ingum til hróss, að þeir búa yfirleitt vel að vermönnum sín- um, og á Raufarhöfn hafa prests hjónin lagt á sig mikla fyrir- höfn til bess að halda uppi lít- annað eins, en Félag íslenzkra útvegsmanna og Félag íslenzkra botnvörpuskipaeigenda 20 þús. kr. hvort. Meðan íslcnzkir sjómenn halda út á svalan sæ og afla um 90% af þeim gjaldeyri, sem aðrir verja m. a. til dvalar á suð rænum baðströndum og kaupa mæti aflans, en norskir starfs- bræður 41%, svo að við búum ekki að öllu leyti hraksmánar- lega að sjómönnum okkar. — Enda eigum við að búa eins vel að þeirri stétt og þjóðfé- lagið framast megnar. Varðandi gjöf til sjómanna- kirkju í Grimsby, þá þótti mér illi sjómannastofu meö dálitl- um stuðningi frá Kirkjuráði þjóð kirkjunnar. Það átti m. a. að vera tilgangurinn með Kristni- sjóði, að halda uppi slíkri starf- semi þar og víðar, en frum- varpið um hann hefur enn ekki fengizt samþykkt á Alþingi. Þar hafa of fnargir asklokið fyrir sinn himin. Nýlega var vigð sjómanna- kirkja í Grimsbý og eiga ís- lenzkir sjómenn að eiga athvarf á heimili því, sem rekið verður i sambandi við hana. Biskup ís- lands tók þátt í þeirri athöfn og afhenti stofnun þessari 1000 sterlingspund eða 120 þúsund krónur frá íslendingum. Skipt- ist sú upphæð þannig, að borg- arstjórn Reykjavíkur lagði fram þriðjung, þióðkirkjan íslenzka á óhófsvörum, getur það varla talizt stórmannlegt að telja þessa upphæð eftir. En ef'til vill eru slíkar eftirtölur aðeins éinn liðurinn í þeirri ófrægingar- herferð, sem nokkrir aðilar halda uppi gegn hverju því, sem biskup islcnzku þjóðkirkj- unnar er á einhvern hátt riðinn við. Með þökk fyrir birtinguna. P. V. G. KoIka.“ Ég þakka þetta bréf, og tek undir það, að íslendingar búa fé lagslega illa að sjómönnum sín- um, sem þurfa að dvelia fjarri heimilum norðanlands og aust- an. Hins vegar verður að taka tillit til þéss begar talað er um aðbúnaö að sjómönnum, að ís- lenzkir síldarsjómenn hafa um 55% til skipta af brúttóverð- og öðrum ekki tímabært að gefa þúsund sterlingspunda gjöf, á sama tíma og opinber- lega er hvatt til að draga sam- ah seglin vegna þess, að ískyggi lega gangi á gjaldeyrisvara- sjóði okkar. Slikar gjafir stinga óneitanlega í stúf við þær yfir- lýsingar hins opinbera, að spam aður sé nauðsyn. Aö telja, aö slík gagnrýni eigi eitthvað skylt við ófrægingu gegn einhverjum sérstökum, er hugarburður, — enda er ekki neinn einn aðili, er stendur að gjöfinni til kirkj- unnar í Grimsby. Það er mis- ræmið 1 skoðunum og athöfnum aðila, sem við gagnrýnum, hver sem í hlut á. íslenzkir sjómenn sem koma í erlendar hafnir, t.d. Grimsby eru að'eigin dómi mik- ið betur settir, að'því er varðar að „drepa“ tima sinn á annan hátt en drekka, en sjómenn í höfnum hérlendis. Sjómanna- heimili þar, var því vart eins aðkallandi og slfkt heimili á Austfjörðum eða fyrir norðan. Ég hef því vart trú á því, að sjómenn muni eyða miklum tíma á sjómannaheimili eða kirkju í Grimsby. En hins vegar mundi slikt heimili einnig koma erlendum sjómönnum til góða i höfnum úti á landi, en þar hefur of oft komið fyrir, að erlendir sjómenn hafi gert sér það til dundurs að gera aðsúg að sak- lausu fólki. Það er þvi ekki óeðlilegt, að það mæti gagnrýni að gefa slik ar gjafir út úr landinu, alveg á sama hátt og í þessum dálkum hefur verið gagnrýnt óhófið í sambandi við ferðalög íslend- inga til sólarlanda, mun það hafa verið of algengt, að ein- staklingar hafi tekið lán til slíks óhófs, en margir slikir víxlar munu vera að falla ó- greiddir um þessar mundir. — Ferðalög eru sjálfsögö. en evðsl unni ber að stilla í hóf. Hins vegar er ég sammála þeirri athvglisverðu ábendingu að auka félagslega aðstöðu fyr- ir sjómenn úti um landið, og ég tel, að það væri verðugt verk- efni fyrir kennimenn í landinu að beita ,sér því máli til fram- gangs. ' 'í Þrándur í Götu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.