Vísir - 28.10.1967, Síða 3

Vísir - 28.10.1967, Síða 3
V í SIR . Laugardagur 28, OKtóber 1967. SILD kannski von um að hafa eitthvað upp i sig um jólin Tjað er komin síld. Þetta heyr- ist líka héma suður á möl- inni. Menn eru kannski ekki svo uppnæmir fyrir þvi nú orðiö. Hún er búin að haga sér svona í áratugi, bölvuð — einatt að koma og fara. Hún ofveiðist ým- ist eða veiðist ekki. Auk þess er ekkert fyrir hana að hafa. >*- Litlu bátamir, sem vom skip framtíðarinnar fyrir fimm ámm og veiddu síld á heims- markaðinn fyrir verðhmnið svo að gjaldeyrinn rak drjúgan á fjörur gjaldeyrisvarasjóðsins — þessi skip em nú til hinna mestu vandræða eigendum sín- um og bönkunum, sem er kann- ski eitt og hið sama. En þaö eru vissulega gleði- fréttir, þó ekki væri nema fyrir frystihúsakonumar, að þeir skuli vera famir að veiða síld hér fyrir sunnan. Það er þá kannski eitthvað kronp eftir handa þeim af þessum „íslenzka síldarstofni“ eftir alit saman. Og það er þá kannski hægt að kaupa í baksturinn eða kex að maula með sjónvarpinu um jól- in. >«. Þessi aðkenning að kreppu, sem nú er að ganga í þessu landi, leggst þungt á útgerðar- menn eins og allir vita. Og þeg- ar útgerðarmaðurinn er blankur verðum við hin það líka. >«. >» Það er þess vegna vonandi, að þeir fari nú að fiska eins og það er vonandi að þeir hverfi aftur að fiskinum í löndum páf- >«* Myndimar á síðunni tók ísak oná bryggju, þegar þeir voru að koma inn undan bræl- unni með dágóða slatta úr Jök- uldjúpinu, og inni á Kirkjusandi hjá „Júpiter og Marz“, þar sem ]>ær em að pakka síld oní út- lendinga, konurnar, og vinna sér inn aur upp i dýrtíðina — og til þess að hafa eitthvað upp í sig og krakkana um jólin. Þeir fundu dágóðar torfur í Jökuldjúpinu. Þó ekk> væri nema til þess að eiga eitthvað upp í sig um jólin. Það veitir ekki af að strita í dýrtíðinni. Ljósm. ísak.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.