Vísir - 28.10.1967, Blaðsíða 5

Vísir - 28.10.1967, Blaðsíða 5
V1SIR . Laugardagur 28. október 1967. ■202 RÉTTLÆTI GUÐS Róm, 3, 20 28. Tjaö er ekki létt að halda sið- ” bótarhátíð með þetta efni í huga. Að baki orðanna réttlæti Guðs felst allur hinn torráðni leyndardómur trúar vorrar, sem krefst mikillar ihugunar. Ég get aðeins drepið á nokkur íhugunar- efni hér. Réttlæti Guðs er yfirskrift, sem hæfir þessum kafla. Hér er talað um réttlætið, sem gildir hjá Guði. — Guð, sem einn er réttlátur réttlætir þann, sem hefur Jesú trú.' Vér réttlætumst án verö- skuldunar af náð hans fyrir endur lausnina. Þetta voru logamir sem tendruðu bál siðbótarinnar. Lúther segir sjálfur frá því, hvemig hugsunin um réttlæti Guðs hafði hvílt á sér og kvalið sig lengi, en síðar orðið sér til mikillar blessunar. „Ég hef hatað þessi orð, rétt- læti Guðs,“ segir hann, „því þá er maður sifellt minntur á Guð, sem launar þeim góðu en refsar þeim illu. En skyndilega lærðist mér að skilja þetta & annan veg. Hjá Guði er einnig frelsandi, læknandi réttlæti. Þegar það laukst upp fyrir mér, varð ég sem nýr maður eins og ég hefði kom- izt inn um opin hlið himnaríkis." Lúther í Worms Og einn mót öllum stóð hann £ ægilegri höll, og einn mót öllum vóð hann á andans sigurvöll. Og öld af ótta starði, þeim ægði dirfskan sú er ljós og líf hann varði með lifandi krafti og trú. Hann boðaði nýjan blóma, hann birti frelsi og náð og Drottins orð úr dróma hann dró fyrir mannkyn þjáð. Og þá var líf í landi og ljósið skein svo bjart er Herrans helgur andi við hjörtum þjóða snart. (Matthías Jochumsson). Lúther er löngu liðinn, en á- tökin um réttlætið eru verkefni vor mannanna enn £ dag. Þegar vel er að gætt, er réttlætið ærið oft sá logi, sem tendraði bálin, sem heitast brenna. Þetta á viö um allar byltingarnar, félagsleg- ar, stjómmálalegar og andlegar. Réttlætið er oss mönnunum jafn nauðsynlegt og loftið og ljósið, sem við lifum og hrærumst í. Sá sem verður fyrir ranglæti er þess gjarnan langminnugur. 1 samskiptum þjóðanna skiptir rétt- lætið miklu máli. Hér nægir aö minna á deilur stórveldanna og ríkjabandalaganna. Mér verður einnig hugsað til jafnréttisbaráttu kynþáttanna. Vígorð eins og frelsi, jafnrétti og bræðralag eiga einnig rætur sínar að rekja til réttlætisins. Mikið er gert til að standa vörð um réttlætið. Þar má nefna dómstólana og lög- gæzluna. Gildi réttlætisins finnst oft bezt, þegar það er fótum troðið. Hvílíkt áfall var það ekki fyrir þjóð vora, er þaö gerðist fyrir nokkrum árum með svo ó- hugnanlegum hætti! Við erum ekki búin að jafna okkur eftir það ennþá. Þetta kemur einnig fram í fjölda málaferla sem koma fyrir dómstólana dag hvern. Dómssalimir eru fjölsóttir líkast því að líf vort sé svipað réttar- höldum með sækjanda, vitnum — og sakborningi. Nútíma blaða- maður hefur sagt: „Mér virðist allt líf mitt vera réttarhöld — það er mér einungis hulið hver situr £ dómarasætinu" Texti þessarar hugleiðingar hefur svar viö þvi. Guð, sem einn er rétt- Iátur situr £ dómarasætinu! Og ein mitt hjá honum skiptir réttlætiö miklu máli. „Ef Guð væri til, þá gæti hann ekki leyft svona mikið óréttlæti í heiminum, þá hefði ég fengið að lifa hamingjusömu lífi, þá hefði þessi eöa hin ógæfan ekki komið yfir mig!“ Þannig hugsa margir og bíða skipbrot í Guðs- trú sinni einmitt vegna ráðgát- unnar um réttlæti Guðs. Þegar svo er komið er það sannkölluð lausn til lífs, þegar við ásamt Lúther komumst að raun um hið nýja réttlæti Guös, þegar ég fæ að heyra: „En nú hefur réttlæti Guðs, sem vitnað er um af lögmálinu og spámönn unum, opinberast án lögmáls, það er, réttlæti Guðs fyrir trú á Jes- úm Krist öllum þeim til handa, sem trúa“. Þannig er þá réttlæti Guðs hvað sem vorum heilabrot- um lfður! Ekki einungis ósveigjan leg meginregla, sem sffellt er brotin, ekki heldur sveigjanlegt vald, sem lagar sig að almennings álitinu, ekki einungis miskunnar laust lögmál, sem molar niður hina máttvana, heldur: „Ef yð- ur fýsir aö öðlast þekkingu á réttlæti Guðs“, segir Páll post- uli -— „þá verðið þér að virða fyrir yöur Drottin Jesúm Krist sjálfan“. í honum birtist hið nýja réttlæti Guðs. Þetta var hið mikla gleðiefni siðbótarmannsins, Lúth- ers! Um það hefur hann sagt: „Þetta er ekki ný þekking, held ur birtist Guð mér sífellt £ allri heilagri ritningu, i lögmálinu og spámönnunum og allt til enda sem sá Guð, sem lætur sér annt um að vér öðlumst hiö nýja rétt læti í Jesú Kristi". Ég reyni að gera mér grein fyrir því sem þá gerist með því að rifja upp tvo gagnstæöa dóma, sem kveðnir eru upp yfir mönn unum i Biblíunni. Fyrri dómurinn: „Bölvaður!" hljóðar svo. „Og skalt þú (Kain) nú era bölvaður og burt rekinn af akurlendinu". Þetta stranga réttlæti sem endurgjaldslögmáliö byggist á gildir enn og verður að beita því áfram hversu harka legt og ófullkomiö sem þaö kann oft að virðast. Þaö er ekki hægt að vera án þess, jafnvel þótt þaö leiði ekki ávallt til tilætlaðrar jetrunar heldur á stunduru til aukinnar bölvunar. Drottinn Jesús Kristur kemur með nýtt réttlæti. Þaö er það réttlæti sem lýsir út úr orðunum „Sælir eru“. Þannig talar hann t.d. í sæluboðoröunum í upphafi Fjallræðunnar. Þetta er andstætt viö þá bölvun sem hvíl- ir yfir mönnunum og endurómar sífellt í sögu mannkynsins. Drott inn Jesús segir: sælir eru! og gef- ur nýtt, frelsandi réttlæti, sem bætir allt, einmitt hjá þeim mönn um, sem hafa orðiö illa undir hjólum hins jaröneska réttlætis. „Sælir eru fátækir í anda — sæl- ir eru syrgjendur — sælir eru þeir, sem ofsóttir verða fyrir rétt lætis sakir — sælir eru þeir, sem Prestaskóllnn f Pullach. hungrar og þyrstir eftir réttlæt- inu“. Við erum öll tekin með inn i þetta nýja, frelsandi re>tlæti í Drottni Jesú Kristi. Larka réttlætisins er þó eklti horfin. Svo strangt er réttlæti Guðs að Jesús varð að líða og deyja á krossi vegna ranglætis neimsins. En einmitt .á krossinum kemur fagnaðarerindið um hið nýja frels andi réttlæti Guðs vel fram. Jesús boðar iðrandi ræningjanum vist meö sér. Þannig er frelsandi réttlæti Guðs. Sagan um glataöa soninn á einnig aö kenna oss að þekkja Guð föður £ frelsandi réttlæti sínu. Allt starf kirkjunnar á aö útbreiða frelsandi réttlæti Guðs. Þetta á ekki sízt við um auðs- þjónustuna. Þegar vér biðjum: Guð sé oss synd'ugum náðugur! — og heyrum: Almáttugur Guð hefur miskunnað oss! finnum vér hvernig frelsandi réttlæti Guðs beinist að oss. Og þegar Drott- inn Jesús Kristur tekur aö sér ungbarr. i heilagri skim, í>.íí er það umvafið frelsandi réttlæti Guðs, án þess að hafa getað til þess unnið. Og þegar oss er boð- ið til heilagrar kvöldmáltíðar með orðunum „Fyrir yður gefinn og úthellt til fyrirgefningar synd- anna“, þá, jr sífellt á ný verið að bjóða fram þetta frelsandi réttlæti Guðs handa þeim, sem þrá það. - Framhald £ næsta blaði. Marteinn Lúther. □ Um þessar mundir er þess víöa minnzt, aö 450 ár eru liðin frá upphafi siöbótar Marteins Lúthers. Þessi trúarlegu og kirkju legu umbrot áttu upptök sin í þýzku kirkjunni og breiddust ut þaöan og bárust hingaö meö guðfræðingum, sem þar stund- uðu nám. Sambandiö viö þýzka kristni hefur löngum veriö frem- ur stopult. Undanfarin þrjú ár hefur evangelisk-lútherska kirkj- an í Þýzkalandi árlega boðiö ein- um íslenzkum presti til náms- dvalar á prestaskóla sínum í Pullach viö Miinchen í Bæjara- landi (Bayern). Fyrsta áriö naut sr. Þórir Stephensen á Sauöárkróki þessa boðs, síöan sr. Sváfnir Svein- bjarnarson á Breiðabólstað, og nú siöast sr. Ingólfur Guð- mundsson. Hann hefur islenzkað þessa prédikun eftir helzta leiö- toga evangeliskra manna í Þýzka- landi, Dr. Hermann Dietzfel- binger. Hann er biskup lúthersku kirkjunnar i Bæjaralandi og for- seti ráös evangelisku kirknanna i Þýzkalandi (bæði austur og vest- ur). Dietzfelbinger biskup kom hingað til lands haustiö 1965, á fund framkvæmdanefndar Lúth- erska heimssambandsins og pré- dikaöi hann þá i Neskirkju. Meö- fylgjandi mynd er af prestaskól- anum i Pullach. Þá vandast málið Á bemskuárum sínum dvaldi Björgúlfur Ólafsson á sumrin á Miöhúsum £ Breiöuvik. Úr vistinni bar er eftirfarandi frásögn: Tíminn er peningar hafa búhyggnir menn sagt. Það merkir, aö hagnaður fylgir þvi aö nota tímann vel. — En eins og kunn- ugt er hafa margir nógan tíma, en eignast aldrei peninga, sem þeir þó girnast öllu framar. í Miöhúsum skorti fremur tíma en peninga. Allir voru sístarfandi og gerði ekki betur en tíminn hrykki til, því mörg vom handtökin, sem taka burfti við bú- skapinn. Alla sex daga vikunnar voru allir önnum kafnir myrkr- anna milli, en fóm sér aldrei hart, tóku aldrei skorpur og vom aldrei þreyttir, því síður uppgefnir, aö mér virtist. Létu iðnina vinna það. Aldrei var unniö á sunnudögum. Þá fóm allir í spari- fötin og geröu sér dagamun í mataræði. Ekki var lesinn hús- lestur og var þó a. m. k. einn maður bænabókarfær á bænum. Eitthvað yar þvegið sér á sunnudögum, um hendur og andlit að minnsta kosti... Peninga, i venjulegum skilningi, hugsaði enginn um. Búiö fæddi fólkið og klæddi. Hvað hafði þaö að gera við peninga? Ekkert skorti. Engar áhyggjur út af afkomunni. Menn undu sér eftir þeirri góðu reglu: Nóg hefur sá sér nægja lætur. Allir j ánægðir og gimtust ekkert fram yfir það, sem þeir höfðu, af þvi aö það var þeim nóg. Það skyldi þá aldrei vera svo, aö þeir einir hafa nóga penlnga, sem ekkert hafa fram yfir nauðsynj- amar? — En hvað em svo nauðsynjamar? Þá vandast málið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.