Vísir - 03.11.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 03.11.1967, Blaðsíða 1
57. árg. - Föstudagur 3. nóvember 1967. — 253. tbl. / . * * * • .w'k Réttur lífeyrissjóðsfélaga til lána úr byggingasjóði verði ekki skertur Þátttaka í lífeyrissjóöi ætti ekki að hafa nein áhrif á jafna mögu- leika lífeyrissjóösfélaga til lána úr hinu almenna veölánakerfi — sagði Guðmundur H. Garöarsson í jómfrúræöu sinni í neðri deild alþingis í gær, þegar hann flutti framsögu fyrlr frumvarpi sínu um óskertan rétt lífeyrissjóðsfélaga til lána úr byggingarsjóði. — Það er um að ræða algert viðbótarátak af hálfu þeirra, sem eru í lífeyrissjóðum — viðbótar- álag, eða hluta af kaupi, sem við- komandi stéttarfélag hefur samiö um — jafnframt því, sem lífeyris- Uppbyggilegar umræður i borgarstjórn um vandamál æskulýðsins: Reykjavík gætí senn staðið frmmi fyrir vandamálum stórborganna □ Reykjavík getur brátt staðið frammi fyrir þeim stórkostlegu unglingavandamálum, sem við þekkjum frá öðrum borgum, éf ekki verða fundnar nýjar leiðir í æskulýðsstarfsemi í borg- inni, sagði Styrmir Gunnarsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, í ræðu, sem hann flutti á borgarstjórnarfundi í gærkvöldi, i tilefni þess, að skýrsla Æskulýðsráðs fyrir undanfarin þrjú ár var lögð fyrir borgarstjórnina. - Hætta er á stöðnun í starfsem- inni, ef ekki verða fundnar nýjar leiðir, en Æskulýðsráð gæti bætt þarna nokkuð úr. — Æskulýðsráð skortir hins vegar upplýsingar og gögn um alla æskulýðsstarfsemi í borginni á vegum einstakra félagssamtaka, til að hægt sé að marka æskulýðsstarfsemina fyr- ir framtíðina á þeim krossgötum, sem Æskulýðsráð er nú statt á. Hagfræðideild Reykjavíkurborgar hefur nú verið falið að safna upplýsingum og gögnum um æskulýðsstarfsemina í borginni og mun framtíðarstarfið að einhverju leyti á þeim byggt. Miklar umræöur urðu um skýrslu Æskulýðsráðs og um æsku lýðsstarfsemi í borginni í bæjar- stjórninni, að lokinni ræðu Styrm- is. Alls voru 14 ræður fluttar um málið, en umræðurnar stóðu nokk uð á fjórðu klukkustund. Meira en helmingur borgarstjórnarfuiltrúa tók til máls. Umræður voru með nokkuð sérkennilegu sniði miðað við umræður almennt í borgar- stjórninni, þar sem meiri samstarfs vilji virðist ríkja um æskulýðsmál in, en filest þau mál, sem rædd eru í borgarstjórn. Var því lítið um kappræður, en borgarstjórnar- fulltrúar skiptust á gagnlegum upp Iýsingum á vingjarnlegan hátt. — Voru allir sammála um nauðsyn þess að efla æskulýðsstarfsemi borgarinnar sem mest og flestir voru sammála um, að nauðsynlegt væri að dreifa æskulýðsstarfssem inni um borgina og að æskulýðs- heimilum yrði komið upp í öllum borgarhlutum. Nokkrir borgarfuil trúanna töldu að æskulýðsheimilin ættu að vera 4, en aðrir vildu að þau yrðu 6 — 8. — Flestir voru sammála um, að Æskulýðsráð hefði unnið þarft verk á undanfömum árum, en allir töldu nauðsynlegt að efla þessa starfsemi. — Þá virt- ust flestir vera sammála um, að ekki væri óeðlilegt að ríki og borg hefðu samvinnu um æskulýðs- starfsemina.því eins og einn borgar fulltrúinn orðaði það, þá yrði slæmt uppeldi unglinganna dýrt fvrir rikið. — í því sambandi var rætt um frumvarp það, sem nú liggur fyrir alþingi og töldu full- trúarnir mikilvægt að augu for- ráðamanna væru nú betur að opn- ast fyrir þessum málum. Borga#- fulltrúa Framsóknarflokksins þótti þó frumvarpið „heldyr þunnt í roðinu" Rætt var um ýmsa æskulýös- starfsemi í borginni. Það kom m. a. fram að rekstur Saltvíkur í sum- ar tókst með ágætum, en tillög- ur liggja nú fyrir um ýmsar endur- bætur, þannig að hægt verði að reka þar reglubundna útivistar- starfsemi. — Þá kom fram aö fyrir hugað er að gera tilraunir meö dansstað fyrir unglinga undir 21 árs aldri í anddyri íþróttahallar- innar i Laugardag, en einnig hafa komið fram hugmyndir um að nota íþróttasalinn i því skyni. Hafa for- ráðamenn Iþróttahallarinnar tekið mjög vel undir það mál, en til þess að af því geti orðið þarf að útvega efni til að forða gólfi salsins frá skemmdum, — I fyrra- vetur var leitað til skólastjóra gagnfræðaskóla borgarinnar meö málaleitan um að skólarnir væru opnir eitt til tvö kvöld f viku, þannig að ,,opið hús“ væri í hverju skólahverfi borgarinnar. — Fæstir skólastjóranna treystu sér til að gera þetta, en nú er fyrirhugað að biðja þá skólastjóra, sem tóku vel undir málaleitunina í fyrra, að hafa „opin hús“ í skólunum til reynslu. — Ef vel tekst til, er von til þess að aðrir skólar komi á eftir. — Á fundinum var nokkuð rætt um fyrirhugað æskulýðsheim ili við Tjarnargötu, en fram kom ,að viðhorfin til þess höfðu nokkuð breytzt síöan ákvöröun var tekin um byggingu þess fvrir tveimur árum. Lögreglufélag Reykjavíkur felldi Félagsfundur Lögréglufélags Rcykjavíkur felldi í gærkvöldi kjarasamning þann, sem samninga- nefnd félagsins hafði gert við borgina og var samþykktur á borgarstjómarfundi gærkvöldi meö samhljóða atkvæðum. Félags- fundurinn samþykkti með 48 at- kvæðum gegn 4 ályktun þess efnis, að kjarabótin væri ekki viðhlít- andi. ' Kristján Sigurðsson, rannsóknar lögreglumaður, sem er formaður Lögreglufélagsins, sagði í viðtali við Vísi í morgun, aö óvíst væri um framhald þessa máls. — Tvennt kæmi til greina. Annars vegar að samningaviðræður væru teknar upp aftur við borgaryfir- völdin, en hins vegar yrði málinu vísað til kjaradóms. Borgarstjórn Reykjavíkur stað- festi á fundi sínum í gærkvöldi fyrir sitt leyti samkomulag það um breytingar á gildandi kjara- samningum, sem undirritað var s.l. þrjðjudag milli launamálanefndar Reykjavíkurborgar annars vegar og samninganefndar Starfsmanna- félags Reykjavíkur, Hjúkrunarfé- lags íslands og Lögreglufélags Reykjavíkur hins vegar. kjarasamninginn sjóðsfélagar greiða til jafns við aöra skatta og skyldur til opin- berra, sameiginlegra sjóða, eins og t.d. byggingasjóðs ríkisins. Guðmundur gat þess í upphafi ræðu sinnar, að frumvarpið flytti hann fyrir. beiðni Landsambands lífeyrissjóða, en í frumvarpinu er gert ráð fyrir, að lán til sjóösfé- laga úr lífeyrissjóðum, sem stofn- aðir eru meö Iögum, eða viður- kenndir eru af fjármálaráðuneyt- inu, skulu þó í engu skeröa rétt hlutaðeigandi til lána úr bygg- ingasjóði ríkisins. Framh. á bls. 10. „Bráðum koma bSessuð iélin ! • Fyrsta jólaútstilling vetrarinse Jer nú komin í glugga minja-J • gripaverzlunar Geirs H. Zoéga. • JVar glugginn skreyttur um o •helgina, en vani er I verzlun-J • inni að setia jólaútstillingu í° Jgluggann siðustu helgi í október* • eða fyrstu helgi í nóvember. Er • Jfólk þegar farið að hugsa fyrire Jjólagjöfum sem senda þarf ut-J • an, enda þarf að senda pakka,® Jsem eiga að fara t.d. til Ástra-« Jlíu, Suður-Ameríku og annaraj • fjarlægra staða ekki síðar en® <j,Jum miðjan mánuðinn. Eðlilegt að læknar veiti starfsbræðr um sinum eitthvert aðhald — Segir Árni Bj'órnsson form. Læknafélags Reykjavikur, en læknar vilja láta setja ákveðnar lágmarkskrófur til sjúkrahúsa Stjórn Læknafélags R- víkur hefur nú í undir- búningi viðræður við heilbrigðisyfirvöld, þar sem lagt verður til að settar verði ákveðnar lágmarkskröfur til sjúkrahúsa og eftirlit verði með því hvort þess þessum kröfum sé fram- fylgt. Munu læknamir leggja til, að lágmarks- kröfurnar, eða lámarks- staðallinn, eins og svo er nefnt, verði a. m. k. látinn ná til deilda- skiptra sjúkrahúsa. Lágmarksstaðallinn, ef af hon um verður, mun m. a. verða til þess, að aukið eftirlit verður með störfum lækna, en nokkuð hefur þótt skorta á það, að lækn um sé veitt nægjanlegt aöhald f störfum. — Hefur m. a. skort aðhald hér á landi af hálfu al- mennings, en hér mun vera ó- þekkt með öllu að sjúklingar hafi farið í mál við lækna fyrir opinberum dómstólum vegna vanrækslu í störfum þeirra. Ámi Bjömsson, formaöur Læknafélags Reykjavíkur, sagði í viðtali við Vísi, að .hann teldi eðlilegt að læknar veittu starfs- bræðrum sínum eitthvert að- hald, eins og ætti raunar að vera hjá fleiri stéttum. — Um aðdraganda þess, að læknar leggja til að ákveöinn lágmarks- staðall verði tekinn í gildi varð- andi rekstur sjúkrahúsa sagði Ámi, að Læknafélagið hefði skipað nefnd til að kanna rekst- ur sjúkrahúsanna fyrir tveimur ámm. — Nefndin hefur nú skil- að áliti sínu, en í þessu áliti væru tillögur um sjúkrahúsa- staðal. — Samþykkti félagsfund ur Læknafélags Reykjavíkur 11. október sl. að tillögurnar yrðu teknar til viðræöu stjómar L. R. við heilbrigðisyfirvöld. Tillögurnar fela m. a. í sér, að ákveðnar lágmarkskröfur verði gerðar til læknaliðs spítal- anna, til aðbúnaðar lækna og sjúklingá og útbúnað spítalanna almennt, t. d. með tilliti til tækjakosts.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.