Vísir


Vísir - 03.11.1967, Qupperneq 3

Vísir - 03.11.1967, Qupperneq 3
- R ~gur 3,-------mber 1967. STARF I ÞAGU HEYRNARDAUFRA Þama er bollalagt og þrefað um vcrð: Anna Norðf jörð, Guðlaug Jóhannsdóttir. Sigrfður Jónsdóttir, Guðrún Arnadóttir JLTér í borg eru starfandi mörg félög, en tilgangur og mark- mið þessara félaga er harla mis- munandi. Sum em skemmti- klúbbar, sem þjóna þeim til- gangi einum að hjálpa lifs- þreyttu tuttugustualdar-fólki að drepa tímann, önnur sameina fræðslu og skemmtan, og enn önnur hafa helgaö sig ýmsum líknar- og mannúðarstörfum og oft leyst furðuviðamikil vanda- mál. Foreldra- og styrktarfélag heymardaufra er eitt þeirra fé- laga, sem hafa látið margt gott af sér leiöa. Á imdangengnu ári hefur það rekið víðtækt og ár- angursríkt fræðslustarf, sem var og er mjög mikilvægt. Hér er ekki vettvangur til að birta í heild starfsskýrslu fé- Iagsins, en aðalmarkmig þess er að auka skllning og fræöslu um vandamál heymardaufra barna. Næstkomandi sunnudag kl. 2 munu konur félagsmanna opna basar að Hallveigarstöðum. Þar verður til sölu geysimargt eigu- legra muna á vægu verði. Kaffi- veitingar verða einnig á staðn- um, og félagskonur hafa bakað býsn af lostætu kaffibrauði. Full ástæða er til að hvetja fólk til að mæta á basarinn og gera þar góð kaup um leiö og það styrkir verðugt málefni. Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra hefur mörg þarf- leg verkefni á prjónunum. Það leitast við að auka bóka- og tækjakost Heymleysingjaskól- ans, og félagið hefur hafið und- irbúning að samningu orðasafns fyrir heymardaufa, sem er mjög aðkallandi verk, en jafnframt kostnaðarsamt. Fleiri verkefni bíða úrlausnar, en félagið er ungt, þó að það hafi afkastað ótrúlega miklu á stuttum ferli sínum. 1 Myndsjá í dag sjást kon- urnar vinna að undirbúningi undir basarinn og sjá má, að á meðal þeirra skortir hvorki dugnaö né áhuga. Eins og íyrr er sagt, verður basarinn opnaður klukkan tvö næstkomandi sunnudag að Hall- veigarstöðum. Konumar munu sjá um, að það verði nóg heitt á könnunni a. m. k. framundir kvöldið. Konurnar gáfu sér með naumindum tíma til að fá sér tíu dropa. Magnúsdóttir og Guðbjörg Sveinsdóttir. Guðlaug Jóhannsdóttir, Sigurbjörg Unnið er að verðlagningu: Guðbjörg Sveinsdóttir, Ásta Jónsdóttir, Sigurbjörg Magnúsdóttir, Hjördís Davíðsdóttir og Solveig Blöndal. Ljósm. ÍSAK. \

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.