Vísir - 03.11.1967, Síða 13
VISI R. Föstudagur 3. nóvember 1967.
13
FösfydisisgreRn —
Framhalú !t nti. 'y
rýna í þá þjóðfélagslegu bylt-
inuu, sem oröiö hefur í landinu.
kúgunarþjöðfélag þaö sem áður
ríkti í landinu var auðvitað
orðið með öllu óviðunandi og
því má segja, að kommúnist-
amir hafi unnið nauðsynlegt
verk að hreinsa það út. Það var
sannarlega orðin söguleg nauð-
syn að gera það og þetta ó-
fremdarástand olli því i raun-
inni, hve mikil spenna hafði
myndazt í þjóðfélaginu og
hvað bylting kommúnista varð
blóöug. Þannig er það jafnvel
vafasamt að saka sósíalismann
um allt það blóðbað, sem varð
undir ráðstjórn. Þaö stafaði
miklu frekar, af þeirri pólitísku
spennu, sem myndazt hafði í
rússneska þjóðfélaginu.
Það var megin baráttumál
sósíalismans að koma á frelsi
og jafnræði þegnanna. Þegar
við spyrjum hverju sósíalism-
anúm hafi orðið ágengt í Rúss-
landi í þjóðfélagsmálum, hljót-
um við að beina sjónum okkar
að þessari hlið málsins. En sé
það mælikvarðinn, þá verður
því miður ekki séð, að sósíal-
isminn sé enn neitt kominn
nálægt markinu í Rússlandi.
Tjað er staöreynd, sem varla
veröur í móti mælt, að
meira ójafnræði ríki enn meðal
þegnanna í Rússlandi en í vest-
rænum löndum. Þetta kemur
strax í ljós í skólakerfi lands-
ins. Eins og fyrr segir hefur
sá árangur náðst, að allur
þorri þjóðarinnar er orðinn læs
og skrifandi. Þau lög eru og i
gildi þar, að allir skuii hafa
jafnan rétt og aöstöðu til náms
og gildir þetta um lægri alþýðu
menntun, en þegar komiö er
upp í æöri skóla verður þar
mjög vart stéttagreiningar.
Börnum auðugra og áhrifamik-
illa foreldra er sköpuð marg-
háttuð sérstaða, þegar komið
er upp í sérskólana, sem eru
undirstaöa embætta og valda í
þjóðfélaginu.
í minningum sínum gefur
Svetlana Stalin nokkra innsýn
í þetta, þar sem nún lýsir lífi
valdastéttarinnar og rekur til
dæmis ýtarlega, hversu hömlu-
lausu óhófslífi sonur Stalins
gat lifað, meðan eymd og fá-
tækt ríkti meðal alþýðunnar í
landinu.
I
þessi tilhneiging til myndun-
ar valdamikillar hástéttar
virðist nú jafnvel fara vaxandi.
Það er til dæmis staöreynd, að
Iaun háskólakennara í Sovét-
ríkjunum eru allt að 10 sinnum
hærri en laun barnaskólakenn-
ara. Og í landi ríkisrekstrar og
ríkiseignar kemur þessi munur
ekki aðeins fram í föstum laun-
um, heldur í ívilnunum. Stjðm-
endur verksmiðja og opinberra
fyrirtækja hafa til afnota end-
urgjaldslaust glæsiíbúðir, sum-
arbústaði suður við Svartahaf
og bifreiðir. Húsbúnaður þeirra
og húshald er oft kostað af
fyrirtækjunum. — Þannig er
raunveruleg spilling útbreidd
og viöurkennd um allt landið.
Á dögum keisaranna voru
við lýöi í Rússlandi átthaga-
fjötrar, sem breyttu bænda-
lýðnum í þrælalýö. Auðvitað
voru slíkir kúgunarfjötrar af-
numdir með sósíalistabylting-
unni. En nú þö hálf öld sé liðin,
þá má samt segja að slíkir
átthagafjötrar séu enn viö lýði
í reyndinni. Strangar reglur
eru í gildi, sem banna fólki úr
sveitinni að flytjast inn til
borganna. Þetta er skýrt með
því. að húsnæðisvandræðin séu
svo mikil, að ekki megi auka
aðstreymið, en þaö verkar með
sama hætti og átthagafjötrarnir
áður. Alveg eins eru í reyndinni
hömlur á því, að fólk megi
flytjast frá Síberíu til hins
eiginlega gamla Rússlands og
fleira í þessum stfl. Enn halda
yfirvöldin áfram að hafa af-
skipti af persónulegu lífi
manna, mönnum er skipað nið-
ur á starfsstaði, hvort sem þeir
vilja eöa ekki vilja og allt að
40% þjóöarinnar er bundin
átthagafjötrum viö samyrkju-
búin, við hin ömurlegustu kjör,
þar sem enga aðra atvinnu er
hægt að finna fyrir þetta fólk.
Margt fleira mætti benda á,
svo sem ófrelsi skálda og lista-
manna, takmarkanir á ferðum
til annarra landa, vopnuð leit
að flöttafólki í hverju einasta
erlendu skipi, sem kemur til
hafnar í Rússlandi.
l?n fyrst og fremst þetta, —
að líf alþýðunnar í Rúss-
HBPPDBBIII SIBS
Dregið á mánudag
Opið tif kl. 22 í kvöld
EHÐIIRnVJUn IVKUR
R HHUECI DRnnnRDRGSl
landi er enn í dag mjög þung-
bært og miklu erfiðara en
þekkist á Vesturlöndum. Grár
hversdagsleikinn, fátækt, skort-
ur á heimilistækjum, ónýtar og
bilaðar vélar, íbúðarhús í niö-
umíðslu, ánægjuleysi og ótií.
Þetta eru allt einkenni hins
sósíalíska þjóðfélags á hálfrar
aldar afmælinu og bera þess
vott, að tilraunin hafi því mið-
ur mistekizt, hugsjónimar
hrunið. Eða var þáð kannski
aldrei neinn sósíalismi í Rúss-
landi?
Þorsteinn Thorarensen.
VERKTAKAR - VINNUVÉLALE1GAf
Loilpressur - Skurftgröíur j
Kranar
Tökum að okkur alls konar
framkvœmdir
bœði í tíma-og ókvœðfstflnnu
Mikil reynsla í sprengingum
ATVINNA
HÚSASMIÐIR — ATHUGIÐ
Ungur, reglusamur piltur óskar eftir að komast í húsa-
smíðanám. Uppl. í síma 30113.
STÚLKUR — AUKAVINNA
Vantar nokkrar stúlkur til léttra og hreinlegra starfa ó-
, ákveðinn tíma. Mega vinna á kvöldin og um helgar eftir
ástæðum. Nafn, heimilisfang, aldur, sími og vinnustaður
sendist Vísi fyrir föstudagskvöld, merkt: „Aukavinna —
500“.
INNRÉTTINGAR
Smíða fataskápa og eldhúsinnréttingar. Vinsaml. leitiö
upplýsinga í síma 81777.
HÚSAVIÐGERÐIR
Getum bætt við okkur innan- og utanhússviðgerðum.
Þéttum sprungur og setjum í gler, jámklæöum þök, ber-
um vatnsþétt efni á gólf og svalir. Allt unnið af mönn-
um með margra ára reynslu. Uppl. í símum 21262—20738.
PÍPULAGNIR
Nýlagnir, hitaskipting í gömlum húsum, breytingar. Við-
gerðir, hitaveitutengingar. Sími 17041.
AUKAVINNA
Viljum ráða mann í aukavinnu. Vinnutími kl. 5—8 e. h.
Einnig konu til aðstoðar á sama tíma. Bakarí H. Bridde,
Háaleitisbraut 58—60.
ÖNNUMST VIÐGERÐIR
og sprautun á reiðhjólum, barnavögnum, hjálparmótor-
hjólum og fleiru. Leiknir sf. Sími 35512.
Utihurðir
,Gerum gamlar harðviðarhurðir sem nýjar. Athugið að
láta skafa og bera á huröirnar fyrir veturinn. — Endur-
nýjum allar viöarklæöningar, utan húss. Einnig í sumar-
bústöðum. Sími 15200, eftir kl. 7 á kvöldin.
ATVINNA
Ungur, reglusamur maður óskar eftir að komast að sem
bifreiöastjóri hjá traustu fyrirtæki. Uppl. í síma 52467
eftir kl. 7.
NÝSMÍÐI
Smlða eldhúsinnréttingar og svefnherbergisskápa, bæði í
nýjar og gamlar íbúðir, hvort heldur er í tímavinnu eða
verkið tekið fyrir ákveðið verð. Stuttur afgreiðslufrestur,
góðir greiðsluskilmálar. Uppl. I símum 24613 og 38734.
TRÉVERK — MÚRVERK — VIÐGERÐIR
Getum bætt við okkur ýmsum verkum upp á veturinn.
Útvegum allt efni sjálfir, ef með þarf. Tökum trygg
skuldabréf að hálfu upp í kostnað og vinnu. Sími 40258.
ATVINNA
Ungur, reglusamur maður, með kunnáttu í bókfærslu,
ensku og döiisku, óskar eftir vinnu. Gerið svo vel að
hringja í síma 33942.
BIFREIÐAVIÐGERÐIR
BÍLARAFMAGN OG
MÓTORSTILLINGAR
'/iðgerðir, stillingar ný og fullkomin mælitæki Aherzia
lögð á fljóta og góða pjónustu — Rafvélaverkstæði S
Melsted, Síðumúla 19. slmi 82120.
ÖKUMENN
Gerum við allar tegundir bifreiöa, almennar viðgerðir,
réttingar. Sérgrein hemlaviðgerðir. — Fagmenn I hverju
starfi. — Hemlaviðgerðir hf., Súöarvo^i 14. Slmi 30135.
Bifreiðaviðgerðir
Ryðbæting, réttingai, nýsmíði sprautun, plastviðgerðb
og aðrar smærri viðgerðir. — Jón J. Jakobsson, Gelgju-
tanga. Simi 31040.
k
HVAÐ SEGIRÐU — MOSKVITCH?
Já, auðvitað, hann fer allt, sé hann I fullkomnu lagí. —
Komið þvl og látið mig annast viðgerðina. Uppl. í síma
52145.
BODDÝVIÐGERÐIR — RÉTTINGAR
Viö önnumst einnig allar aðrar stærri og smærri viögeröir.
— Bifreiðaverkstæði Vagns Gunnarssonar, Síðumúla 13.
Sími 37260.
j BILAVIÐGERÐIR
Geri við grindur I bílum. Vélsmiðja Siguröar V. Gunnars-
sonar, Hrísateig 5. Sími 34816 (heima).
HÚSNÆÐI
HERBERGI — EINHLEYP
Einhleyp stúlka óskar eftir herbergi meö snyrtingu, sem
mest sér. Sími 42381 — 42381.
4 HERBERGJA ÍBÚÐ TIL LEIGU
I tvíbýlishúsi við Álfheima I nokkra mánuði. Uppl. I slma
13525 eftir kl. 6.
'