Vísir - 09.12.1967, Síða 2
2
V1SIR . Laugardagur 9. desember 1967.
TÁNINGA-
SÍÐAN
Hinn föngulegi stúlknahópur, sem þátt tók í töku myndarinnar, svo-
nefndu „Bikinidömur í sundpolli“.
T. v. Georg Harrison og John Lennon viröa fyrir sér víöáttuna framundan, og hugleiða þeir hvemig
senan veröur bezt úr garði gerð. — T. h. John Lennon ásamt tveimur „bikinidömum".
Að þessu sðnni leyfum við okkur uð helgu Bítlunum
síðunu, í tilefni tsf því, uð lokið er töku sjónvurps-
þútturins „Mugicul Mystery TourJ
•' '"í'VAy •• v \ ■••• /•• v. WKWtJWJSj
Áhuginn skín úr augum Ringos, og Ner
þessi mynd tekin er þeir félagar slógu
upp í gaman og hófu að ieika fótbolta.
■ ■ ■
■' " - : ;< 1.: ; :■
Georg Harrison einn á víðavangi.
Georg Harrison ásamt einni af bikinidömunum í
leikhléi.
J^oks hafa Bítlarnir lokið við hinn langþráða
og margumtalaða sjónvarpsþátt „Magical
Mystery Tour“. Kostnað í sambandi viö töku
hins einnar klukkustundar þáttar, sém tekinn
var upp án handrita eða nokkurra fyrirfram
ákveðinna áætlana, hafa þeir að öllu séð um
sjálfir.
Allar senur hafa snillingamir fjórir gert,
undirbúningslaust á staönum — bæði tií
skemmtunar og gremju fyrir upptökumennina,
sem aldrei vissu hvar né hvenær þeir áttu að
stilla upp taekjum sínum.
Allir liösinnismennirnir eru þó sammála um,
að þeir hafi aldrei upplifað svo viðburðarrík-
ar vikur í lífi sínu. Ánægðust var þó hin fimmt-
án ára gamla Catherina Osborn. Hún sneri sér
til Paul McCartney til þess að fá eiginhandar-
áritun hans — hana fékk hún, en það sem
meira var, auk þess hlutverk í myndinni, sem
„bikinidama í sundpolli“.
Sýningarréttur fyrir þennan þátt Bítlanna
kostar um 350.000 kr., svo eigi er líklegt að
hann birtist hér á landi í bráð. Verða því Bítla
unnendur að bíða nokkuö, þar til að því kemur.
Til að leyfa mönnum að finna smjörþefinn
af þættinum, birtum viö þessar myndir, sem
hér fylgja, sem teknar voru meðan á töku
hans stóð.
— Vonum við svo, að sem flestir hafi
ánægju af.
Já, hver fjárinn, - • hvaö hefurðu eiginlega sett i jólaöliö, kona!
Eítthvað vantar til jólanna (3)
Vi8 vonum að lesendur hafi
þegar ráöiö tvær fyrri gátumar,
og fundið þá fimm hiuti eða
atriðl, sem vantaBi á neöri mynd
ina, þegar hún var borin saman
við þá efri. Munið að geyma
úrklippumar vel, — þær verða
tíu áöur en óhætt er að senda
þær til okkar. Það er til góðra
verölauna að vinna, — valið er
um Nilfisk-ryksugu eða Baller-
up-hrærivél frá Fönix, — verð-
mæti um 6000 krónur.
Nokkrir liösinnismenn þáttarins saman komnir fyrir framan flutn-
ingabOinn. Kennir þar margra grasa, eins og sjá má á myndinni.