Vísir - 09.12.1967, Blaðsíða 12

Vísir - 09.12.1967, Blaðsíða 12
m vl __ 1 SIR. Laugardagurd. desember 1967. KVIKMWDASAGA EFTIR A £>■ QOTHRIE 3r. Evans leit af hermi, á Mack, sem starði á stújkuna hungruðum aug- um, að ekki væri fastara að kveðið, starði á hana og lét hugann reilca. munstra hjólbarðann upp fyrir vetraraksturinn með SNJÓ- 'rUNSTRI. i Neglum einnig allar tegundir snjódekkja með finnsku snjó j nöglunum. Fullkomin hjólbarða þjónusta. j bjðnusta. — Opiö frá kl. 8— | 24 7 daga vikunnar. Hiólbarðn- þiónustcm Vitatorgi Sími 14113. „Komdu þér út,“ skipaði Mc- Bee. Stúlkan fór sér ekki óöslega að neinu, en hélt þó á brott og dró hurð að stöfum á eftir sér. „Þetta kvenfólk," tautaöi McBee. „Stöðug rekistefna. Þetta var hún Mercy, dóttir mín.“ Hann seildist ofan í vasa sinn eftir tóbakstuggu. Þeir drukku þegjandi um hríð, Tadlock leiddi athygli þeirra að öðru. „Við þurfum að ráða leið- sögumann. Góðan og traustan leið- sögumann.“ „Þeir þykjast vera það, sumir hverjir," sagði Mack og vék loks augunum frá dyrunum. „Adams til dæmis ... já, og Meek.“ McBee jóðlaði á tóbakstuggunni. „Fjandinn hafi það, ef þeir geta tekig rétta stefnu á kirkjutum skammt undan,“ sagði hann. „Adams hefur aldrei komizt iengra en að Laramievirki, og þang að getur hver fábjáni ratað,“ sagði Tadiock. „En þaö er leiðin, sem þá er ófarin ...“ Hann sneri sér að Evans. „Ekki getur þú bent á traust an leiðsögumann, er það?“ „Ég veit ekki...“ „Kannski?" „Ég þekki traustan leiðsöigu- mann. En ag hann reynist fáanleg- ur til fararinnar, það er annað mál.“ „Hver er það?“ „Dick gamli Summers. Hann er ; gamall veiðimaður og hefur flækzt um allt. Ég þori að fullyrða, að hann gæti vísað ykkur leið, þótt hann væri með bundið fyrir aug- un.“ „Hvar er hann að finna?“ „Hann er nágranni minn." „Helduröu að hann reynist ekki fáanlegur?" „Það er erfitt að segja nokkuð um það. Konan hans hefur verið eitthvað lasin að undanfömu." „En þú ert viss um að hann sé traustur og dugandi?" spurði Tad- lock enn. „Við höfum ekki nein not fyrir haltan óg skakkan lang- afa, sem hefur viskíkaggann fyrir leiðarvísi." Evans leit fast á Tadlock og marfti seinlega. „Ég held að mér sé óhætt að fullyrða, að ég hafi ekki kynnzt öðrum eins ferðagarpi og Dick Summers." „Ætlarðu að skreppa með okkur heim til hans?“ „Því ekki það. Á morgun eða ein- hvem næstu daga ...“ „Gott. Við getum ráðið við okk- ur hvað við eigum að bjóða honum í kaup.“ Tadlock hafði að vísu þeg- ar ákveðið upphæðina, þótt hann hirti ekki um að láta það uppskátt að svo stöddu. Hann sneri sér enn að Evans. „Jæja, hefurðu þá tekið ákvörðun?“ „Ekki endanlega." „Hópurinn verður fullskipaður þá og þegar.“ Mack tók í sama strenginn. „Hvað heldur þér eiginlega héma, fyrst þú getur komizt til Oregon? Eins og ég sagði áðan — þeir sem koma fyrstir, sitja aö því bezta.“ „Ég vona aö þú sjáir þér fært að slást I förina," sagði Fairham, og eftir svip hans að dæma fylgdi hug- ur máli. .Jflustaðu á mig,“ mælti Tad- k>ck og lyfti höndunum til áherzlu eins og ræðumaður. „Við höfum heyrt um landkosti. En það er ann- að, sem að minum dómi er þyngra á metunum." Hann þagnaði andar- tak til að vekja eftirvæntingu meö þeim hinum. Er Bretland föður- land þitt eða hvaö? Viltu verða til þess, að þeir nemi þetta Iand?“ i „Hitchcock væri það að skapi. Ekki mér.“ .Jfvemig getum við komiö I veg fyrir það? Einfaidlega með því að setjast þar að. Við, þú og ég og aðrir, sem hafa í sér hug og dug til að nema landið ...“ Roði færðist í vanga og æöarn- ar við gagnaugun þrútnuðu. Rödd hans varð þróttmikil. Evans varö snortinn af ræðunni, en vildi -ekki látja á því bera. „Við þurfum ekki aö heyja orr- ustu við Breta um> þaö land, sem við höfum orðið þeim fyrri til að nema,“ þmmaði Tadlock enn. Svo lækkaði hann röddina. „Þú mátt vera stoltur af þvl, Evans, getir þú sagt börnum þínum og barnabörn- um, að þú hafir unniö petta frjó- sama og auðuga land þeim til handa, með því aö brjóta það og erja. Eða kýstu heldur að setja hæg an sess og láta aðra um aö semja söguna með verkum sínum?" Tadlock dró upp vasaklútinn og þerrði svitadropana af enni sár. „Fleiri orð hef ég svo ekki um þetta,“ sagði hann. „Nema að mér er það áhugamál að þú komir með“. „Hverju svararðu?" spurði Mack. Evans sá það á svip Fairmans, aö hann vonaði að svarið yrði já. „Þið sækið fast að mér.“ Evans virti þá fyrir sér og sá að þeir biðu svarsins með eftirvæntingu. Jafn- vel McBee. „Láti Dick Summers til leiðast, kem ég með,“ svaraöi hann fyrr en hann vissi af. „Gott...“ „Tökumst I hendur því til stað- festingar," sagði McBee. Þeir fylltu glösin einu sinni enn I — allir nema Tadlock og Fairman — og þegar þau voru tæmd, sett- ist Evans á bak múldýri sínu og reig heim á leið. Hann hugsaði sem svo, að viskíið hefði ráðið svarinu; samt fannst honum það hafa veriö hið eina, sem kom til greina. Hann var staöráðinn I að standa við orð sín og fara, ef Dick Summer gæfi kost á sér sem leiðsögumanni; gæfi hann ekki kost á sér færi hann sennilega samt. Góður jarðvegur, góö veiði, góð veörátta, heilnæmt loftslag, engin hitasótt. Þaö gat ekki betra veriö 'Hann afréö aö láta verða af því að slást I för með þeim hinum, ef hann yrði sama sinnis, þegar af honum rann. Þegar heim kom og hann hafði sprett af múldýrinu, mundi hann : eftir því að hann hafði ekki bragð- að matarbita; fann að hann var sár- svangur. Sól var að setjast I vestri; allt benti til að það yrði þurrt veð- , ur á morgun og þá varð hann að ! hamast eins og hann ætti lífig að leysa: Rock gamli kom og fagnaði hon- um. Rebecca stóð við hlóðirnar. „Komdu þér I hnjáskjólið, kerli mín!“ kallaði hann. „Við erum að leggja af stað ti! Oregon...“ ANNAR KAFLI Þeir hinir fóru út úr verzluninni skömmu á eftir Evans. Tadlock kvaðst þurfa að ganga frá viöskipt- um. McBee sagöi að þag væri víst tlmi til kominn aö hann fengi að vita hvað konan hefði viljað hon- um. Mack lézt ætla að llta á nokkra nautgripi, sem hann væri að hugsa um að kaupa. Tadlock nam staðar andartak og horfði á eftir Evans. „Þetta er maö- ur, sem ég vil hafa I flokki með mér,“ sagði hann. Í)S FYRIfiHGFN RAUOARÁRSTfG 31 SlMI 22022 „Þetta er örin sem ég sá frá flugvél- Úr kvenmannsfötum og allt af sömu inni“. stærð .... Kvenmaöur — einn á ferö? „Hún hlýtur að vilja að sér sé fylgt,. Jæja, hún veröur aö gera sér mína fylgd aö góðu.“ ' Loíljiressur - Sl.un)(|riiiur Iíranar VERKTAKAR - VINNUVÉLALE'GA Tökum að okkur alls konar framkvœmdir bœði í tíma-og ákvœðisvinnu Mikil reynsia í sprengingum LOFTORKA SF. SÍMAR: 21450 & 3019 0 HAROVBÐAR OTiHUROIR TRÉSMIÐJA Þ. SKÚLASONAR Nýbýlayegi 6 Kópavogi sími 4 01 75 METZELER Vetrarhjólbarðamii koma snjó- negldir frá METZELER verk- smiðjunum BARÐINN Ármúla 7. Sími 30501. HJÓLBARÐASTÖÐIN Grensásvegi 18. Slmi 33804. AÐALSTÖÐIN Hafnargötu 86, Keflavlk Sími 92-1517. Ahnenna Verzlunarfélagið Skipholti 15. Sími 10199. |

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.